Eimreiðin - 01.10.1919, Síða 52
244
TÖFRATRÚ OG GALDRAOFSÓKNIR [eimreiðin
Þá fundu menn líka nóg dæmi í ritningunni, t. d. flug
Habakúks, og einkum þó þegar djöfullinn tók Jesúm með
sér upp á fjallið og musterisbrúnina. Hví skyldi hann þá
ekki vera fús á að hjálpa vinkonum sinum á stefnu-
mótið?
Þegar til Bloeksbergs kom, voru borð skjótlega upp sett
og slegið upp veitslu. Voru allskonar kræsingar á borð-
um, en salt vantar þar þó í allan mat. En sjá má fólsku
Satans í því, að stundum lét hann gesti sína óafvitandi
eta úldin hræ og annan óþverra. Allir voru skyldugir til
að koma á hverju ári í þessa veitslu, annars gátu þeir
ekki sofið í friði. Þegar borð voru upp tekin, byrjaði
dansinn, með allskonar svívirðilegum látum, og kemur
ruddaskapur miðaldanna fram í j'msu við þær lýsingar,
svo að ekki eru hafandi eftir. Endar svo veitslan með því,
að hver púki velur sér lagskonu, og dvelja þau saman
til morguns.
Peir, sem nýir koma, rita nöfn sín með eigin blóði
sínu í afarmikla bók, því næst lúta þeir djöflinum, og
játast honum á hönd með því að kyssa hann á þá staði,
sem ógeðslegastir mundu þykja. Stundum gerir hann
þeiin sjónhverfingar þannig, að þeir þykjast sjá glæsilegan
konung, og halda að þeir séu að kyssa á hönd honum,
en þá er það i rauninni ógeðslegur hafur, sem lætur þá
kyssa á lend sér. Að því loknu þrýstir djöfullinn með
vinstri klónni innsigli sínu á líkama þeirra, einkum ef
honum þóttu þeir ekki tryggir. Varð þá sá blettur alveg
tilfinningarlaus alla æfi upp frá því, og var kallaður
stigma diaboli. Ef slíkur blettur fanst, eða var látið sem
hann hefði fundist, þá var það sú allra öruggasta sönnun
fyrir því, að sá eða sú, er í hlut átti, væri í tæri við
Kölska.
Þegar nýr félagi hafði bætst við í hópinn, kendi djöf-
ullinn honum fyrst af öllu að búa til galdradrykki og
galdrasalvi úr ungbörnum. Gefur hann þeim þá líka duft
nokkurt, baneitrað og skaðvænlegt. En það er svo til
komið, að hann bregður sér í hafurslíki og lætur brenna
sig til ösku, en askan er duftið. Sjálfur er hann svo jafn-