Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1981, Blaðsíða 12
12
DAGBLADIÐ& VÍSIR. ÞRIDJUDAGUR 29. DESEMBER 1981.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Neyten
Svona geram við þegar við þvoum okkar þvott
Hvaða meðferd þolir hver efnistegmd?
—það borgar sig að athuga það þegar flíkin er keypt
Eitt af því sem allir ættu að athuga
áður en þeir kaupa sér flík er það
hvernig má og ber að þvo hana og
þurrka. Er hægt að setja hana í
þvottavélina, í þurrkarann eða verð-
ur að þvo hana i höndunum og leggja
hana flata meðan hún þornar? Er
flíkin úr litekta efni og má þá þvo
hana með öðrum eða verður að þvo
hana sér? Má jafnvel alls ekki þvo
hana heldur verður að setja í hreins-
un? Þarf að sjrauja flíkina eða ekki?
Og að síðustu, eru á henni skraut-
borðar eða merki sem lita út frá sér
eða þola ekki þvott? Til þess að reyna
að svara nokkrum þessara spurninga
fara hér á eftir nokkrir fróðleiksmol-
ar úr norska neytendablaðinu um
ýmis af algengustu efnum í fötum.
kosti þeirra og galla ásamt þvotta-
leiðbeiningum.
EFNI
Allar flíkur æltu að vera inerktar
vel og vandlega. Á merkinu á þess að
vera getið nákvæmlega hvaða efni
eru í flíkinni. Ef slíka merkingu vant-
ar ætti fólk ekki að kaupa flíkina,
það bendir til þess að hún sé úr veru-
lega óvönduðu efni.
Öll efni hafa sína kosti og galla.
Það þarf að velja gaumgæfilega með
tilliti til þess hvernig flíkin á að not-
ast. Oft er tveim eða fleiri efnisteg-
undum blandað saman þannig að
bezlu kostirnir úr hvoru eða hverju
þeirra nýtist. í viðbót við að velja
efnið þarf einnig að velja vefnaðar-
gerðina. Er flíkin of gisin, of þétt, of
gróf eða of fín?
í heild má skipta öllum fataefnuin í
tvo flokka: náttúruleg efni og gervi-
efni.
Náltúruleg efni eru frá náttúrunn-
ar hendi þannig að það er hægt að
spinna úr þeini þráð. Algengustu
náttúrulegu efnin eru bómull, lín, ull
og silki.
Gerviefni er vítt hugtak sem felur i
séi öll efni sem eru búin til í verk-
smiðjum. Þeim er síðan aftur skipt 'f
flokk efna sem búin eru til úr frum-1
efnum náttúrunnar sem brotin eru
upp á ýmsan hált. Þetta kalla Norð-
menn regenart-efni og ég hef ekkert
betra orð og læt það því flakka. Hins
vegar eru efni sem algjörlega eru búin
til á kemískan hált með hjálp tækn-
innar. Al'lur slettum við útlenda orð-
inu, þau kallast syntetísk.
NÁTTÚRULEG
EFNI
Búmull drekkur í sig raka, er þægi-
leg i að vera og rafmagnast ekki eins
og gerviefnin. Hún er mjög sterk og
þolir vel að blotna. Gallinn við
bómullina er hins vegar sá að hún
krumpasl mikið, óhreinkast illa og
vinzl. Því er gerviefninu pólýester ofl
blandað saman við bómull. Pólýesler
bælir verstu galla bómullarinnar. Þvi
er sú blanda algeng í hvers konai
fatnað. Gisinn bóim iarlatnaður er
eldfimur.
Lín er dyrt efni nú á dögum. Því er
það meslmegnis notað i borðdúka,
servíettur og lleira þess háttar cn
minna í föt. Línið drekkur vel i sig
raka, það er svalt viðkomu en það er
stíft og óteygjanlegt, krumpast mikið
og er þvi óhentugt í föt.
Ull er hlý, óhreinkast lítið en raf-
magnast ef hún er nudduð. Ef ullar-
föt eru þvegin á rangan hátt krump-
ast þau og missa fegurð sína. Ef fatn-
aður er merktur „Hrein ný ull” má
ekki vera meira en 5% af efninu í
henni af öðrum toga. En það er mjög
algengt að öðrum efnum sé blandað í
ullina. Til dæmis er blandan 55%
pólýester og 45% ull mjög algeng.
Hún er sterk og krumpast ekki mik-
ið.
UIl er einnig oft blönduð með
akrýl. Áferð á fötum úr þvi efni er lik
ullarflíkum en það er auðveldara að
þvo þau. Þau eru reyndar ekki eins
sterk og föt úr ull og pólýester og
hnökra frekar.
Silki er sannkallaður munaður.
Það er dýrt hér á norðlægum slóðum
en jafnvel þess virði. Silki er glans-
andi efni, fallegt, krumpast lítið, er
sterkt, drekkur vel i sig raka og er
þægilegt i notkun. Hægt er að nota
silki i næstum hvaða fatnað sem er.
GERVIEFNI
Gerviefni skiptast í tvennt eins og
áður sagði. Fyrst verður fjallað um
REFENERTEFNI
Viskóse (ræcn) er algengast al
þessum efnum. Það hefur marga
svipaða eiginleika og bómull. Það
drekkur vel í sig raka og er þægilegt í
notkun. Efnið er sterkt þegar það er
þurrt en styrkurinn minnkar þegar
efnið blotnar. Því þarf að þvo það
variega. Viskóse krumpast mikið og
getur undizt. Því er oft settur selló-
lósi (trjákvoða, fæst í brúsum í búð-
um) í þessi efni til þess að stífa þau.
Viskós er notað eitt sér í margs
konar föt. En það er ekki síður al-
gengt í bland með öðrum efnum. Til
dæmis bómull, ull og pólýester.
Modal er viskósefni sem þróað hef-
ur verið sérstaklega. Það líkist enn þá
meira bómull og er notað í efnis-
blöndur með bómull til dæmis í
sængurföt og nærföt. Það er jafn
sterkt blautt sem þurrt.
Acelal er efni sem oft er blandað
trjákvoðu eins og reyndar viskóse og
modal. En það líkist eigi að síður
meira syntetísku efnunum. Brot tolla
sérstaklega vel í acetati en það er við-
kvæmt í hita og verður því að pressa
það eða strauja varlega. Það lítur úi
líkt og silki og krumpast og vinzt lít-
ið. En það drekkur mjög lítið í sig
raka og er því oft kalt viðkomu.
Acetat veikist við að blotna og verður
að þvo það varlega.
Triacelal er acetat sem hefur kom-
izt lengra á þróunarbrautinni. Eigin-
leikar þessu eru því enn líkari eigin-
leikum syntetískra efna. Triacetat
krumpast nær ekkert, það heldur
ágætlega brotum og þolir þvott og
hita betur en acetat. En það drekkur
ekki betur í sig raka og er því kalt við-
komu.
Sumar flíkur má ekki hengja upp heldur verður að þurrka flatar. SlSkt tekur tíma.
DV-mynd Bj. Bj.
Það er óneitanlega þægilegt að geta stungið flikunum beint í þvottavélina og
þaðan jafnvel í þurrkarann. Athugiö vel áður en föt eru keypt hvort þau þola slíka
meðferð.
DV-mynd Einar Ólason.
SYNTETÍSK EFNI
Syntetísk efni eru sterk bæði blaut
og þurr, þáu krumpast mjög lítið við
notkun og þau þorna fljótt. Þau
drekka í sig minni raka en náttúruleg
efni. Því getur flík úr þessum efnum
verið köld viðkomu.
Syntetísk efni rafmagnast mikið og
því dragast að þeim óhreinindi. Því
þarf að þvo þau oft en það má yfir-
leitt gera í þvottavélum og er þvi
fljótlegt. En þau þola fremur illa hita
og verður að passa hitastig bæði á
þvottavatninu og straujárninu.
Algengustu syntetísku efnin eru
pólyamid, pólyester og akrýl.
Polýamid (nælon) er eitt sterkasta
fataefni sem gefst. Það er seigt og
teygjanlegt og því oft notað i það
sem á að þola mikla og erfiða
notkun. Sérlega er þó efnið vinsælt í
föt sem eiga að vera þunn jafnframt
því sem þau eiga að vera sterk. Má
nefna hinar frægu nælonsokkabuxur
því til sönnunar. Pólýamid krumpast
lítið, vinzt ekki og er auðvelt í þvotti.
Það drekkur lítið i sig af raka og er
kalt og rakt íveru.
Pólýester er efni sem brot tolla vel
í. Það krumpast lítið, er stinnt og er
því gott sem fylling í sængur, svefn-
poka og púða. Pólýester er mikið
notað í blöndur með öðrum efnum.
Við það eykst styrkur flíkurinnar sem
saumuð er úr efninu, hún krumpast
síður og heldur betur lögun sinni.
Pólýester og ull er mikið notað í bux-
ur og önnur utanyfirföt og pólýester
og bómull í skyrtur, sængurföt og
fleira þessháttar.
Pólýester skitnar fljótt en er auð-
velt i þvotti og þurrkun.
Akrýl hefur marga eiginleika svip-
aða og ullin. Það er þvi oft notað í
föt sem áður fyrr var eingöngu ull í.
Akrýlefnin eru fremur sterk og
krumpast litið og vindasLekki. Það er
auðvelt að þvo þau en þau þola illa
háan hita. Því verður að þvo föt úr
akrílefnum á litlum hita ella krump-
ast þau til lífstíðar.
Akrýl er eldfimast af syntetísku
efnunum. Því gisnari sem flikin er því
eldfimari og sé hún með loðnu yfir-
borði getur eldurinn læst sig um hana
á augabragði. Modakríl er þróað
akrýlefni. Það er ekki eins sterk en
brennur ekki.
-DS/Þýddi úr Forbrugerrapporten.
Er fallega ullarpeysan sem þú sást í
búðinni þess virði að þurfa alltaf að
þvo hana í höndunum. Slíkt er tima-
frekt en ullin borgar margfalt fyrir
gúða meðferö.
Ég hef stórtapaðá verðkönnunVerðlags
stofnunar og Neytendasamtakanna
í sumar sem leið gerðu Vct ðlags-
skrifstofan og Neytenda.samtökin
verðkönnun í 10 verzlunum á Stór-
Reykjavíkursvæðinu, þar sem l'ram
kom að vörumarkaður einn í Hafnar-
firði var með lægsla vöruverðið i
verðkönnuninni, sem var í 19 al -
riðum.
Ég hef verzlað mikið í þessum
vörumarkaði, þar sem ég laldi mig
vera að spara verulega l'yrir heimili
mitt, ekki sízt vegna þess að ábyrgir
aðilar sem að slíkri verðkönnun
standa, eru óbeini að vísa fólki á
ódýruslu malarkaupiu.
l-.kki alls fvrii löngu heyrði ég i úl-
varþinu að vörumarkaðurinn Kosia-
kaup í Hafnarl'irði auglýsli hangikjöl
l'rá Húsavík sem er miit uppáhalds
hangikjöl. Ég fór þangað lil að
katipa úrbeinaðan hangikjöls-
framparl sem ég ætlaði að hafa i jóla-
matinn og keypli þá lleira al' kjöl-
vörum i leiðinni. Mér til mikillar
undunar sá ég þá að verðið á
hangikjölsframpartinum hjá Kosta-
kaup var mun lægra en þar sem ég
hal'ði áður verzlað. Siðan fór ég að
ailiuga verð á lleiri kjö'.örinu og
ekki varð uik. im iii’ .mnni við það.
Skal ég nel’na aöeins eilt dæmi máli
mínu lil sluðnings: Ég var búin að
kaupa hamborgarhrygg í
vörumarkaðnum, sem varð númer
eilt i nefndri verðkönnun. Þar
koslaði hamborgarhryggur. sem var
2.550 kg að þyngd, 435,80 kr, eða eill
kíló 170,90 kr. Hjá Koslakaup
koslar eitl kíló I49,(X) og þá mun
jal'nþungl stvkki af hamborgarhrygg
kosla þar 379,95 kr.. sem sýndi mér
að ég hefði sparað 55,85 kr. á einni
mállið. Þeila er aðeins eitl dæmi
sem sýnir misinun sem nemur lugum
króna, en margi lleira mæili benda á
i sama dúr.
Það sem ég vil bcnda Verðlags-
skrifstofunni og Neylendasamlöktm-
iim á er það að í verðkönnnn þaif að
laka miklu meira tillit til kjotvöru,
sem ci einn siicrsti liðurinn í matar-
innkaupum heimilanna. Þessi vöru-
markaður sem var númer eilt í þess-
ari verðkönnun var með læplega líu
krónum lægra verð heldur en Kosla-
kaup á öllum þessum 19 liðum könn-
unarinnar.
Þar sem verðkönnun getur hafl
mikið auglýsingagildi, eins og ég hef
áður benl á í þessu bréli. er ég furðti
lostin vegna þess að ég hefði gelað
sparað slórkosllega á því eimi að
kaupa kjölvörur á réilum slað.
Ég ireysli því að í framtiðinni.
— segirhúsmóðir
íGardabæ
þegar Verðlagsskrifstofan og
Neytendasamtökin gera verðkönnun,
sem á að koma heimilunum til góða
þá verði settur rétt saman listi yfir
þær vörur, sem notaðar eru á einu
heimili.
Það má ekki eiga sér stað. að svo
áhrifamiklir aðilar sein Verðlags-
skrifstofan og Neytendasamtökin
villi um fyrir neylendum, eins og hér
hefur verið gert. Þeir verða að nola
öruggar aðferðir til að gela sagt
fólki réll og sati frá livar ódýrast er
að verzla.
llúsmóðir í Gaðabæ.