Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1981, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1981, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1981. 9 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Fyrsta tí1- raunaglasa- bamid fætt í Bandaríkjunum Þrítug kennslukona í Norfolk í Bandaríkjunum eignaðist í gær fyrsta tilraunaglasabarnið sem fæðist í Bandaríkjunum. Var það telpa (2,6 kg), sem tekin var með keisaraskurði, og hefur þegar verið gefið nafnið Eliza- beth Jordan Carr. Læknar fæðingarspítalans í Norfolk sögðu að mæðgunum liði vel. Judith Carr, gift þrítugum verkfræð- ingi, Roger Carr að nafni, fékk egg úr eigin eggjastokki frjóvgað með sæðis- frumu frá manni sínum, en eftir vís- indalegum aðferðum, í apríl síðasta vor. Egginu var siðan aftur komið fyrir í móðurlífinu. Fyrsta tilraunaglasabarn heims, Louise Brown, fæddist í júlí 1980 og á nú von á systkinum því móðir þess er talin ganga með tvíbura sem urðu til með sama hætti. — Síðan hafa átta konur (tvær 1980 og sex 1981) eignazt börn í Bretlandi með þessari tilrauna- glasaaðferð. í Ástralíu hafa tólf konur alið börn eftir þungun með þessum hætti. Walesa í hungurverkfalli á aðf angadag jóla? Jacob Swiecicke, talsmaður pólsku verkalýðshreyfingarinnar í Stokk- hólmi, sagði í gær, að Lech Walesa væri í hungurverkfalli til þess að mót- mæla innilokun sinni. „Ég hafði heyrt að hann hefði byrjað hungurverkfallið fyrir nokkrum dögum.og nú hefi ég fengið vissu mína fyrir því,” sagði Swiecicke. Ekki vildi hann nafngreina heimildir sínar en sagði að Walesa krefðist ferða- frelsis og tækifæra til þess að hitta að máli vini sína og ráðgjafa. Ennfremur hefði Walesa krafizt þess að neyðará- Lech Walesa, „litli hugdjarfi rafvirkinn frá Gdansk”, eins ög „Time” kallar hann, er sagöur hafa byrjað hungurverkfall á aðfangadag. Castro endurkjörinn Þjóðþingið í Havana hefur endur- kjörið Fidel Castro æðstráðanda Kúbu. Castro, sem er aðalfram- kvæmdastjóri kúbanska kommúnista- flokksins, var endurkjörinn forseti ríkisráðsins, sem gerir hann æðsta mann ríkis og ríkisstjórnar. Raul Castro, bróðir hans og varnar- málaráðherra, var kjörinn fyrsti vara- forseti en hinir eru Juan Almeida, Ramiro Valdes, Gullermo Garcia, Carlos Rafael Rodriguez og Blas Roca. — Allir sex eiga sæti í æðsta ráði flokksins. Þjóðþingið, sem á eru 499 fulltrúar, var kjörið af 169 héraðsþingum í síðasta mánuði. Hvert kjörtímabil er fimm ár. standinu yrði aflétt og að öllum föngum, sem handteknir hefðu verið upp úr 13. desember yrði sleppt. Telur þessi málsvari Einingar að Walesa hafi byrjað hungurverkfallið á aðfangadag. Ekki vissi hann hvar leiðtogi Einingar væri hafður i haldi. Þá sagðist Swiecicke hafa spurnir af því að andófsmennirnir Jacek Kuron og Adam Michnik hefðu sætt slæmum barsmíðum í varðhaldi. Micknik, sem er 35 ára sagnfræðingur, var laminn í nýrnastað, þar sem hann var í haldi i Mostowski-lögreglustöðinni í Varsjá — Kuron mun einnig vera hafður þar. Swiecicke segir að Eining starfi neðanjarðar í Varsjá og skori á félaga sína að fara sér hægt í andófinu gegn herlögunum. „Þeir vilja reyna að komast hjáfórnum meðan herlögin eru i gildi en hver verksmiðja á að berjast fyrir lausn sinna félaga, sem teknir hafa verið höndum, og þá með seina- gangi en ekki verkföllum,” segir Swiecicke. Formaður Varsjárdeildar Einingar, Zbgniew Bujak, gengur laus en getur ekki haft sig mikið í frammi þar sem hann er eftirlýstur maður. Talsmaðurinn telur að um 10 þúsund manns séu í haldi eins og sakir standa i Póllandi. Margir fleiri hafa verið handteknir en mörgum er líka sleppt svo til jafnharðan. Þá segist hann hafa öruggar heimildir fyrir því að tveir hers- höfðingjar og 21 yngri liðsforingi auk 400 lægra settra foringja hafi neitað að aðstoða lögregluna við handtökur á verkfallsmönnum Einingar í Radom daginn sem herlögin tóku gildi. Fyrsta tilraunagbsabarn heims, Louise Brown. Myndin var tekin á eins árs afmælisdegi hennar. Hún á nú von á systkinum, sem einnig eru getin með sömu aðferðinni. Flugeldamarkaóir Hjálparsveita skáta ut» flugelda- markaður AÐ GRENSÁSVEGI50 Fjölskyldupokar ákr. 150 og240.- úrval flugelda — blys stjörnuljós o. fí. o. fí. Grensásvegi 50 — 108 Reykjavík — Sími 31290

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.