Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1981, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1981. DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1981. 23
íþróttir íþróttir íþróttir fþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
IWanfred Stevens
Stevens
í Súdan
KR-ingar fengu á dögunum
skeyti frá Manfred Stovens —
Enska þjálfaranum, sem þjálfaði 1.
deildarlið þeirra i knattspvrnu sl.
sumar. Stevens var ánægður með
tiiveiuna — hann er nú þjálfari i
Súdun þar sem hann kann mjög vel
við sig.
-SOS.
Sfórsigur
Skagamanna
Akurnesingar sigruðu nýliða
Skallagríms fyrir nokkrum dögum
36—11 i 3. deild handknattleiks
karla. 18—6 i hálfleik. Bjarni
landsliðsmarkvörður í knattspyrn-
unni Sigurðsson var markhæstur
Skagamanna með 8 mörk. Pétur
Ingólfsson og Þórður Elíasson
skoruðu 7 mörk hvor. Kristján
Hannibalsson 5. Hjá Borgnesingum
var Sverrir Stefánsson markhæstur
með 4 mörk. Þorsteinn Gunnarsson
skoraði þrjú.
-hsím.
Innanhúss-
knaffspyrna
Reykjavíkurmótið í knattspyrnu
innanhúss verður háð í Laugardals-
höilinni 4. janúar.Nú er búið að
draga í riðla og varð drátturinn
þannig: A-riðill: KR, Eram, Þróttur
og Valur. B-riðill: Víkingur, Fylktr
og Ármann.
-SOS.
KR mætir Va!
KR og Valur mætast í Úrvals-
deildinni í körfuknattleik í Haga-
skólanum i kvöld kl. 20.00. Það má
búast við spennandi og fjörugum
leik eins og alltaf þegar liðin hafa
leikið undanfarin ár.
s^öru^un lngóffs óskarssonar
Póstsendum Klapparstíg 44. - Sími 11783.
Átt þú þitt uppáhaldslið?
sem Jiefur leikið vel með Bayem Miinchen
Frá Guðna Bragasyni — fréttamanni
DV í Múnchen.
— Ásgeir Sigurvinsson hefur leikið
mjög vel með Bayern Múnchen að und-
anförnu — loksins þegar hann hefur
fengið tækifæri hjá Pal Scernai, þjálf-
ara Bayern. Ásgeir átti stórgóðan leik
gegn Árminia Bielefeld sl. laugardag —
þegar hann lék við hliðina á Paul
Breitner á miðjunni.
Eftir leikinn fékk hann mjög góða
dóma í blöðunum, sem hafa verið á
hans bandi — í „taugastíðinu” á milli
Ásgeirs og Csernai. Þá var viðtal við
Csernai, þar sem hann fer mjög lof-
samlegum orðum um Ásgeir og er
greinilegt að þessi skapstóri þjálfari er
farinn að meta hæfileika Ásgeirs.
Blöðin hér segja að Ásgeir verði betri
og betri með hverjum leik — sendingar
hans séu stórglæsilegar.
Ásgeir var í byrjunarliðinu hjá
Bayern, sem átti að leika gegn Bochum
í gærkvöldi í Múnchen, en þeim leik
þurfti að fresta, þar sem mikið snjóaði
í Múnchen í gær.
-GB/-SOS.
«c
Ásgeir Sigurvinsson
^ Bjarni Guðmundsson og Viggó Sigurðsson áttust við í Nettelstedt — skoruðu sitt markið hvor.
Þjálfari Bayern
hrósar Ásgeiri
Ragnar Margeirsson
til Cercle Brugge
—Æf la að kynna mér aðsfæður hjá félaginu,
segir Ragnar Margeirsson
Það getur farið svo að tveir
íslenzkir landsliðsmenn í knatt-
spyrnu leiki með CS Brugge í
Belgiu efir áramótin — Sævar
Jónsson, miðvörður úr Val,
sem leikur með CS Brugge sem
lánsmaður út keppnistfmabilið
og Ragnar Margeirsson,
sóknarleikmaðurinn sterki frá
Keflavík.
—Ég reikna með að fara til Belgíu
fljótlega eftir áramót, þar sem forráða-
Skíðagöngumóf
í Hlíðarfjalli
Skíðagöngumenn eru nú byrjaðir
að æfa á fullum krafti fyrir HM-
keppnina I skiðagöngu sem fer fram í
Osló í febrúar. Allir beztu göngu-
menn landsins verða í sviðsljósinu á
Akureyri um helgina en þá fer fram
göngumót í Hliðarfjalli. Magnús
Eiríksson, Siglufirði, Einar Óiafsson,
ísafirði, og Olafsfirðingarnir Haukur
Sigurðsson, Gottlieb Konráðsson,
Finnur Víðir Gunnarsson og Jón
Konráðsson taka þátt i keppninni.
-SOS.
menn félagsins hafa sýnt áhuga á að fá
mig til æfinga, sagði Ragnar í stuttu
spjalli við DV í gærkvöldi.
Það var Willy Reinke sem hafði sam-
band við Ragnar og sagði honum frá
áhuga forráðamanna CS Brugge. — Ég
hef áhuga að fara og kynna mér
aðstæður i Brugge og ræða við for-
ráðamenn félagsins, sagði Ragnar.
Sævar Jónsson heldur til CS Brugge
27. desember og þá mun Lárus Guð-
mundsson einnig fara til Belgíu sem
lánsmaður hjá Waterschei. Þeir Sævar
og Lárus koma svo aftur -til íslands í
vor, ef ekki verður af áframhaldandi
veru þeirra í Belgíu.
-SOS.
Ragnar Margeirsson markaskorarinn
mikli frá Keflavík.
„Islendingaslagur”
í Nettelst edt
Bjarni og Viggó mættust í gærkvöldi í V-Þýzkalandi og fór
Nettelstedt með sigur af hólmi, 18-16
Bjarni Guðmundsson og fél-
agar hans hjá Nettelstedt unnu
sigur (18:16) yfir Viggó Sig-
urðssyni og féiögum hans i
,,Bundesligunni” í handknatt-
leik í gærkvöldi — í Nettel-
stedt. Það var stiginn mikill
darraðardans undir iok leiks-
ins, því að leikmenn Leverku-
sen voru með knöttinn þegar
staðan var 17:16 — en þeir
misstu hann frá sér þegar 20
sek. voru til leiksloka og þökk-
uðu leikmenn Nettelstedt fyrir
Sigurhjá Spánverjum
Spánverjar unnu sigur (2:0) yfir Belgíumönnum i vináltulandsleik sem fór
fram i Valencia í gærkvöldi. 40 þús. áhorfendur sáu Satrustegui skora
bæði mörkin — á 8. og 87. mín.
Schuster íhnéaðgerð
V-þýzki landsliösmaðurinn í knattspyrnu, Bernd Schuster, sem leikur með
Barcelona á Spáni, mun gangast undir skurðaðgerð á hné nú næstu daga á
sjúkrahúsi í Köln og verður hann frá keppni í þrjá mánuði. -SOS
sig og skoruðu.
Það bar lítið á félögunum Bjarna og
Viggó í leiknum, sem þótti ekki vel leik-
inn — þeir skoruðu sitt markið hvor.
— Við vorum ánægðir að tapa ekki
með meiri mun, því að Nettelstedt er
erfitt heim að sækja, sagði Viggó
Sigurðsson í stuttu spjalli við DV í gær-
kvöldi. Viggó sagði að það hefði verið
mikið rót á leikmönnum Leverkusen
sem mættu til leiks undir stjórn nýja
þjálfarans, Zoran Ziric. — Við vorum
ákveðnir að standa okkur vel og getum
við verið sæmilega ánægðir með leik-
inn þótt ekki hafi okkur tekizt að vinna
sigur, sagði Viggó.
2.500 áhorfendur sáu leikinn — og
var allt á suðupunkti undir lokin, þegar
leikmenn Leverkusen áttu tækifæri til
að jafna metin, en þeir þoldu ekki
spennuna.
-sos
BIKARINIM
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 14
SÍMI 24520
Jóhannes
sferkur í loflinu
— þegar Hannover % fryggði sér jafnf ef li gegn Fortuna Köln.
Janus Guðlaugsson er meiddur
Jóhannes Eðvaldsson átti ágætan
leik með Hannover 96 gegn Fortuna
Köln í gærkvöldi þegar liðin gerðu
jafntefli 2:2 í Köln. Janus Guð-
laugsson lék aftur á móti ekki með
Fortuna, þar sem hann á víð
meiðsli að stríða — tognaði í nára á
dögunum og verður frá keppni
fram í janúar.
Það reyndi ekki mikið á Jó-
hannes en hann var með góðar stað-
setningar og var sterkur í skallaein-
Jóhannes Eðvaldsson
'vígjum, eins og alltaf. Þá fór hann
fram í sóknina, þegar auka- og
hornspyrnur voru teknar.
Hannover 96 skoraði fyrst í
leiknum, en leikmenn Fortuna Köln
svöruðu með tveimur mörkum.
Jóhannes og félagar náðu svo að
tryggja sér jafntefli undir lok
leiksins. -SOS.
ÞA VITIÐ ÞIÐ ÞAÐ!
Það hefur löngum verið
deiluefni I íþróttunum hvort hollt
sé fyrir íþróttafólk að njóta ,,ást-
arleikja” kvöldið eða nóttina
fyrir keppni. Hafa verið mjög
skiptar skoðanir um þá hollustu
bæði meðal lærðra sem og leikra
og sitt sýnist hverjum.
En nú hefur fengizt ótvírætt
svar við þessari brennandi
spurningu. Læknar við
Oklahoma University í Banda-
ríkjunum fundu það með því að
tvö þekkt lið til liðs við sig daginn
fyrir mikilvægan leik á milli
þeirra.
Leikmenn „Minniesota
Vikings” voru útilokaðir frá
konum sínum og kærustum en
leikmenn „Pittsburgs Steeler”
fengu hins vegar að njóta hins
ljúfa lífs nóttina fyrir leikinn.
Útkoman úr þessari
„rannsókn” fór ekki á milli
mála. Stáldrengirnir frá Pittsburg
tóku Víkingana frá Minniesota í
algjöra kennslustund ... í
íþróttinni að sjálfsögðu ... og
sigruðu þá 16:0.
-klp-
ÞEIR
ÆFAÍ
N0REGI
íslenzku landsliðsmennirnir í
alpagreinum á skiðum héldu nýlega
til Geilo i Noregi til æfinga. Með
þeim fór landsliðsþjálfarinn Karl
Frímannsson. Myndin að ofan var
tekið rétt áður en strákarnir héldu
utan. Frá vinstri Karl, Atli Einars-
son, Guðjón Ólafsson, Sveinn
Aðalgeirsson og Árni Árnason.
DV-mynd GVA.
Víkingará
Akureyri
íslandsmeistarar Víkings í hand-
knattleik verða í sviðsljósinu á
Akurcyri i kvöld, er þeir mæta KA i
íþróttaskemmunni kl. 20.
Einn leikur verður i 2. deildar-
keppninni — Haukar mæta ÍR i
Hafnarfirði kl. 20.
SKÍÐI
og bindingar
VR 17 barnaskíði kr. 595,-
VR 15 unglingaskíði kr. 695,-
VR 17 keppnisskíði ungiinga kr. 1.245,
CD 3 Compact fuiiorðinna kr. 912,-
CDR Compact fullorðinna kr. 985,-
CD 7 Compact fullorðinna kr. 1.295,-
MD 4 Medium fuiiorðinna kr. 1.355,-
VR 15 BT keppnisskíði kr. 1.760,
VR 17 keppnisskíði kr. 2.100,-
Póstsendum
BIKARINN
SALQMQIM
Skólavörðustíg 14. — Sími24520.
Verð frá kr. 416,- tii 1.050,-