Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1919, Qupperneq 61

Eimreiðin - 01.10.1919, Qupperneq 61
EIMREIÐIN] HITSJÁ 253 starf, par sem helst má engu skeika og ekkert vanta. En Páli er trúandi til þess að leysa það af hendi af snild. Hér er nú loks að komast í framkvæmd nauðsynjaverk, sem ekki verður hótinu þýðingarminna, þó að þeir kunni að vera að tiltölu fáir, sem skilja það. Til hvers er að eiga fjársjóðu, og fela þá svo fyrir sjálfum sér? En það gerir sú þjóð, sem safnar hand- ritum, en hirðir ekki að eiga handbæra skrá yfir þau. í athugagrein á káþunni segir höf., að riti þessu verði haldið áfram »smámsaman, eftir því sem fé verður fyrir hendi«. Er ekki þetta dásamlegt? Hér hefði höf. átt að eiga svo herralega húsbændur, að hann hefði getað sagt, að rit þetta kæmi út sem óðast, að höf. hefði undan að búa það undir þrentun. Engin ósköp mundi það nú kosta, og sama og ekkert á móts við fjár- sjóðuna, sem hér opnast aðgangur að, um leið og Páll hrópar sitt Sesam, Sesam yfir klettinum. Við verðum að muna eftir því að nota Pál og aðra hæfa menn meðan það er ekki of seint. Með því farnast þjóð vorri best. M. J. ISLANDICA, Vol. XI: The Periodical Literature of Iceland down to the Year 1874, by HALLDÓR HERMANNSSON, 100 stórar bls. með mörgum myndum og eftirlíkingum. Pað er vel farið, að einhverjir verði til þess að gefa gaum og gera arðberandi bókmentafjársjóði vora, er vér höfum eigi efni á sjálfir. Landsbókasafnið, fullkomnasta safn íslenkra fræða, er svo haldið, að varla er einu sinni hægt að vita hvað þar er til. En þá er gott að til skuli vera hið mikla bókasafn Fiskes, búið nógum efnum til þess að gefa út vandaða bókaskrá og auk þess gera alla bókafjársjóðuna arðberandi. Auk þess er það lán mikið, að eiga við safn þetta, jafn óþreytandi og vandvirkan út- vörð íslenskrar menningar og Halldór Hermannsson. Petta er nú ellefta bókin, sem út kemur undir nafninu Is- landica, og er ein sú merkasta þeirra. Er ekki annað um hana að segja en lof eitt og þakkir, því að hún er bæði skemtileg og ítarleg og án efa vönduð í alla staði, um það er nafn höfundar- ins mér næg trygging, þó að ég sé ekki sá sérfræðingur á þessu sviði, að ég geti dæmt um alla smámuni. Er hér rakin nákvæm- lega saga allra blaða og tímarita, sem út komu á íslandi fram að 1874, og er það ekki óverulegur þáttur í sögu landins á því 100 ára tímabili. Væri bók þessi á íslensku er ég viss um að fjöldi alþýðu- manna hefði stórmikið gaman og gagn af henni, og jafnvel þótt á ensku sé, er ilt til þess að vita, í hve fárra höndum »Islandica« virðist vera hér á landi. Pað er eins og fæstir vari sig á þvi, hve
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.