Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1919, Side 40

Eimreiðin - 01.10.1919, Side 40
232 BISMARCK FURSTI (EIMREIÐIN öll önnur. Sá, sem gat bælt Pýskaland undir Prússland, gat einnig bælt rétt annara þjóöa undir hiö nýja þýska riki. Aðalglappaskot hans var þaö, að hann setti valdaviljann í rétl- arviljans sess. Og hegningin varð sú, að hin undursamlega ham- ingja hans gerði hann að dýrlingi. Miljónir manna trúðu á hann og lituðu vilja sinn hans litum. Leiðtogi þýsku þjóðarinnar varð afvegaleiðari. Verk Bismarcks mun, þrátt fyrir alla aðdáun á stjórnmála- tafllist hans, að loknum þessum ófriði, rýrna að gildi. Pað eru komnir alt of stórir blóð-ryðblettir á járnhermannslíkan hans. Pað verður bautasteinn yflr sorgarleik eins hinna vanbúnu snillinga. í bréfi, rituðu í mars 1890, hefir Björnstjerne Björnson, meðal annars sagt um Bismarck: »Eftir að hann hafði fullkomnað sameining Pýskalands með oibeldi, var hann aðallega taflmaður, sem vann öll töflin, en við það glataði framtíðinni; því hann var miðaldanna maður, og hugsunarháttur nútímans fanst honum vera fráhvarf.............. Eg óttast, að við, vegna þessa nýja keisara, steypumst út í Ijölda af mistökum, sem gerir afturkastið enn harðara og, ef til vill, vekur Bismarck, eða að minsta kosti fyrirkomulag hans, upp aftur. Ó, hve erviðir timar standa fyrir dyrum!« B. P. Gröndal tgdii. Embættaveitmgar. Eitt af því marga, sem oft þykir aflaga fara bæði hér hjá oss og víðar, eru embættaveitingarnar, og þarf ekki mikla umhugsun til þess að sjá, hve skaðlegt slíkt getur orðið fyrir þjóðfélagið. Embættismennirnir eru hvorttveggja í senn, vinnumenn þjóðarinnar og húsbændur. Þeir eru trúnaðarmenn, sem halda giftu hennar eða ógiftu á hönd- um sér meira en nokkrir aðrir. Þeir eiga að vaka yfir því, að lögum hennar sé hlýtt, gæta heilbrigði hennar andlega og líkamlega, geyma fjármuni hennar, fram-

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.