Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1981, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1981.
13
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
FLUGELDASALA FRAM
/ Framheimffinu við Safamýri og
Blómavali við Sigtún.
OPIÐ FRÁ KL. 10-22 OG Á GAMLÁRSDAG FRÁ KL. 9-16
25% afsláttuf af fjölskyldupokum
FRAM
„Ef við ý'tum undir
árvekni kaupand-
ans, þá er vel”
- sagði Jóhannes Gunnarsson hjá Verðlagsstofnun
Við höfðum samband við Jó-
hannes Gunnarsson hjá Verðlags-
stofnun vegna innihald þessa bréfs
húsmóður í Garðabæ.
„Svona ábendingar til okkar eru
jákvæðar. Einn megintilgangur með
verðkönnunum er að örva verðskyn
neytenda og sýna fram á að verðmun-
ur er á milli vörutegunda og verzlana.
Við viljum einnig stuðla að því að
neytendur íhugi vel sín innkaup og
geri verðsamanburð. En rétt er að
taka fram að verðkannanir okkar
hafa ekki náð yfir kjötvörur. Við
höfum bundið okkar kannanir við
vörutegundir svo sem dósamat,
hreinlætisvðrur og fleira í nýlendu-
vöruverzlunum. Eða með öðrum orð-
um eingöngu gert samanburð þegar
völ hefur verið á sömu vörutegund og
sama vörumerki í verzlunum. Form-
galli getur verið á okkar verðkönnun-
um, en ef þær ýta undir árvekni
kaupandans, þá er vel,” sagði
Jóhannes Gunnarsson.
-ÞG
KVIKMYNDAMARKAÐURINN
_ VIDEO • TÆKI • FILMUR
Skólavörðustíg 19, simi 15480
VERZLIÐ
ÓDÝRT
Birgittu Bjarnadóttur
Síðasti áskorandinn var María Frið-
bergsdóttir og frá henni gengur síðasta
áskorun ársins til Dagbjartar E. Ims-
land. „Valið var auðvelt,” sagði Dag-
björt þegar haft var samband við
hana. ..Ég valdi einfaldlega það sem
vinsælasi er hér á heimilinu.” Og það
mun vera kræklingaréttur með coktail-
sósu I forrétt, grillað lambalæri, með
sveppasósu og brúnkáli sem áðalréttur
og endað á dýrindis rommfromage.
Kræklingaréttur
m/coktailsósu
tsósuna:
I dós hrein jógúrt
I msk. majones
tómatsósa
sítrónusafi
Salatblöð eru skorin smátt og látin í
coktailglös. Kræklingarnir síðan yfir
salatblöðin og coktailsósunni hellt yfir
kræklinginn. Skreytt með sítrónu- og
tómatbátum, agúrkusneiðum og
steinselju. Borið fram með ristuðu
brauði og smjöri.
Grillað lambalæri og
brúnkál
Lambalærið er penslað með olíu og
sítrónupipar. Salti stráð yfir. Lærið er
grillað eftir smekk. Ég grilla meðal-
stórt læri í um það bil 2 klst. Með lær-
inu hef ég sveppasósu. Tek þá soð af
niðursoðnum sveppum og soðið af
lærinu og blanda saman. Siðan jafna
ég sósuna út með maizenamjöli, sem
hrært er með vatni.
Með lærinu er þá borin fram
sveppasósa og hvítar kartöflur að
ógleymdu brúnkálinu.
Brúnkál
/ hvítkálshaus
I50gsmjörliki
2 dl sykur
Hvítkálið er skorið í þunnar ræmur.
Smjörlíkið brætt i potti og sykurinn
settur útí pottinn og brúnaður. Hvít-
kálsræmurnar síðan brúnaðar í pottin-
um, en aðgæta þarf að hræra jafnt og
þétt i kálinu á meðan það brúnast.
Til að enda þessa máltíð hef ég valið
rommfromage með niðursoðnum
plómum og þeyttum rjóma. Vel
skreytt með brytjuðu súkkulaði og
coktailberjum.
Næsti áskorandi:
Hrefna Birgitta Bjarnadóttir sjúkra-
liði varð fyrir valinu. Fiskisagan um
hennar lagni við matargerð hefur víða
flogið.
OPIÐ TIL KL. 10 í KVÖLD
í MATVÖRUMARKAÐI
Reykt rúllupylsa kg verð 32,00 kr.
Hvalkjöt kg verð 26,00 kr.
Hrefnukjöt kg verð 27,00 kr.
Slagvefja með beikoni .... kg verð 29,00 kr.
Kjúklingar, 4 stk. í poka,... kg verð 64,00 kr.
Kjúklingar kg verð 67,00 kr.
Stórlúða í sneiðum kg verð 22,50 kr.
Strásykur kg verð 6,35 kr.
Kakó, 1/2 kg 24,05 kr.
Kókosmjöl 250 gr 6,20 kr.
Ritz kex 10,60 kr.
2. stk. eldhúsrúllur 12,00 kr.
Ávextir í heilum kössum, tilboðsverð.
Allt hangikjöt á gamla verðinu.
Nautakjöt í úrvali.
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121
Sínni 10600
Sjávarréttir eru vinsælir á heimili Dagbjartar E. Imsland og hér útbýr hún þann vinsælasta, kræklingarétt með coktailsósu.
DV-mynd Bj. Bj.
Áskorun um uppskrif tir
Dagbjört L Imsland
skorar á Hrefnu