Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1919, Side 38

Eimreiðin - 01.10.1919, Side 38
230 BISMARCK FURSTI lEIMREIÐIN ders, Schillers og Beethovens var háleitari og ávaxtaríkari, heldur en metnaðargirnd Bismarcks og Treitschkes, sem fyr eða síðar hlaut að lenda i ógöngum. Menn fá góða hugmynd um, hversu kynjasigrar Bismarck- timabiisins og sá innblástur, sem streymdi út frá lífsstarfi járn- kanslarans, hafa getað heiliað (»synhverfe«) mikinn hluta af einni af dugmestu þjóðum jarðarinnar, þegar menn líta á það, að af óllum fulltrúum þýska verkalýðsins í Ríkisdeginum, sem voru ekki færri en 110 að tölu, var ekki einn einasti maður, svo vitanlegt sé, sem fyrir stuðning flokksins fékk tækifæri til að mótmæla, þegar rikiskanslarinn þann 4. ágúst 1914 hélt því fram, að nauðsyn bæri til að senda þýska herinn yfir Belgiu og brjóta þar með það hlutleysi, sem þýski ríkiskanslar- inn og utanríkis-ritarinn höfðu skýlaust viðurkent örfáum árum áður. Enginn mótmælti, svo menn viti, þeirri meginreglu, að xnauðsyn brýtur lög«. Sennilegasta skýringin er sú, að einnig meiri hlutinn af foringjum þýsku jafnaðarmannanna hafi látið telja sér trú um, að ófriðurinn mundi verða útkljáður á fáeinum vikum, með hraðgöngu til Parísar, og að varanlegur heimsfriður, undir þýskri yfirdrotnan, yrði ávöxturinn af striðinu. Menn voru druknir af gífurlegum hagnaðarlíkindum þýsku þjóðarinnar, sviþað og margir síðar, á hættulegri stund, létu dáleiðast af kamþavíni frönsku vinkjallaranna, rétt fyrir höfuðorustuna við Marne! Pá er annað dæmi, sem éngu siður sýnir hversu blóð- og járnpólitikin var næm. í þýsku »hermannaalmanaki« fyrir árið 1915, sem auðsjáanlega er ætlað til geysiútbreiðslu og lesturs í skotgröfunum, eru tilfærðir ritningarstaðir úr gamla- og nýja- testamentinu við hliðina á kraftyrðum úr ritum Nietzsches. »Pér segið, það er hið góða málefni, sem helgar jafnvel stríð. Eg segi yður: »góiJ styrjöld helgar sérhvert málefni«. Svo segir Friedrich Nietzsche, spámaður síðustu tima. Styrjöld er Nietz- sche »góð styrjöld« þegar hún er nægilega langvinn og harð- neskjuleg til þess að »þróttefla« hina »kristtrúarveikluðu« Norð- urálfu og gefa þjóðunum aftur »hið harða táp herbúðanna, hið djúpa, ópersónulega hatur, morðrósemina með góðri samvisku ......hið stolta kæruleysi fyrir stórtjónum, fyrir sinni eigin tilveru og vina sinna .... eins og sérhver mikil styrjöld gerir«. Pað verður skiljanlegt, hvernig áhlaupin á Verdun, sem eftir svissneskum útreikningum kostuðu þýska vesturvígstöðvaher- inn alt að hálfri miljón ungra, kröftugra manna, gátu átt sér stað, þegar það er vitanlegt, að meðal annars, sem lesið er i herbúðunum, eru slík kraftyrði eftir hinn nýja Zarathustra. Pegar það kom upp úr kafinu, að styrjöldin varð ekki útkljáð með einni sigurgöngu til Parisar og Calais og að úrslit hennar voru

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.