Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1981, Blaðsíða 2
Útvegsbankinn gaf skákmönnum
höfðinglega jólagjöf með hraðskák-
móti sem fram fór í gærdag.
Meðal keppenda, sem samtals voru
átján, voru allflestir sterkustu skák-
menn landsins. Veitt voru peninga-
verðlaun að upphæð samtals átján
(rúsund krónur.
Röð efstu manna varð þessi: Friðrik
Ólafsson 15, Helgi Ólafsson 13 1/2,
Jón L. Árnason 13, Margeir Pétursson
12, en í 5.—7. sæti lentu Guðmundur
Pálmason, Bragi Kristjánsson og Bene-
dikt .lónasson.
-JB.
Albert Guömundsson, formaður banka-
ráds Útvegsbankans, afhendir Friöriki
Ólafssyni sigurverðlaunin (DV-mynd
Bjarnlcifur).
Styttist íf rumsýningu íslenzku óperannar
Þorleifsdóttir, margreyndur leikstjóri
hér sunnan og norðan heiða, sem tók
,,Það hafa verið haldnir samninga-
fundir, en samningar hafa ekki tek-
izt. Það hefur þó þokazt í samkomu-
lagsátt og ég get ekki annað en verið
bjartsýnn á að samningar takizt,”
sagði Haraldur Hannesson, oddviti
Hrafnagilshrepps, í samtali við D&V.
Ágreiningur hefur verið milli
Hrafnagilshrepps og Hitaveitu Akur-
eyrar um heitavatnsréttinn í landi
Hrafnagils. Telja ráðamenn hrepps-
ins, að sjálfrennandi heitavatnslindir,
sem notaðar voru til að hita upp
skólamannvirki á Hrafnagili, hafi
þornað samhliða borunum Hitaveit-
unnar í Hrafnagilslandi og kröftug-
um dælingum í borholum að Lauga-
landi, handan fjaröarins. Vilja
hreppsnefndarmenn Hrafnagils-
hrepps fá samsvarandi vatnsmagn og
lindin gaf endurgjaldslaust frá hita-
veitunni. Á þetta hefur hitaveitan
ekki viljað fallast. Hafa þeir aðeins
boðið brot af því vatnsmagni sem
hreppsnefndarmenn vilja fá í bætur,
að sögn Haraldar. Þar stendur hníf-
urinn í kúnni enn sem komið er.
Til að leggja áherzlu á kröfu sína
hefur hreppsnefnd Hrafnagilshrepps
höfðað mál á hendur Helga M.
Bergs, bæjarstjóra á Akureyri, fyrir
hönd hitaveitunnar. Höfðar hrepps-
nefndin málið til að fá ógilda samn-
inga hitaveitunnar við Hjalta Jóseps-
son, bónda að Hrafnagili, um heita-
vatnsréttinn í landi Hjalta. Telja
hreppsnefndarmenn, að hreppnum
hafi ekki verið boðin forkaupsréttur
að heitavatnsréttinum, eins og lög
mæla fyrir um. Þess vcgna vilji þeir
ganga inn í umræddan samning í stað
Hitaveitu Akureyrar. Ráðamenn
hitaveitunnar hafa hins vegar bent á,
að hér sé ekki um sölusamning að
ræða, heldur leigusamning. Þess
vegna hafi ekki þurft að bjóða
hreppnum forkaupsrétt, enda hafi
samningurinn verið þinglýstur at-
hugasemdalaust við bæjarfógeta-
embættið á Akureyri, eins og gert
hafi verið með aðra hliðstæða samn-
inga við Iandeigendur í öngulstaða-
hreppi. Stefna Hrafnagilshrepps var
dómfest í bæjarþingi Akureyrar, en
málinu síðan frestað fram í janúar.
„Á meðan samningaviðræður
halda áfram, dugir ekki annað en
vera bjartsýnn. Viðræðurnar hafa
þokað málinu í samkomulagsátt og
næsti samningafundur verður vænt-
anlega haldinn í vikunni,” sagði Vil-
helm Steindórsson, hitaveitustjóri á
Akureyri, i samtali við DV.
-GS. Akureyri
„Frumsýning er ákveðin hjá okkur
9. janúar og er allt að verða tilbúið
fyrir hana,” sagði Garðar Cortes
söngvari í samtali við DV um íslenzku
óperuna, sem nú er að líta dagsins Ijós.
Upphaflega stóð til að frutnsýna
fyrsta verkið.m Sígaunabaróninn eftir Jo-
hann Strauss, á nýársdag. Því varð að
fresta þar sem hinn austurríski leik-
stjóri er ráðinn var til óperunnar reynd-
ist miður en skyldi og þurfti að kalla
annan til verksins. Það er Þórhildur
að sér stjórnunina.
Að sögn Garðars eru það um niutíu
manns sent laka þátt í sýningunni, þar
af tæplega l'jörlíu manna hljómsveit
skipuð hljóðfæraleikurum úr Sinfóniu-
hljómsveit íslands. Hljómsveitarsljór-
inn er þýzkur, Maschat að nafni, en
konsertmeislari Helga Hauksdóitir.
í helztu hlutverkum eru Ólöf Kol-
brún Harðardóttir, Anna Júlíana
Sveinsdóttir, Halldór Vilhelmsson,
Elísabet Erlingsdóttir, John Speight og
þrir nýir söngvarar, Kristinn Sigmunds-
son, Ásrún Davíðsdóttir og Stefán
Guðmundsson, auk Garðars sjálfs.
Miklar breytingar þurfti að gera á
Gamla bíói, sem verður nú fyrsta
óperuhús íslendinga. Til stendur að
lialda þar fjórar sýningar í viku og
verður húsið jafnframt opið tónlislar-
mönnum til tónleikahalds.
Stefnt er að því að færa upp aðra
óperu með vorinu og að árlega verði
sett upp þrjú verk i nýju óperunni. -JB
Erfiðleikar
íVestfjarðaflugi:
Nærri 50
misstuaf jól
unum heima
Talsvert bras var i Vestrjarðaflugi
fyrir jóladagana og í fyrradag og prðu
nærri 50 manns strandaglópar á að-
fangadag.ýinist á ísafirði, Þingeyri eða
í Reykjavík. Slór hópur komst hins
vegar á milli seint á Þorláksmessu með
tveim vélum Flugleiða.
í gær biðu um 150 manns á ísafirði
eftir að komast suður og öllu fleiri biðu
þá syðra eftir fari veslur. Þá var komið
blíðviðri á öllu vestanverðu landinu og
reiknað með því að þrjár Flugleiðavélar
færu á milli.
Sandkorn
Sandkorn
Sandkorn
Frá bókadeild Hagkaupa er
hún opnaði I fyrra.Ösin var
með ólfkindum þar I gær.
Útúrfullt!
Hagkaupum.
Fólki var eindregið benl á
hér i Sandkorni f gær að
gleyma ekki að gæta að því
hvort „skiptibók" stæði á
þeim bókum, sem fólk hafði f
huga að skipta. Öðrumj
bókum væri nefnilega ekki
skipt aðöilu jöfnu.
í gærdag var röð út úr-
dyrum í Hagkaupum
meginhluta dagsins. Var þar
fólk sem vildi skipta bókum
sínum. Þeir Hagkaupsmenn
settu það ekld fyrir sig hvort
„skiptimiðar” fylgdu með
eður ei — skiptu einfaldlega
öllum þeim bókum, sem þeir
höfðu verið með i sölu. Giltl
þá einu hvort fólk vlldi fá
aðrar bækur eða eitthvað
annað. Voru brögð að þvl að
menn kæmu með matföng út
úr húsinu f bóka stað.
Höfum við það fyrir satt
að fólki hafi unnvörpum ver-
ið vísað frá bókaverzlunum
og sagt að fara upp f Hagkaup
— þeir skiptu öllu þar.
6000 glös föm ð
einum mánuði
Það er orðið nokkuð langt
síðan skemmtlstaðir borg-
arinnar hafa verið hér á dag-
skrá. Okkur varð nokkuð
tiðrætt um nýja staðinn,
Broadway. Greindum við
frá þvf hér i Sandkorni fyrir
allnokkru að óeðlilega mörg
glös hefðu brotnað fyrstu
dagana enda mörlandlnn
óvanur slíkum flottheitum,
sem þar fyrirfinnast. Nú
hefur það verið haft fyrir satt
að glösin, sem brotnað hafa á
þeim eina mánuði frá því
staðurinn var opnaður, séu
um 6000 talsins. Með sama á-
framhaldi gera þetta um
70.000 glös á ári. Virðist þvi
vera kominn grundvöllur fyrir
litla glasaverksmiðju hér-
lendis. Gárungarnir vilja nú
nefna skemmtístaðinn
BROTWAY.
Jólabækurnar freista jafnt
ungra sem aldinna.
unnur utget-
endasamtak?
Og enn um bækur. Sand-
korn hefur fregnað það að nú
sé jafnvel f bígerð stofnun nýs
útgefendafélags f bóka-
hransanum. Þeir sem hafa
töglin og hagldirnar i félagi
bókaútgefanda eru þeir sem
ráða yfir smásöluverzlunum.
Hinir munu ekki alllr vera á
eitt sáttir með fhaldssemina
sem ku ríkja hjá þessum á-
gætu mönnum, og hafa í
hyggju, að mynda eigin
samtök. lðunn er stærsta
bókaforlagið, sem ekki á smá-
söluverzlun en mörg útgáfu-
fyrirtæki, stór og smá, eru
einnig undir sama hatti.
Ein bið klukkan
hðtfþrjú
Myndbandaæðið virðist
engan endi ætla að taka.
Stöðugt bætisl við þann
ótölulega fjölda landsmanna
sem hefur aðgang að mynd-
böndum — ýmist
sameiglnlegum með öðrum
fbúum í nærliggjandi hverfi
eða þá i einkatækjum.
Hefur fólk af þessum sök-
um verið ærlð slæpt á
morgnana eftir að hafa glápt
á skjáinn i elna þrjá tima eftir
að dagskrá RUV lauk.
Góðvinur Sandkorns kom í
eitt slfkt hús fyrir nokkru á
sunnudagsmorgni. Barst
eitthvað i tal hversu slappt
heimilisfólkið væri til hells-
unnar.
— Voruö þið að horfa á
vídeóið f nótt?
— Nei, nei. Við erum bara
hálfslöpp, fórum snemma að
sofaog. . .
Samtalið fékk skyndilegan
endl er gall i sex ára fjöl-
skyldumeölimi: — Það var
ein blá klukkan hálfþrjú. Fer
ekki frekari sögum af sam-
ræöunum.
KA slapp við
alter aðgerðír
Og áfram með bækurnar.
Mikið fjaðrafok varð hjá
bókaútgefendum i fyrra er
Hagkaup tóku að bjóða jóla-
bækurnar á 10% lægraL
verði en aðrir. Fór svo að
bann var sett á fyrirtækið
sem varð að útvega sér bækur
eftir krókaleiðum. Samningar
tókust þó áður en yfir lauk.
Kaupfélag Árnesinga bauð
viðskiptavinum sinum allar
bækur með 10% afslætti allt
frá miðjum nóvember. Ekki
voru neinar aðgerðir gegn þvi
fyrirtæki þótt vitað sé að
bókaútgefendur voru allt
annað en ánægðir. Það er
hreint ekki sama hvort það er
Jón eða séraJón.
Sigurður Sverrisson.
„Get ekki
annaðen
verið
Þokast í samkomulagsátt í deilu
Hitaveitu Akureyrar og
Hrafnagilshrepps
DAGBLAÐIÐ& VISIR. ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1981.
bjartsýnn”
Friðrik mátaói Ingvar Asmundsson i siðustu skákinni og þótti mönnum það vel af sér vikið.
segir Haraldur Hannesson, oddviti — „ a\ r.m*
HrafnagMshrepps Fnonk vafii? Utvegsbankamotiö
herb.