Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1919, Qupperneq 57

Eimreiðin - 01.10.1919, Qupperneq 57
EIMREIÐIN] FRESKÓ 249 »Kæra frændkona! Eg er sárhryggur út af þessu, og get ekki fyrirgefið mér þessa glópsku mína. En þegar þess er gætt, að Esmée hefir aldrei verið meira en þrjá mánuði úr árinu heima á Milton Ernest, þá var ekki auðvelt að hugsa sér að þetta gæti komið fyrir. Eg er hræddur um að við Llandudno lávarður höfum engan rétt til þess að skifta okkur af hag hennar, nema í fjár- málum. Við höfum engan rétt til þess að skifta okkur af því, hvort hún býður málara að snæða með sér, og ef satt skal segja, þá bjóðum við báðir iðulega málurum að snæða með okkur sjálfir. Þér lítið að vísu enn þá heldur niður til málaranna, en það er nú svona, að heimurinn hefir skift skoðun í þessu efni. Hún getur að minni skoðun vel boðið honum til borðs með sér án hneykslis, en hitt sé eg vel, að þetta er óhæfileg byrjun hjá henni á því, að gefa honum undir fótinn. Þetta er auk þess hrópleg ógæfa fyrir veslings piltinn, því að nærri má geta, hvað hann getur haft upp úr því annað en tál. Þegar henni fer að leiðast að hlusta á Tassó og eiga við mandólínið, þá skal eg ábyrgjast að hún gleymir honum á 24 klukkutímum eins og hann væri alls ekki til í veröldinni, og heimtar af honum að hann þakki henni auðmjúklegast fyrir 500 pund sterlings, sem hún fær honum. Eg held nú sannast að segja, að þér þurfið ekki að gera yður alvarlegar áhyggjur út af þessu, enda þótt eg sjái fullkomlega, hve móðgandi þetta hlýtur að vera fyrir yður. Eg vildi óska að eg hefði aldrei rekist inn í myndastofu Renzós. Annað eins og eg hafði fyrir því að komast þangað, því að eg varð að ganga upp 195 tröpp- ur í kolamyrkri til þess að komast þangað. Og í bjöllu- strengnum hékk ávöxtur«. Ekkjufrú Cairnwrath, Milton Ernest, til hr. Hollys, Róm: »Kæri Hinrik! Mig tekur sárt að sjá það, hvernig heim- urinn er farinn að rífa niður allan stéttamismun og veð- ur í léttúð út í allskonar ófærur. Þó að Llandudno lá- varður bjóði málurum að snæða með sér, þá er eg samt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.