Tölvumál - 01.10.1991, Síða 29
Október 1 991
er um að ræða samvirkan aðgang
að miklu magni upplýsinga í
gegnum tölvu: tónlist, hljóð,
myndir, texti, svo eitthvað sé
nefnt. Upplýsingarnar geta verið
á einum stað (á geisladisk t.d.)
og/eða út um allt (tölvufjarskipti).
Þessi tækni býður upp á enn
meiri möguleika í kennslu og
námi en tækni sú er áður var
nefnd.
Þessi tækni hefúr ekki verið þróuð
sérstaklega með tilliti til kennslu,
þó auðvitað séu hér ómældir
möguleikar til kennslunota, held-
ur hefur aðalhvatinn verið tón-
listariðnaðurinn, og hinn almenni
notandi - þar eru peningarnir.
Þessi bylting hefur ekki náð að
hreyfa við hefðbundinni tónlistar-
kennslu svo neinu nemi. Þó er
næsta víst að áhrifa mun gæta í
tónlistarkennslu, nokkuð óháð
því hvert álit tónlistarkennara er
á þessari tækni.
Tónlistarkennsla
Þau tónlistarkennsluforrit sem
gerð hafa verið, og fjöldi þeirra
fer hraðvaxandi þó notkun þeirra
sé ekki mikil, hafa flest snúist
um utanbókarlærdóm, þjálfun og
prófún (t.d. hefðbundna tónffæði
og tónheyrn). Þó þessa tækni
megi augljóslega nota við þessa
þætti kennslunnar, þá eru mun
áhugaverðari þeir möguleikar sem
þessi tækni opnar til að sinna
sköpun ýmiss konar sem almennt
hefúr verið ffekar afskiptur þáttur
tónlistarkennslu. Þessir mögu-
leikar og útfærsla þeirra er að
mestu ókannað land, engu háð
nemahugarflugi kennarans, sem
er einmitt það sem gerir þessa
hluti hvað mest spennandi.
Nokkrar hugmyndir:
1. Það verður æ auðveldara að
vinna með tónlist/hljóð líkt og
t.d. liti, leir eða annað efni sem
má blanda, móta og forma að
vild. Þannig má vinna með
hljómblæ, (búatil og/eðabreyta
hljóðum, semja hljóðverk), hryn,
tón eðahvaða aðraþætti tónlistar
sem vill. Afraksturinn má geyma
eða, á yngri stigum, taka heim á
snældu, disklingi eða í einhverju
öðru formi.
2. Hljóðfærahönnun er annað
dæmi. Nemandinn býr til, ekki
bara hljóð, heldur útfærir notkun
þeirra líkt og um hljóðfæri væri
að ræða.
3. Þessu (þ.e. hljóðsköpun og
hljóðfærahönnun) má svo blanda
saman við annað skapandi starf:
hreyfíngu, ljóðagerð, sögur
o.s.frv.
4. Loks má nefna það sem kalla
má"höndlun". Hér er átt við að
nálgast (höndla) tónlistina líkar
því sem þjálfaður tónlistarmaður
gæti gert er hann vitnar í tónlistina
(spilar) eða nóturnar máli sfnu til
stuðnings. Það er, með hjálp
tölvu má greina, merkja, klippa
niður tónlistina sjálfa (eftir
eyranu), nóturnar (effir auga og/
eða eyra) eða texta tengdan
viðfangsefninu (ritvinnsla) mun
auðveldar en áður.
Almiðlun
Mér vitanlega hafa verið unnin
Qögur kennsluverkefni þar sem
sumir möguleikar almiðlunar eru
nýttir: Níunda Sinfónía
Beethovens, Strengjakvartett
númer 114 eftir Beethoven,
Töfraflauta Mozarts og Vorblótið
Stravinskis. Hér er um að ræða
geisladisk, einn eða fleiri,
(stundum disklingar að auki) er
geyma hágæða upptöku af
tónverkinu, greiningu einhvers-
konar, tóndæmi og upplýsingar
um tónskáldið og verkið.
Umhverfíð sem notandinn vinnur
í er HyperCard og er hægt að
valsa að vild um þær upplýsingar
sem fyrir hendi eru. Þessi verkefni
hafa fengið góða dóma og má
vænta fleiri slfkra.
Gagnasöfnun
Ef verkefni er unnið á tölvu er
ekki aðeins hægt að stjórna
nákvæmlega hvaða upplýsingar
nemandanum eru fengnar, hversu
mikill tími er veittur o.s.frv.,
heldur má láta tölvurnar fylgjast
mjög nákvæmlega með hvernig
nemandinn ber sig að og glímir
við verkefnið. Hér er ekki
endilega átt við upplýsingar sem
auðvelda einkunnagjöf, heldur
hluti eins og hvað er gert hvar,
hvenær og hvernig. Þannig má
að einhverju leyti skoða ferlið,
þ.e. hvemig verkefhið var unnið,
auk þeirra svara eða niðurstaðna
sem nemandinn veitir.
Að lokum
Þessi tækni sem aðeins hefúr
verið tæpt á hér að ofan hefur
ekki náð að hreyfa við menntun
tónlistarkennara frekar en annarri
tónlistarmenntun. Kennarar
verða því að taka frumkvasðið ef
þeir vilja nýta sér þá möguleika
sem hér em í boði. Það væri því
við hæfí að þeir sem áhuga hafa
stofni til kynna sín á milli, ef til
vill er grundvöllur fyrir áhugahóp
um notkun þessarar tækni í
tónlistarkennslu - hugmyndin er
auðvitað jafngild fyrir aðrar
námsgreinar. Einnig væri nauð-
synlegt að koma á fót aðstöðu,
einskonar banka eða safni, t.d. í
Námsgagnastofnun eða Kennara-
háskólanum, þar sem hægt væri
að skoða þau forrit sem til eru.
Þarna væri kominn tilvalinn
vettvangur fyrir þá sem forrita,
að koma verkum sfnum á framfæri
við kennara.
29 - Tölvumál