Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1981, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1981.
5
Skreiöin safnar fúlg-
um i verðjöfnunarsjóð
samtmun minna en vonað varíársbyrjun
Seðlabúntunum í skreiðardeild verð-
jöfnunarsjóðs fískiðnaöarins hefur
fjölgað drjúgt það sem af er árinu og á
skreiðarverkunin nú orðið þar varasjóð
upp á43,7 milljónir króna, sem er 25,6
milljónum meira en í ársbyrjun. Þá
Á þessu ári hefur fíkniefnadeild lög-
reglunnar í Reykjavík afgreitt um 300
mál, þar af liðlega 30 dóma samkvæmt
ákærum. í fyrra voru afgreidd 285 mál
er aukningin því ekki ýkja mikil.
voru raunar vonir bundnar við ennþá
meiri seðlasöfnun í þessa deild, en
skreiðarverðið hefur ekki reynzt eins
hátt og gert var ráð fyrir.
Saltfiskdeildin stendur einnig þokka-
lega með 28,2 milljónir og hafa 9,2
Endanlegar tölur um afgreiðslu mála á
árinu verða þó ekki til fyrr en um ára-
mót. Eru tveir menn nú að vinna við að
gera skrá um afgreidd mál.
-ELA.
milljónir bætzt við í ár. í saltsíldardeild
eru 1,6 milljónir. Síldar- og fískimjöls-
deild er nærri tóm, þar eru þó enn 700
þúsund krónur (ein milljón vegna
fiskimjöls, 270 þúsund vegna kol-
munna- og spærlingsmjöls og 900 þús-
und vegna síldarmjöls og lýsis, en hins
vegar vantar næstum 1,5 milljónir
vegna loðnumjöls og -lýsis).
í deildum frystra fiskafurða er
ástandið æði misjafnt. Þannig er inni
14,1 milljón vegna humars, 11,0 millj-
ónir eru þar vegna hörpudisks og 4,5
vegna rækju', og hefur talsvert bætzt
við á árinu vegna tveggja fyrrnefndu
tegundanna en rækjupeningunum
hefur á hinn bóginn fækkað ískyggi-
lega. Freðfiskdeildin er svo bágast
stödd því í hana vantar 28,5 milljónir.
Þessar tölur eru miðaðar við 1.
október og eru að nokkru leyti áætlað-
ar.
Ennþá hefur ekki verið gengið frá
greiðslu í verðjöfnunarsjóð vegna
gengisuppfærslunnar frá í ágúst. Hún ái
að koma freðfiskdeildinni á réttan kjöl
með 29,0 milljóna búnti, þótt hún ætti
ekki að fá nema 13,0—14,0 milljónir.
Hinar deildirnar fá því minna sem
þessu munar, en alls eiga 36,7 milljónir
aðrennaísjóðinn.
-HERB.
Að jafnaði 45manns atvinnu-
lausirá Akureyri ísl. mánuði
73 menn voru atvinnulausir á ar hafi að jafnaði verið atvinnulausir
Akureyri um sl. mánaðamót, 65 karl- í mánuðinum. 72 atvinnuleysisbóta-
ar og 8 konur. í nóvembermánuði vottorð voru gefin ú% í mánuðinum
voru skráðir 950 atvinnuleysisdagar. með samtals 607 heilum bótadögum.
Svarar það til þess að 45 Akureyring- -GS/Akureyri.
Þrjú hundruð fíkni
efnamál á árinu
— hjá f íknief nadeild lögreglunnar
• 3-bylgju útvarpstœki
• Föst stilling á FM
• Magnari 2x55 vött
• Reimdrifinn plötuspilari
• Magnetic pickup
• Hraöastillir ó spilara
• Gull/silfraður litur
• Styrkleikamœlir
• Dolby sia
• Sjólfvirkt stopp á spilara
• Sía fyrir háa og lága tóna
• Stereomulti rofi
• Fyrir venjulegar COz
• AFC
• Loudness
• Bassa- og hátónastillir
Þetta er mikið, sem þú fœrð fyrir peningana í kaupum á þessu glæsilega tæki
Verð kr. 9,243,00 staðgreitt
EINAR FARESTVEIT i. CO. HF
8ERGSTAOASTRÆTI I0A - SlMI 16995
c? Við eigum
hjarta
handa þér
Einstaklega
fallega
skreytt
lítil
hjörtu.
Verd kr.
105,-
til 160,-