Eimreiðin - 01.10.1919, Síða 10
202
RADÍUM
[EIMREIÐIN
ast, eða hérumbil 200 milligrömm. Eftir að friður var
saminn, hefir herinn látið mikið radíum af hendi við
læknana, enda var og er eftirspurn mikil eftir því.
Frú Curie hefir lilotið heiðurinn af að finna radíum;
vann hún að rannsóknum þessum í félagi við mann sinn,
sem var mikils metinn visindamaður og því annað og
meira en »maðurinn konunnar sinnar«. Þau hjónin hlutu
Nóbelsverðlaun árið 1903. Pierre Curie varð nokkru síðar
fyrir slysi á götu í Paris og dó af því; naut hans því
ekki lengi við til frekari rannsókna. Frú Marie Curie er
Pólverji og hefir hún nefnt frumefni eitt, sem hún hefir
fundið, »Poloníum« eftir ættlandi sínu. Hún hefir unnið
ósleitilega að frekari rannsóknum radíums og skyldra efna
og m. a. fundið einingu, sem styrkleiki geislanna er mæld-
ur við. Ýmsir rithöfundar hafa borið kvenþjóðinni á brýn
skort á frumleika i hugsun og vísindalegri starfsemi, hafa
bent á að karlmenn eigi allar meiri háttar uppgötvanir.
Frú Curie hefir rekið sliðruorðið af kvenfólkinu. Hún
hefir fundið hið nýja efni, radíum, sem reynst hefir heilla-
drjúgt til að lina þjáningar og krankleika margra sjúk-
iinga. Og ekki fer illa á því að einmitt konur bera mest
úr býtum við radíumlækningarnar.
Gunnlaugur Claessen.
Verðlaunasagan.
Hér á eftir fer sagan, er hlaut verðlaunin i samkepni þeirri,
er auglýst var i 2. hefti Eimreiðarinnar þ. á. Dómnefndina skip-
uðu, auk ritstjóra og útgefanda Eimreiðarinnar, þeir Ásgeir Ás-
geirsson kennari, Jakob Jóh Smári magister, og-Porsteinn Gísla-
son ritstjóri, og var nefndin öll sammála um að þessi saga
hlyti verðlaunin. Alls höfðu 8 sögur borist Eimreiðinni í þessu
skyni og mátli svo heita að sitt sýndist hverjum nefndarmanna
um, hverja þeir teldi næst-tiestu söguna. Og þó að það skifti
ekki mikíu máli hér, þar sem ekki var um nema ein verðlaun
að ræða, má geta þess höfundanna vegna, að eftirtaldar sögur
voru — sín af hverjum nefndarmanna — taldar næst-bestar
»Kitlum«: Arngerður, Snjókast, Barnið og Tengdasonurinn. Sum-
ar af þessum sögum mun Eimreiðin birta síðar.
Því miður gelur Eimreiðin ekki birt nafn höfundarins að hinni
útvöldu sögu, því hann hefir ekki gefið leyfi til þess. Ritstj.