Eimreiðin - 01.10.1919, Page 21
EIMREIÐIN
KOTLUGOSIÐ 1918
213
bar mökkinn yfir Dyrfjöll sunnanverð og hóf hann sig
langt upp fyrir fjallgarðinn. Örðugt var að mæla hæð
hans nákvæmlega, því hann breytti einlægt lögun. Bólstr-
arnir tóku nýjum og nýjum myndbreytingum, uxu og
hurfu á ýmsan hátt. Langt fram úr 14000 m. yfir sjávar-
mál mun gosið þó ekki hafa farið, en leiftrin, sem sífelt
blossuðu í mekkinum, þutu miklu hærra, sjálfsagt 20—25000
m. eða meir. — Annars ber mönnum ekki saman um
hæðina, sem ekki er við að búast. Fáir munu hafa mælt
hana, nema af handa hófi; — telja hana meiri en þetta,
jafnvel upp í 28000 m. Það nær þó tæpast nokkurri átt.1)
Á*RfykjaA/Lk D-Bjrfjpll £zEyjqfjaUtyo/iuil jVlyr<iotijoM*iU H-jCaf/a G'GoS&tolpirinr
Þegar öskustólpinn hóf sig sem hæst, er eg mældi hann,
▼ar sjónarhornið mjög nálægt 472°. Samsvarar það ca.
11400 metrum frá láréttu i 165 km. fjarlægð, þar við
bætist svo dýptin niður að sjávarmáli, vegna hnattbung-
unnar, um 2900 m. Eftir því hefir þá mökkurinn komist
hæst 14300 m. y. s. m. Vel má vera að þessar tölur séu
ekki nákvæmar: Ófullkomin verkfæri, færsla mökksins í
toppi til hliðar frá lóðrétlri hæð yfir uppvarpinu og að eg
hafi ekki séð þegar gosmökkurinn fór hæst, getur eðlilega
fært þessar áætlanir eitthvað úr lagi. Þegar gosbólsturinn
var sem hæstur og gildastur, virtist mér hann oftast fyrir-
ferðarmestur efst. Þvermál hans þar mun tæpast hafa
farið fram úr 3 bogagráðum héðan að sjá, en það er alt
1) Eftir einhverri mælingu úr Vestmannaeyjum er hún talin um 90000 fet.
Vel getur mökkurinn hafa borist i stefnu á Eyjarnar. Purfti hann ekki aö berast
langa leiö hátt í lofti til þess aö valda miklum misreikningi. Önnur mæling
þaðan (29. okt.) gerir hann um 9000 metra, Má vera að þaö sé nálægt lagi.