Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1919, Síða 14

Eimreiðin - 01.10.1919, Síða 14
206 KITLUR [EIMREIÐH® á engjunum. Við sátum í hvirfingu skamt frá árbakkan- um. Þar var hylur í ánni. Við höfðum lokið að matast, en sátum í makindum. Bóndi var með okkur og fórum við að engu óðslega. Slægjan var góð og tiðin lék í lyndi. Eitthvað hafði slest upp á vinskapinn með okkur Lóu. Hún þaut á fætur og færði sig. í þeim umsvifum misti hún annan skóinn, og hrökk hann að fótum Línu, vinnu- konunnar, þar sem hún sat. Eg spratt upp til að hafa hendur á skónum; það var nýbryddaður selskinnsskór, með rósalepp innan i. Nú átti að leika kóngsson og karlsdóttur. Lina hafði horft á okkur Lóu, eins og svo oft endra- nær. Nú skarst hún alt í einu í leikinn og greip skóinn til að forða honum. Eg hirti ekki um það, og ætlaði umsvifalaust að þrífa hann af henni. Hún hélt víst að eg ætlaði að kitla sig. Hún kiptist við, og hallaði sér aftur á bak upp í fangið á mér. — »Þú mátt ekki kitla mig, elsku góði«, sagði hún. Mér hvarf ónotalega allur gáski við þennan málróm, og. það var eins og einhvern skömmustusvip drægi yfir hitt fólkið. Eg bjóst til að ganga að verki, en fólkið sat, eins og í hálfgerðum vandræðum. Eitthvað óhreint var að slæðast í þessari þögn, og eg tók á því sem eg átti til, að láta mér ekki bregða. Það var eins og mér væri forvitni á að grenslast um hug Tumba. Eg gekk aftan að honum, þar sem hann sat, sté upp á axlirnar á honum, sínum fæti á hvora, og stóð svo. Eg hafði stundum gert það áður. Hann hreyfði sig ekki. »Það er misjafnt hvað menn þreyta sig á vinnunni«, sagði hann ofurhægt. Eg sagði ekkert, því eg vildi ekki egna hann. Og þessi hnífill hans snart mig ekki. Hitt vissi eg vel, að hann vann sér alt erfiðara en eg. »Góða veðrið biður eftir okkur«, sagði bóndi, og stóð upp. Stúlkurnar stóðu líka upp. Eg hafði sest framar á bakkanum og var að laga á mér skóinn. Þá stóð Tumbi upp. Hann gekk hægt að

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.