Tölvumál - 01.10.1991, Page 12
Október 1991
margstroka út af því, svitna smá
ofan á það, og jafnvel tár hafa
runnið. í tölvunni verður endan-
lega útkoman eins og frá færustu
skrifstofudömu, stafirnir jafnir,
engir svartir blettir og engar
ójöfnur vegna bleytu.
Þegar nemandinn notar
ritvinnsluna þá upplifir hann:
(Les mynd 4.).
Árið 1990 gerði Marit Helgheim
rannsókn á vegum sérkennara-
háskólans í Osló. Hún tók fyrir
sextán nemendur í framhaldsskóla
sem áttu við lestrar- og
skriftarörðugleika að stríða.
Verkefnið stóð ífimm mánuði. í
upphafi tímabilsins voru nem-
endur látnir taka stafsetningarpróf
sem síðan var endurtekið að
tímabilinu loknu. í millitíðinni
unnu þeir öll sín heimaverkefni,
ritgerðir og stfla á tölvu. Það
kom í ljós á seinna prófínu, að
villurnar voru helmingi færri
(50%) en á því fyrra. Það kom
einnig í ljós að handskrift
nemendanna og lestur batnaði á
þessu tímabili. Framfarir á einu
sviði yfirfærast á annað.
Ég þekki af langri reynslu að til
þess að nemandi nái sér frá stigi
3 yfir í stig 4 og uppúr má gera
ýmislegt, til dæmis láta nemanda
rita inn tilbúinn texta sem gjarnan
má vera innan áhugasviðs hans.
íþróttafréttir úrdagblöðum, ljóð
sem honum eru kær eða hvað
sem er eins og skrifa bréf til
ijarstadds vinar eða ættingja og í
rauninni getur kennari notað hvað
sem er bara að nemandinn hafi
áhuga á því.
Æskilegt er að nemandinn læri
fmgrasetninguna sem fyrst. Það
veitir honum öryggi og hraða
þannig að hann getur einbeitt sér
að innihaldi þess sem hann er að
skrifa, stafsetningu, uppsetningu
o.fl. Tölva með ritvinnslukerfi
sem hjálpartæki fyrir þá sem
eiga við lestrar- og skriftar-
örðugleika að etja kemur ekki í
stað handskriftar. Það er ekki
spurningin um annaðhvort - eða,
heldur hvorutveggja.
í þeim skólum og heimilum, sem
á annað borð eiga :ölvur, þá eru
oftast til ritvinnslukerfi líka.
Þannig erum við með mjög öflugt
verkfæri í höndunum til að hjálpa
stórum hluta nemenda á hvaða
stigi skólakerfisins sem þeir eru.
Töfraforritið er fundið!
- MEIRA ÖRYGGI,
sem er grundvöllur allra framfara í námi.
- AÐ ÞAÐ ER EINFALT AÐ LEIÐRÉTTA,
það þarf líka aðeins að leiðrétta villurnar en ekki hreinskrifa allt.
- ÞAÐ MÁ REYNA OG MISTAKAST,
enginn veit um villurnar sem þú hefur gert.
- ÞAÐ ER HÆGT AÐ SKRIFA í BELG OG BIÐU,
það þarf ekki strax að einbeita sér að stafsetningarvillunum og
uppsetningu textans heldur er hægt að láta sköpunargáfuna
ráða ferðinni.
- STAFSETNINGIN BATNAR
- VERKEFNIÐ VERÐUR LÆSILEGRA
- ÞAÐ ER BETRA AÐ LESA TÖLVUSKRIFT EN HANDSKRIFT
- AUÐVELDAR ÚRVINNSLU SKRIFLEGRA VERKEFNA HJÁ NEMENDUM
SEM HAFA LÍTINN MÁTT í HÖNDUNUM EÐA ERU SPASTISKIR.
Mynd 4.
12- Tölvumál