Eimreiðin - 01.10.1919, Page 62
254
RITSJÁ
IEIMREIÐ1N
ágaetar þessar bækur eru, en villist á þessu latneska nafni. Og
svo eru þær lítt haföar á boðstólum hér. M. J.
SKÓLABLAÐIÐ, ritstjóri HELGI HJÖRVAR.
Vekja vill Eimreiðin athygli allra á þessu blaði. Pað hefir nú
um nokkra hríð komið út, »aukið og endurbætt« undir ritstjórn
Helga Hjörvars kennara, og er það hið vandaðasta að öllum frá-
gangi, jafnt efni sem búningi, og hið eigulegasta í alla staði. M. J.
ÁRSRIT FRÆÐAFÉLAGSINS. 4. ár. 1919.
Petta rit er nú orðinn einn af sjálfsögðu gestunum á ári
hverju, og jafnan laglega úr garði gert. I þessu hefti er fyrst
grein eftir prófessor Porvald Thóroddsen um Alex. Húmbolt,
ágæt ritgerð, bæði fróðleg og skemtileg. Pá er afarlöng ritgerð
eftir ritstjórann, Boga Th. Melsted, um sambandslögin nýju og
allra handa »landsins gagn og nauðsynjar#. Kemur greinarhöf-
undur afskaplega viða við og gefur margar hollar bendingar, en
óþarflega hefir hann alt á hornum sér, sem Islendingum við-
kemur, en hellir væmnu, og sumpart óhóflegu, lofi á Dani. Er
hóf best í því sem öðru. Petta eru veigamestu ritgerðirnar, en
annars er best fyrir menn að fá sér ritið og sjá hvað þar er
fleira. Allmargar myndir eru í ritinu. M. J.
KÖTLUGOSIÐ 1918. Safnað hefir og samið GUÐGEIR JÓ-
HANNSSON. Með myndum. MCMXIX. Ársæll Árnason.
Hér er safnað saman í bók frásögnum ýmsra sjónar- og
heyrnarvotta að Kötlugosinu mikla 1918.
Eldgos eru jafnan í annálum vorum talin með stórtíðindum,
enda eigi kyn þótt seint úr minni líði þeim, er í nánd búa. Hafa
þau oft valdið stórmiklu tjóni á eignum og jafnvel mannslífum,
og hallæri farið í kjölfar þeirra. Pessu gosi fylgdi og það, sem
oft veldur mestum usla, sem sé ógurlegt jökulhlaup.
Pað er því vel til fallið, að safna þessum frásögnum í eina
heild, og varla getur þá skáldsögu er meira sé »spennandi« en
sumt í þessum sönnu og látlausu frásögnum þeirra Skaftfelling-
anna. Yfirleitt er ágætlega frá sagt.
Bókin er hin snotrasta að öllum frágangi. Fylgja henni góðar
myndir af gosinu og jakahrönnum eftir hlaupið. Auk þess upp-
dráttur af Mýrdalsjökli og þeim sveitum, er hlaupið fór um.
Eimreiðin flutti siðastl. ár ofurlítinn kafla úr þessu riti, sem
þá var í smíðum, og nú í þessu hefti er enn nokkuð um þetta
efni. M. J.
JURTALITIR. PÓRDÍS STEFÁNSDÓTTIR safnaði. Fylgirit
»19. .júní«.