Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1981, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1981.
11
Mannlíf Mannlíf Mannlíf Mannlíf
Brezkur miðill hjálpar
lögreglunni í Moskvu
við að leysa morðgátu
Ég varð felmtri slegin, er ég sá fyrir
mér morðið á litlu stúlkunni, segir
breski miðillinn Suzanne Padfield, sem
hjálpaði lögreglunni í Moskvu til að
leysa morðgátu. — Sýnin var svo skýr
að ég gat heyrt hvað morðinginn sagði.
Þetta var eins og sjónvarpsmynd.
Sjálfur var miðillinn staddur að
heimili sínu á Bretlandi — 2000 mílum
frá morðstaðnum.
Upphaf málsins var hvarf 9 ára
gamallar telpu, Inu Churin, af skauta-
svelli í úthverfi Moskvuborgar 1979.
Lögreglan gat ekki fundið hana.
Faðir hennar vildi ekki sætta sig við
þau málalok og leitaði til sálarrann-
sóknarfrömuðarins dr. Victors Ada-
menko, sem halði svo samband við sál-
arrannsóknarfélagið í London. í ágúst
1980 fékk Suzanne senda mynd af Inu
ásamt nokkrum skólaverkefnum henn-
ar.
Um leið og Suzanne opnaði bréfið sá
hún endalok litlu stúlkunnar fyrir sér.
Hún sá mann koma til hennar á skauta-
svellinu og bjóða henni heim með sér til
að ,,lita á nýju skautana sína”.
Suzanne skrifaði dr. Adamenko og
lýsti morðinu á þessa leið:
— Er þau komu heim í ibúð manns-
ins tóku þau tal saman, en skyndilega
lagði maðurinn aðra höndina á öxl
telpunnar.
— Hún varð hrædd og reyndi að
hrópa á hjálp. Hann reyndi að róa
hana. Þegar hún reyndi að slíta sig af
honum, barði hann hana í höfuðið.
Hún féll í gólfið, meðvitundarlaus.
Siðan lýsti hún morðingjanum sem
breiðleitum manni um þrítugt, þrekleg-
um manni með brún augu og þykkar
augabrýr. Hún lét þess einnig getið að
hann hefði búið í sama húsi og litla
stúlkan.
Öll þessi lýsing passaði nákvæmlega
við nágranna Inu, sem lögreglan í
Moskvu hafði handtekið, en orðið að
sleppa vegna ónógra sönnunargagna.
í bréfi sínu sagði Suzanne líka
að maðurinn liefði flutt lík telpunnar
með sér í strætisvagni út fyrir borgina.
Hefði hann vafið einhverju bláu ulan
um líkið. Síðan henti hann því í á.
Og reyndar hafði lögreglan i Moskvu
fundið Iik telpu, sem vafið var inn i
blátt teppi í Moskvu-ánni. En það var
þá svo illa farið að ógjörningur
reyndist að sanna hvort það var Ina.
Dr. Adamenko fór með bréfið til
lögreglunnar og er hún tjáði morðingj-
anum vitnisburð miðilsins, gafst hann
upp og játaði. Var hann síðan dæmdur
til dauða og hefur dómnum nú verið
fullnægt.
Draumatæki letingjans
National Arberg, fulltrúar Pana-
sonic í Danmörku, hafa nýlega kynnt
myndsegulbandið NV 7200, sem er
það nýjasta á sviði þeirrar blómlegu
tækni. Má segja að tækið sé óska-
draumur hinna húðlötu þar sem fjar-
stýringin gefur möguleika á 24 mis--
munandi breytingum á tækinu án
þess að eigandinn þurfi nokkru sinni
að rísa upp úr sófa sínum.
M.a. getur eigandinn látið tækið
taka upp mynd af einni sjónvarpsrás
á meðan hann horfir á aðra. NV 7200
er smíðað á álgrind sem tryggir full-
komna nákvæmni í upptökum.
samí
SLAPP
ÓMEIDD
Það fór betur en ú horjðist fyrir
ökumanninum ú fólksbílnum
sem er klemmdur ú milli hinna
tveggja ú meðfylgjandi mynd.
Ökumaðurinn, sem reyndar var
kona, Ruth Clark, fimmtug að
aldri, slapp svo til ómeidd úr
þessum hörkuárekstri en ekki
þarf að taka það fram að bíllinn
hennar er gjörónýtur.
Afbrýöisemi átti snaran þátt í
dauða Natalie Wood
Þær sögur ganga nú ljósum logum í
Hollywood að það hafi í rauninni verið
afbrýðisemi sem leiddi til dauða leik-
konunnar Natalie Wood. Grunaði
hana fastlega að samband eiginmanns
hennar, Roberts Wagners við Stefanie
Powers, meðleikenda hans i sjónvarps-
þáttunum Hart á móti hörðu væri ann-
að og meira en vinátta. Sló oft i brýnu á
milli þeirra hjóna vegna Stefanie.
Nánustu vinir segja þó að þessi grun-
ur hennar hafi verið algjörlega
ástæðulaus. Að vísu hafði Wagner gert
sér far um að hugga Stefanie eftir fráfall
Williams Holdens, en þau Holden voru
trúlofuð í 7 ár. Um annað en vináttu
var þó aldrei að ræða, en Natalie réði
ekki við afbrýðisemina. Wagner tók
þessar hugmyndir konu sinnar mjög
nærri sér og hélt að Natalie hefði gott
af rómantískri helgi um borð í
skemmtisnekkju þeirra hjóna við Cata-
linaeyju. Með í för var Chris Walken,
meðleikari Natalie í síðustu mynd
hennar, Brainstorm.
Eftir að hafa neytt töluverðs magns
af áfengi við kvöldverðinn tók Natalie
að ásaka mann sinn fyrir að sinna
Stefanie meira en sér. Walken tók
undir með henni og sló í harða brýnu.
Natalie þaut út í bræði — og sneri
ekki aftur lifandi um borð í snekkjuna.
Sú rómantiska helgi sem Wagner hafði
vænzt svo mikils af varð að sárum
harmleik.
Robert Wagner og Stefanie Powors: Aöeins vinétta
Natasja Kinski: Tók æ vintýratimabilið snamma.
Natasja Kinski
vitt eignast
fjölskyldu
Natasja Kinski er aðeins tvítug en líf
hennar hefur verið ævintýri Iíkast.
— Lif mitt var ósköp venjulegt fram
að 13 ára aldri, segir hún. — En á aldr-
inum 13—15 var ég eins og ótamið
trippi. Mig langaði til að reyna allt.
— Eg sé ekki eftir neinu. Mamma
reyndi aldrei að stöðva mig og ég held
hún hafi haft rétt fyrir sér með það.
Allir verða að ganga í gegnnum svona
timabil. Ég gerði það snemma — og nú
er því lokið.
Natasja fæddist í Berlín, dóttir leik-
arans Klaus Kinskis og fyrstu eigin-
konu hans, Ruthar. Þar til Natasja var
9 ára fylgdu þær mæðgur Kinski vítt
um heim er hann vann við upptökur á
kvikmyndum. Eftir það settust þær að í
Mtlnchen.
Þar hitti Nasti, eins og vinir hennar
kalla hana, kvikmyndaleikstjórann
Roman Polanski. Hún var 15 ára og
Polanski bað hana að sitja fyrir á
myndum fyrir tímaritið Vogue. Þau
urðu ástfangin og ári síðar fór hún til
Los Angeles með honum. Polanski var
skömmu seinna kærður fyrir nauðgun-
artilraun og varð að flýja land.
— Ég var mjög ástfangin af honum,
segir hún. — Og við erum enn nánir
vinir. Það er raunar alveg furðulegt
hversu miklu valdi 13—14 ára stúlka
geíur náð yfir fullorðnum karlmanni.
Ég Iteld að það gæti hvergi gerzt nema í
Ameríku. Samt er það bara i Ameríku
sem Polanski hefur verið gagnrýndur
fyrir samband sitt við mig.
Líf ið er stutt
í Hollywood
Natasja hlaut mikið lof fyrir túlkun
sina á Tess í samnefndri kvikmynd
Polanskis. Eftir það fór hún til Holly-
wood og lék undir stjórn Francis Fords
Coppola í söngvamyndinni One from
the Heart.
Um þessar mundir er verið að ljúka
upptöku á myndinni The Cat People en
í henni fer Natasja með aðalhlutverk.
Þegar henni er lokið hyggst hún flytja
aftur til Evrópu.
— Lífið er svo stutt hérna, segir
hún. — Og ef þú ert ekki nógu sterkur
persónuleiki ertu mótuð gjörsamiega
að vilja annarra og hefur enga stjórn á
lífi þínu lengur. Það er ömurlegt.
Líf Natasju Kinski er allt annað en
rólegt en hún hefur fulla stjórn á þvi.
Hún segist lifa fyrir starf sitt en langar
til að finna fastan punkt í tilverunni.
— Mig langar til að eignast fjöl-
skyldu, segir hún. — Það er afar mikil-
vægt og ég er að reyna að búa mig
undir það. Strax og ég kemst í meira
jafnvægi ætla ég algjörlega að snúa við
blaðinu hvað lif mitt snertir.