Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1919, Side 12

Eimreiðin - 01.10.1919, Side 12
204 KITLUR [EIMREIÐlít Hann var þrælslerkur og stirður, og svo feitur og lura- legur, að það var eins og alt stæði honum á beini, fötin og skinnið. Hann var skegglaus, með mikið, svart hár, módökk augu, gríðarlega kjálka og þykkar varir. Hann kýmdi stundum en hló aldrei, og það hét ekki að togað yrði úr honum orð. En það voru að jafnaði ósvikin orð, sem hann ýtti út úr sér, því hann var vel viti borinn. Hann lagði tii einskis manns, og fáir urðu til að áreita hann eða gera sér dælt við hann. Hann hét Tómas og var kallaður Tumi. En eg gat al- drei látið svo létt nafn loða við hann, og eg kallaði hann Tumba og stundum Þumba. Eg kallaði hann það í góðu og hann reiddist því ekki. Þau voru trúlofuð, vinnukonan og hann, og höfðu verið það í tvö ár. Hún hét Sigurlín og hafði flust í dal- inn, og þótti þar ekki verklagin eða vinnusöm. Hún var kát og bráðlynd, ljóshærð og ekki ólagleg í andliti, með blá og skær augu. Flétturnar tóku henni vel í mitti, en fötin fóru henni illa, og fótnett var hún ekki eða ökla- prúð, og hreyfingarnar eins og hún væri síþreytt og þjök- uð. Og yfir tiihugalífinu var sami blærinn. Lína hafði víst lítil kynni af skúrum og skini æsku og ásta, og minni en hún sjálf hefði kosið. Tómas bar til hennar þunga, viðkvæma ást, en blíðu eða vinahót lét hann aldrei á sér sjá. Eftirlætisbarnið í hópnum var önnur kaupakonan. Hún var seytján eða átján ára, snyrtileg stúlka, ekkert nema ærslin og gæðin. Hún hét Lóa — það er að segja: hún hét Kristbjörg, en var kölluð Lóa, því hún var kaup- staðarbarn. En af Kristbjargar nafninu kallaði eg hana æfinlega Bjöggu, og var hún orðin því svo vön, að hún gegndi því engu síður en hinu. Lóa var með þeim hætti, að hún flissaði að öllum sköpuðum hlutum, og hana kitlaði svo hemjulaust, að hún hafði til að hrökkva við eins og ótemja, ef einhver hreyfði sig nálægt henni. f*að lætur að líkindum, að við Lóa vorum glöðust í

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.