Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1981, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1981, Blaðsíða 8
8 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1981. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Þjóðgarðsverðinum sleppt um áramótin? Brezki kennarinn John Burlison, sem skæruliöar rændu í þjóögarði í Mozambique fyrr i þessum mánuði, kann að verða látinn laus fyrir gamlárs- dag. Talsmaður samtakanna, sem skæruliðarnir eru í — en þau eru and- kommúnistisk — sagði í Lissabon í gær að allt væri gert til þess að fá Burlison lausan fyrir áramótin. Yfir stæði þó rannsókn á tengslum hans við marxistaflokk Mozambique. Hinn 28 ára gamli Burlison var for- stöðumaður Gorongoza þjóðgarðsins í Mið-Mozanbique. Skæruliðarnir tóku hann til fanga i árás sem þeir gerðu á þjóðgarðinn 17. desember. 1 þjóðgarðinum er rekinn skóli og var reikningskennari hans, Chilebúi að nafni Moises Barrillo, tekinn til fanga um leið og Burlison. Burlison hefur verið í Mozambique frá því að Portúgai veitti þessari nýlendu sinni sjálfstæði. Pólskir verkamenn andæfa með tómlæti Gjafir hafa streymt til safnana vegna nauóar Pólverja, og hér sézt einn pakkinn, greinilega merktur manninum er efst hefur verið I huga flestum að undanförnu. lokuö meðan yfirvöld „grisji” starfs- liðið til þess aö ganga úr skugga um hverjir verkamannanna séu áreiðan- legir. Ferðamaður segir þá sögu þaðan að stöðin sé að vísu opin en verka- mennirnir starfi við að ferma og af- ferma sama hlassið aftur og aftur. Þumbast viö Menn sjá reyk koma upp um aðeins einn reykháf við Huta-stáliðjuveriö mikla í Varsjá. Frá FSO-bílaverksmiðj- unni er sagt að starfsmenn dundi sér við að framleiða vélarhluti sem engan veginn falli saman. Bræðsluofnarnir í stáliðjum Kato- wice hafa ekki verið kyntir upp síðan verkamenn slökktu á þeim áður en öryggisverðir brutu á bak aftur verkfall þeirra fyrir nokkrum dögum. Þá hafa þær fréttir borizt frá Pól- landi að þúsundum verkamanna hafi verið sagt upp störfum þegar þeir neit- uðu að segja sig úr samtökum Eining- ar, sem raunar voru bönnuð um leið og herlögin tóku gildi. Vestræn viöbrögö Reagan Bandaríkjaforseti sat í gær á fundum með helztu ráðgjöfum sínum í utanríkismálum þar sem ræddar voru helztu refsiaðgerðir sem Bandaríkja- stjórn hefði tök á að beita við Sovétrík- in fyrir þeirra ábyrgð á atburðunum í Póllandi. í aðalstöðvum NATO í Brussel mátti heyra á diplómötum, að þeir teldu að mjög mundi reynt á einhug banda- lagsríkjanna ef Reaganstjórnin gripi til róttækra ráða gegn Rússum í kjölfar refsiaðgerðanna gegn Póllandi. — í V- Evrópu gætir tregðu til að gera nokkuð það, sem spillt gæti varanlega sambúð austurs og vesturs. 1 síðustu viku afnam Reagan fisk- veiðiundanþágur sem Pólverjar nutu innan bandariskrar lögsögu, og eins leyfi, sem þeir höfðu til þess að fijúga í bandarískri lofthelgi. Piast-námumar i Sílesía, sem hafa verið helzti vettvangur skipulagðrar andspyrnu gegn herstjórninni í Pól- landi, taka til starfa í dag, að því er Varsjárútvarpið segir. Útvarpið segir að umsátrinu hafi lokið í gær þegar allir námamennirnir, sem búið höfðu um sig fyrir tveim •vikum 650 metra niðri í göngunum, komu upp á yfirborðið. Sagði Varsjárútvarpið í gær að öll ríkisfyrirtæki störfuðu orðið eðlilega vélarhluta en helzt væri það skortur á hráefni og samgönguerfiðleikar sem spilltu fyrir. Tvennarsögur Tvennar sögur fara af því hversu eðlilega atvinnuh'fið gangi fyrir sig því að aðrar heimildir, sem fréttalindir vestantjalds styðjast viö, greina frá að enn sé haldið uppi andófi gegn herlög- unum fyrir áskomn Einingar, sem hefur verið bönnuð. Segja þær fréttir að ýmsar mikil- vægar verksmiðjur séu lokaðar eða skili miklu minni afköstum en undir eðlilegum kringumstæðum. Virðist sem slælegar heimtur hafi verið á vinnu- stööum í gær, þegar jólafríið tók enda/ Og sums staöar þar sem menn hafa skilað sér til starfa vinna þeir með hangandi hendi og „tómlæti” að áskomn hinnar bönnuðu verkalýðs- hreyfingar. Nýjar iagasetningar Varsjárútvarpið greindi frá því í gær, að herlagastjórnin íhugaði setningu nýrra laga, sem skylduðu aUa menn á aldrinum frá 18 til 45 ára til þess að starfa. í sjónvarpinu var sagt frá handtöku sjö verkfallsforingja í stáliðjunum í Katowice og tveggja í námunum Wujek þar sem sjö menn voru skotnir til bana í árekstmm við herflokka. Fjórir munu hafa verið handteknir í Ziemowit-nám- unum. — Aðrar fréttir herma siðan að þrír menn hafi verið dregnir fyrir her- rétt í Varsjá fyrir forgöngu um verkfall í FSO-bílaverksmiðjunni. Varsjárútvarpið segir að fleiri verka- menn en þörf hafi verið fyrir hafi skilað sér til starfa í Lenínskipasmíða- stöðinni í Gdansk í gær. Voru margir sendir heim aftur en sagt að mæta til starfa á mánudaginn næsta. — Skipasmíðastöð í Stettin er sögð <--------m Kirkjan hefur verið sá staður, þar sem menn hafa helzt getað hitzt síðan herlögin tóku gildi — án þess að eiga yfir höfði sér handtöku fyrir ólöglegan mann- safnað. Þar hefur fólk aflað sér frétta og getað leitað sér huggunar. Enda spyrst að kirkjusókn hafi aukizt um 100%. PÓLVERIAR FÁ MAT- yiFI | cpA CRF -medvissum W#kLil rilH CDC skilyrðum þó Efnahagsbandalag Evrópu ákvað á fundi í gær að krefjast tryggingar frá pólsku stjórninni fyrir því, að mat- vælasendingar EBE-ríkjanna kæmu eingöngu óbreyttum borgumm til góða. Hér er um að ræða átta þúsund tonn af kjöti, en þessari matvælasend- ingu hefur verið lofað um allnokkurt skeið. Það var á ráðherrafundi Efnahags- bandalagsríkjanna tíu sem ákveðið var að krefjast þess af Pólverjum að ekki aðeins yrðu matvælin notuð innan- lands heldur einnig að trygging yrði sett fyrir því að herstjórnin yfirtæki ekki matvælin og dreifði þeim á meðal her- manna. EBE-ríkin ákváðu fyrir viku að fara aðrar leiðir en Bandaríkjamenn, sem skrúfuðu fyrir alla aðstoð við Pólverja vegna valdatöku hersins í Póllandi. EBE-ríkin vilja hins vegar ekki brauð- fæða pólska herinn, sem beinir byssu- kjöftunum að pólskri alþýðu, og þess vegna var ákveðið að krefjast þessarar tryggingar frá stjórnvöldum í Póllandi. Flóttafólk í hungurverfalli í Flórída Yfir 100 flóttamenn frá Haiti rudd- ust út úr flóttamannabúðum í Miami eftir að óeirðir brutust þar út í gær og leika þeir nú lausum hala. Lögreglan hafði verið kvödd að flóttamannabúðunum, sem liggja á mörkum fenjanna Everglades, en þang- að höfðu safnazt um 700 Haitimenn frá Miami til stuðnings löndum sinum i flóttamannabúðunum. Fólk í búðun- um hefur verið í hungurverkfalii frá því á jólakvöld. Nokkrir aðkomumanna reyndu að komast yfir girðinguna sem umlykur búðirnar. Létu þeir grjóti og tómum flöskum rigna yfir lögregluna sem svar- aði með því að skjóta að þeim táragasi. Inni í búðunum beitti verðir kylfum til þess að hi ndra innisetumenn í að ryðj- ast út. Hið opinbera heldur því fram að enginn hafi meiðzt í þessum átökum. Um 150 menn reyndu að flýja búð- irnar þar sem þeim finnst þeir vera eins og innilokaður fangar. Nokkrir sneru þó aftur en saknaö er 110. Alls eru 550 Haitimenn í hungur- verkfalli í búðunum. Þeir krefjast þess að fá að yfirgefa búðirnar til þess að sameinast vinum og vandamönnum sem búa i Miami, löngu komnir til Bandarikjanna. Dregst enn að yfirvöld ákveði hvort þeir fái að setjast að í Bandaríkjunum eða ekki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.