Tölvumál - 01.10.1991, Blaðsíða 6
Október 1991
Ráðstefna um tölvunotkun í
haldin 26. ágúst 1991
Skýrslutæknifélag íslands ásamt
aðilum menntakerfisins gekkst
fyrir ráðstefnu um tölvunotkun í
námi á Hótel Loftleiðum hinn
26. ágúst s.l.
Ráðstefnuna sóttu ríflega 100
manns. Haldinvoru 11 framsögu-
erindi og málefni erindanna rædd
íumræðuhópum. Ennfremur var
opið sýningarsvæði þar sem kynnt
var starf ýmissa aðila í þágu
tölvunotkunar í skólum.
Hér á eftir fara erindi fyrirlesara
á ráðstefnunni og greinar frá
ýmsum aðilum sem voru með
kynningar á sýningarsvæði.
Undirbúningsnefnd ráðstefn-
unnar skipuðu eftirtaldir:
Anna Kristjánsdóttir, formaður
Skýrslutæknifélagi íslands og
KHÍ
Guðný Helga Gunnarsdóttir
menntamálaráðuneyti
Halldóra Magnúsdóttir
Skýrslutæknifélagi íslands
Helgi Þórsson
Reiknistofnun Háskólans
Ávarp til ráðstefnugesta
Anna Kristjánsdóttir, varaformaður SÍ
Það er mér ánægja að opna
ráðstefnuna Tölvunotkun í námi
en það geri ég fyrir hönd
Skýrslutæknifélags íslands og
undirbúningsaðila frá mennta-
málaráðuneyti, fræðsluskrif-
stoíúm, Kennaraháskóla íslands,
Námsgagnastofnun, Reikni-
stofnun Háskólans, Kennara-
sambandi íslands og 3F Félagi
tölvukennara.
Ráðstefnan hefur átt sér langan
aðdraganda sem þegar hefúr verið
flallað um í síðasta hefti Tölvu-
mála og útsendum kynningar-
bæklingum. Þar er getið um
áhyggjur manna vegna hægrar
og slitróttrar framþróunar í tölvu-
notkun innan skólakerfisins og
þess hve lítil áhersla hefur verið
á að nota þennan búnað til góðra
hluta í einu meginviðfangsefni
skólanna, sem er að skapa
nemendum hvetjandi, aðgengi-
legar og aðlaðandi námsaðstæður
og að hjálpa þeim að færa sér
þær f nyt í fyllsta mæli.
Enginn skyldi þó ætla að þessi
mál séu ný af nálinni í skólastarfi.
Til að mynda má vekja athygli á
þvf hvaða ráðstefnur eru
undanfarar þessarar.
1983 "EDB og skolepolitik".
Ráðstefna skýrslutæknifélaga á
Norðurlöndum.
1984 Dagskrá Kennslumiðstöðvar
Námsgagnastofnunar um tölvur
f skólum, haldin í samstarfi við
fleiri stofnanir.
1984 Tölvufræðsla í skólum.
Ráðstefna Skýrslutæknifélags
Islands.
1986 Tölvur og grunnskóli.
Ráðstefna menntamálaráðuneytis
í samstarfi við Kennaraháskóla
Islands og Námsgagnastofnun.
1989 "Educational Software at
Secondary Level - to be used in
and out of school". Ráðstefna
International Federation for
nami
Jóhann Malmquist
Háskóla íslands
Lars H. Andersen
Kennarasambandi Islands
Lára Stefánsdóttir
3F Félagi tölvukennara
Salvör Gissurardóttir
Kennaraháskóla íslands
Sigríður Sigurðardóttir
N ámsgagnastofnun
Snorri Þorsteinsson
Félagi fræðslustjóra
Þórður Kristjánsson
Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur
Information Processing í samstarfi
við Skýrslutæknifélag íslands og
Kennaraháskóla íslands.
Segja má með nokkrum sanni að
við höfúm verið að þrengja
viðfangsefnið niður í það sem er
meginviðfangsefni skólanna, sem
sé námsferlið sjálft.
Viðfangsefni ráðstefnunnar eru
ijölþætt og kaus undirbúnings-
nefndin að velja fremur stutt
erindi og mörg en fá og ýtarleg.
Var það meðal annars vegna þess
að við töldum að verið væri að
opna umræðu en ekki draga saman
að afloknu starfi. Við höfum
leitað til flölmargra fyrirlesara
og allajafna gengið vel að fá til
liðs við okkur fólk sem þekkt er
sem sérfræðingar á sínu sviði og
þakka ég fyrirlesurum fyrir góð
viðbrögð. Á einu sviði tókst þó
verrtil en skyldi. Ákveðiðvarað
fella móðurmálsnám og málanám
6 - Tölvumál