Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1919, Síða 58

Eimreiðin - 01.10.1919, Síða 58
250 FRESKÓ [EIMREIÐIN viss um, að hann mundi síðastur allra gela dætrum sin- um leyfi til þess að giftast þeim. Og nú skal eg segja yður það í fullri alvöru, að eg gæti best trúað þvi, að Esmée frænka mín tæki upp á því af einhverjum brjál- semis þráa, að fleygja sér í fangið á þessum manni. Mér finst vera kominn tími til þess, að þér kallið saman ætt- arráðsfund til þess að binda enda á þessa óhæfu«. Hr. Hollys, Itóm, til ekkjufrúar Cairnwrath, Milton Ernest: »í Englandi er »conseilo de famille« ekki í lögum. Hvað í ósköpunum eigum við að taka til bragðs?« Ekkjufrú Cairnwrath til hr. Hollys (simskeyti): »Getið þér ekki látið aðstandendur hans í Róm kalla hann heim strax? Er ekki samningur við Ítalíu um fram- sal skaðræðismanna?« Hr. Hollys til ekkjufrúar Cairnwrath (símskeyti): »Maðurinn hefir ekkert aðhafst, sem varðar við lög, og hvernig á þá að heimta hann framseldan? Eg stend uppi ráðþrota. Eg ætla að skrifa Llandudno. Eg er viss um að hann fer strax til Milton Ernest«. Ekkjufrú Cairnwrath til hr. Hollys (símskeyti): »Mér þykir vænt um að Llandudno lávarður kemur. Eg skal ekki trúa öðru en hún virði orð hans einhvers. En þér ættuð samt að muna, að það var ekki Llandudno lávarður, sem sendi þennan mann hingað«. [Framh.].

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.