Eimreiðin - 01.10.1919, Page 39
EIMREIÐINl
BISMARCK FURSTI
231
vafasöm, pá kom í góöar parfir sú kenning Nietzsches, að það
sé ekki stutt styrjöld, sem Norðurálfan þarfnist fyrir. Rvert á
móti! I hermannaalmanakinu, sem fyr getur um, er tilfærður sá
kafli, þar sem Nietzsche lofar og prísar Napóleon fyrir það, að
hann — samkvæmt skoðun Nietzsches — var sá, sem hratt af
stað »tveim hrikalegum hernaðaröldum«, sem eiga að þróttefla á
ný hið lingerða fólk Norðurálfunnar! — Langvinn styrjöld, það
er þá einmitt í sliku ástandi að hugrakkir ungir menn eiga að
vera í cssinu sínu! Pað er sá eldur, sem hinn góði málmur á
að herðast í. Alt er undir því komið, að sameina morðrósem-
ina með góðri samvisku við stolt kæruleysi fyrir sínu eigin lífi
og lífi landa sinna!
En þetta kæruleysi mun finna sér takmörk sett á grundum
Frakklands. Peir munu æ verða fleiri og fleiri, sem spyrja, hvort
íbúar Norðurálfunnar eigi að þrótteflast á þann hátt, að þrótt-
mestu mennirnir líði undir lok án eftirkomenda. Hugsunaríþrótt
Nietzsehes tók ekki tillit til þess, að ekki styrkist nokkur þjóð
við það, að sópa burtu miklum hluta af hugmestu börnum hennar.
Sá tími getur komið, að þeir mannhópar innan þýsku þjóðar-
innar, sem sigrar Bismark-tímabilsins hafa hrint afturfyrir, komi
aftur fram í brjóstfylkingarnar. Og það mun, ef til vill, koma í
ljós, að öll valdaþrár-víman hjá allflestum, var yfirborðs-fyrir-
brigði. Pað er ekki sennilegt, að viðburðir einna tveggja manns-
aldra hafi getað gerbrej'tt þýsku þjóðarsálinni.
Undirstöðu-lyndiseinkennin geta naumast verið öll önnur en
þau voru á tímum Schillers og Beethovens. Hinn forni andi
lifir. Hann mun leysast úr læðingi smámsaman eða með öflug-
um fjörkippum. Pað er nú á tímum þegar vottur þess, að innan
þýsku þjóðarinnar taki menn að efast um, að það sambands-
ríki, sem Bismarck heildsteypti með blóðugum orrustum, hafi
verið rétta framkvæmdin á einingardraumum hinnar miklu
blómaaldar Pýskalands. Menn spyrja sem svo, hvort þýsku
þjóðinni sé nokkur þægð í því sambandi, sem þannig er fyrir
komið, að stjórn Prússlands getur leitt alla þýsku þjóðina út í
ógurlega styijöld, án þess að spyrja bandalagsstjórnina og þjóð-
ina ráða. Einingardraumum þj'sku gullaldarinnar verður þá
fyrst fullnægt, þegar allir Pjóöverjar mynda raunverulega frjálst
og jafnborið samband í likingu við Bandaríkin í Ameríku.
Prófessor Gerhard Gran hefir sagt, að mesta eða eina glappa-
skot Bismarcks hafi verið það, að hann fekst til að samþykkja,
að Elsass-Lothringen var tekið af Frökkum. Fyrir mér stendur
það þannig, að aðalglappaskotið hafi verið það, að hann með
ófimi skemdi hinn mikla sambandsdraum hinna frjálslyndu
tima Pýskalands. Hann notaði hann til hagsmuna fyrir Prúss-
land, til þess að auka þess vald. Af þessu aðalglappaskoti leiddi