Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1919, Page 50

Eimreiðin - 01.10.1919, Page 50
242 TÖFRATRÚ OG GALDRAOFSÓKNIR [EImreiðin Dæmi upp á samning gerðan einslega má nefna þetta skjal: »Eg undirrituð.............lýsi því hér með yfir, að eg í nærveru herra.............og djöfulsins Beelzebub, af- neita gersamlega og af öllu hjarta, af öllum mætti og orku guði, föður, syni og heilögum anda, hinni allra hæstu guðs móður, öllum dýrlingum og englum«. Má af þessu sjá, að lýsing prestsins muni rétt. Þá er alkunnur samningur Jóhanns Fásts og djöfuls- ins: »Eg Jóhann Faustus viðurkenni með minni eigin hendi í bréfi þessu: Eg hefi ásett mér það, að rannsaka frumefni alls. En þar eð eg hefi ekki með þeim gáfum, sem mér eru að ofan gefnar, vitsmuni til þess, né heldur get lært það af mönnum, þá hefi eg nú gefið mig á vald útsendum anda, sem kallar sig Mefistofeles, sem er þjónn fursta helvítis. Eg hefi valið mér hann til þess, að hann kenni mér þetta, og hefir hann lofað að vera mér auð- sveipur og undirgefinn. Þar á móti lofa eg honum og heiti, að þegar 24 ár eru liðin frá dagsetningu þessa bréfs, þá megi hann gera við mig hvað sem hann lystir á alla máta og kærir sig um. Telst þar alt með, líkami minn og sál, hold og eigur, og gildir þetta um alla ei- lífð------—«. Eða þá þegar Satan á að láta hertogann af Luxem- burg hafa strax 10000 ríkisdali, og siðan 100 rikisdali fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði o. s. frv. Sama gilti einnig um máttinn til þess að gera öðrum ilt eins og það að fá sjálfur ýms fríðindi. Það var líka oft skoðað svo að gæfa og gleði væri beinlinis tekin frá einum og gefin öðrum. T. d. voru dæmi til þess, að »gæfu« var skift jafnt milli fleiri, eða að »gæfa« var heimtuð aftur við málssókn. Samningurinn var ávalt þannig, að maðurinn fékk gull og græna skóga, um nokkurra ára bil, og mikinn mátt yfir öðrum, en launin voru æfinlega sála mannsins um alla eilífð. Og áhugi Satans að ná sálunum verður skilj- anlegur, er vér höfum heyrt þá visdómslegu kenningu »Galdrahamarsins«, að guð hafi ákveðið svo í upphafi, að þegar viss tala sálna væri komin í himnaríki, þá

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.