Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1981, Qupperneq 18
/
18
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR29. DESEMBER 1981.
íþróttir
Brian Clough.
Cloughfékk
hjartaáfall
Brian Clough, framkvæmdastjóri
Nottingham Forcst og einn þekktasti
maður í ensku knattspyrnunni, liggur
nú á sjúkrahúsi i Derby. Fékk hjarta-
áfall á heimili sinu í gær og var fluttur á
sjúkrahús. Áfallið er ekki alvarlegt og
talið að Clough verði kominn heim á ný
eftir 3—4 daga. Hann verður þó að
taka sér alveg hvíld frá knattspyrnunni
um tíma. Forest-liðið í góðum höndum
þó þar sem Peter Taylor er. Hann hefur
verið hægri hönd Clough um langt ára-
bil.
-hsím.
Barcelona efst
— entapaði
Barcelona tapaði í gær á útivelli fyrir
Real Betis i 1. deildinni í knattspyrn-
unni á Spáni. Heldur þó enn forustu —
aðeins þó einu stigi á undan Real Madr-
id og Real Sociedad. Úrsiit í gær.
Cadiz-Castello
Betis-Barcelona
Real Madrid-Racing
Bilbao-Socidad
Osasuna-Atl. Madrid
Espanol-Sevilla
V alencia-Hercules
Zaragoza-V alladolid
Staða efstu liða er nú þannig:
Barcelona
Real Madrid
Sociedad
Zaragoza
Betis
Bilbao
17 11 3
17 11 2
17 10 4
17 9 4
17 9 1
17 8 2
46-16 25
32-16 24
32-17 24
25-21 22
24-17 19
27-22 18
Lið Allison
gerir það gott
Sporting Lissabon, liöið, sem enski
þjálfarinn frægi, Malcolm Allison,
fyrrum þjálfari Man. City, Crystal Pal-
ace og fleiri enskra liða, gerir það gott í
1. deildinni í Portúgal. Liðið sigraði
Estoril í gær 3-2 á heimaveili og er
þremur stigum á undan Benfica, stór-
liði þeirra Portúgalsmanna. I gær sigr-
aði Benfica Penafiel 0-3 á útivelíi.
Porto tapaði hins vegar á heimavelli 1-2
fyrir Rio Ave og féll við það niður í
þriðja sæti. Forusta Sporting jókst því í
þrjú stig í gær.
Staða efstu liöa:
Sporting 13 9 4 0 30-12 22
Benfica 13 9 1 3 26-8 19
Porto 13 6 6 1 13-6 18
Rio Ave 13 7 3 3 11-8 17
Gamlárshlaup
Camlárshlaup ÍR fer fram á gamlárs-
dag og hefst kl. 14 við ÍR-húsið, Tún-
götu. Hlaupinn er 10 km hringur um
Seltjarnarnes, Ægisíðu og Suðurgötu.
Búast má við mikilii baráttu um fyrstu
sætin eins og verið hefur í hlaupum
vetrarins, Ágúst Þorsteinsson, UMSB,
sem er við nám og æfingar í Texas, er
hér í jólaleyfi og keppir. Hlaup þetta er
öllum opiö og vitað er um þátttöku
ýmissa, sem ekki hafa keppt i víða-
vangshlaupum vetrarins. Vilja ÍR-ingar
hvetja alla, konur og karla, sem eitt-
hvað eru að hlaupa, til að koma og vera
með. Verðiaun til 3 fyrstu í karla og
kvennaflokki verða afhent að hlaupi
koknu.
fþróttir
íþrótt
fþróttir
Iþrót
Kevin Keegan velti Swansea af toppi 1. deildar:
Man. City f efsta sæti
Trevor Francis tryggði City 2-1 sigur á USfunum fjórum mín. fyrír leikslok
Enski landsliðsfyrirliðinn Kevin
Keegan velti Swansea af toppnum í 1.
deildinni ensku i gær, þegar hann skor-
aði tvívegis fyrir Southampton í síðari
hálfleik í 3—1 sigrinum á Swansea á
The Dell. Um tíma héldu 22 þúsund
áhorfendur i Southampton að Dýrling-
arnir væru i fyrsta skipti í sögu félags-
ins í efsta sæti í 1. deild. En svo komu
fréttir frá Malne Road í Manchester að
Trevor Francis hefði skorað sigurmark
Man. City fjórum mín. fyrir leikslok og
þar með tryggt liði sinu sigur 2—1 á
Úlfunum og efsta sætið í 1. deild. Fyrir
leikina í gær var Swansea efst en féll
niður í þriðja sætið.
Man. City verðskuldaði þó varla að
ná forustunni í deildinni með þeim leik,
sem það sýndi gegn einu af botnliðum
deildarinnar, Wolverhampton, og það
á heimavelli. City-liðið óþekkjanlegt
frá leiknum við Liverpool á laugardag
og átti sannarlega í basli með Úlfana.
Heppið að sigra. Joe Gallagher skor-
aði fyrir Úlfana í fyrri hálfleik en
markið var dæmt af og tvívegis bjarg-
aði Joe Corrigan mjög vel. Man. City
virtist í fyrri hálfleiknum jafnvel enn
meira botnlið en Úlfarnir. f s.h. náði
Asa Hartford forustu fyrir City á 53.
mín. Peter Daniel jafnaði fyrir Úlfana
á 72. mín. eftir að aukaspyrna hafði
verið dæmd á Corrigan utan vítateigs.
Lokakaflann reyndi Man. City mjög að
tryggja sér stigin þrjú og það tókst
þegar Trevor Francis skoraði á 86. mín.
Nokkru áður hafði verið bjargað frá
Reeves á marklinu Úlfanna. Áhorf-
endur rúmlega 40 þúsund.
Úrslit í leikjunum í gær urðu annars
þessi.
1. deild
Brighton—Aston Villa 0—1
Everton—Coventry 3—2
Man.City—Wolves 2—1
Southampton—Swansea 3—1
Strax á þriðju mín. náði David Arm-
strong þó forustu fyrir Dýrlingana,
þegar hann skoraði beint úr auka-
spyrnu. Júgóslavinn Ame Rajkovic
jafnaði á 14. mín. með þrumuskalla
eftir hornspyrnu Leighton James. Á
37. mín., var Kevin Keegan felldur
innan vítateigs. Vítaspyma sem
Keegan tók sjálfur. Spyrnan mjög mis-
heppnuð, alveg við Dai Davies, sem
varði auðveldlega. En Keegan, sem lék
sinn 400. deildaleik í gær, átti eftir að
bæta fyrir mistökin í s.h. Undir lok
hálfleiksins komust þeir Bob Latch-
ford og Robbie James í færi, sem þeir
misnotuðu. Klaufar þar og Swansea
hefði svo hæglega getað haft forustu í
hálfleiknum.
Tvö mörk Keegan
2. deild
Bolton—Blackburn
Cardi ff—Charlton
Norwich—Luton
Oldham—Leicester
I síðari hálfleiknum hafði South-
ampton hins vegar umtalsverða yfir-
burði. Leikurinn prýðileg skemmtun
fyrir áhorfendur, hiti um fimm stig og
milt í rigningarúðanum. Á 50. mín.
náði Keegan forustu fyrir Dýrlingana
með góðu marki. 13. deildamark hans
á leiktímabilinu og hann jafnaði þar
með sinn bezta árangur áður hvað
deildamörkum viðkemur. Skoraði 13
með Liverpool leiktímabilið 1972—
1973. Og Keegan átti eftir að bæta
metið. Á 61. mín. skoraði hann aftur
og gulltryggði sigur liðs síns. Átti mjög
góðan leik og Swansea-liðið var heppið
að fá ekki á sig fleiri mörk. Dai Davies
afar óöruggur í marki þó honum
heppnaðist að verja vítaspyrnu
Keegans. Við tapið féll Swansea af
toppnum, Man. City efst og
Southampton í öðru sæti. Liðin voru
þapnig skipuð.
Southampton. Katalinic, Golac, Nic-
höll, Waldron, Holmes, Williams,
Ball, Armstrong, Keegan, Moran og
Channon. Swansea. Davies, Thomp-
son, Irwine, Rajkovic, Hadziabdic
(Marsustik), Stanley, Mahoney,
Leighton James, Latchford, Robbie
James og Curtis. Það voru því fjórir
Júgóslavar í leiknum. Tveir í hvoru
liði.
3. deild
Exeter—Plymouth
Gillingham—Newport
Millwall—Brentford
Heppnissigur Villa
Jafnræði var með Southampton og
Swansea í fyrri hálfleiknum í gær.
Kevin Keegan — met, 14 deildamörk.
síðari hálfleiknum en Tony Morley
tókst að skora á 62. mín. Eina mark
leiksins, sem færði Villa öll stigin þrjú.
Foster og Grealish áttu báðir skot í
þverslá marks Villa en inn vildi
knötturinn ekki þrátt fyrir mikla yfir-
burði heimaliðsins í leiknum.
Fyrri hálfleikur Everton og Coventry
var bráðskemmtilegur og vel leikinn.
Fimm mörk þá skoruð en siðari hálf-
leikurinn var slakur. Mark Higgins,
sem fyrir leikinn hafði skorað tvö mörk
í 73 leikjum með Everton, skoraði tví-
vegis i leiknum. Sharp þriðja markið.
Coventry tókst tvívegis að minnka
muninn, bakvörðurinn Thomas og
Bodak skoruðu.
í 2. deild skoraði Luton þrívegis á
fyrstu 15 mín. í leiknum í Norwich,
White og Steen, en síðan fóru leik-
menn liðsins að taka lifinu með ró. Það
nægði þó Norwich ekki. John Deehan,
lánsmaður frá WBA, skoraði eina
mark liðsins í s.h. Luton hefur nú sjö
stiga forustu í deildinni. 16.577 áhorf-
endur í Bolton sáu Chris Thompson ná
forustu fyrir heimaliðið á 15. mín.
Aylott jafnaði og Stonehouse náði
forustu fyrir Blackburn, þegar hann
skoraði úr vítaspyrnu rétt fyrir hálfleik.
Tony Henry jafnaði fyrir Bolton á 52.
mín. og þar við sat. Alan Gowling var
þó tvívegis nærri að skora fyrir Bolton
undir lokin. Lynex skoraði fyrir Lei-
cester eftir aðeins þrjár mín. í Oldham
og þrátt fyrir mikla sókn heimaliðsins
tókst því ekki að jafna fyrr en rétt í
lokin. Þá dæmd vítaspyrna á Leicester
sem Roger Wylde skoraði úr. 13. deild
átti Stan Bowles, fyrrum enskur lands-
liðsmaður, stórleik með Brentford en'
Gary Roberts skoraði sigurmark Brent-
ford. Þrátt fyrir gott veður á suður-
strönd Englands í gær var frost, snjór
og kuldi annars staðar. Fjölmörgum
leikjum frestað.
Staðan er nú þannig:
1. deild
Man. City
Southampton
Swansea
Man. Utd.
Ipswich
Tottenham
Nottm. For.
Everton
20 10
19 10
20 10
18 9
16 10
17 9
Brighton
Arsenal
WestHam
Liverpool
WBA
A. Villa
Coventry
Stoke
Leeds
Wolves
Birmingham
Notts. Co.
Sunderl.
Middlesb.
18
19
19
16
16
17
18
19
20
18
18
18
16
17
19
18
29—22 34
35—28 33
31—31 33
28—15 32
28—19 32
26— 19 29
23— 23 29
27— 25 28
24— 19 27
15—12 27
33—22 26
24—19 24
23—19 24
23—23 22
10 29—32 22
10 23—28 20
8 18—32 20
9 12—25 19
6 23—23
8 24—31
11 16—33
10 16—30
18
17
14
12
-hsim.
Aston Villa vann mikinn heppnis-
sigur í Brighton. Átti í vök að verjast
allan fyrri hálfleikinn en Jimmy
Rimmer hélt liðinu á floti með snjallri
markvörzlu. Lítið skárra hjá Villa í
AFTUR SIGUR
H0LLENDINGA
—unnu 90:70 á Akranesi ígærkvöldi
Leikmenn íslenzka landsliðsins í
körfuknattleik átti í miklum erfiðleik-
um með hina hávöxnu leikmenn
Hollands þegar þeir áttust við á Akra-
nesi í gærkvöldi og mátti ísland þola 20
stiga tap 70:90. Hollendingar náðu
strax góðum tökum á ieiknum þar sem
leikmenn islenzka iiðsins hittu illa í
byrjun leiksins. Þá náðu Hollendingar
næröllum fráköstum.
Staðan var 45:34 fyrir Hollendinga í
leikhléi og í seinni hálfleik var sigur
þeirra aldrei í hættu. 275 áhorfendur
sáu leikinn og olli hann nokkrum von-
brigðum.
íslenzku leikmennirnir náðu sé
aldrei á strik og bar lítið á Jóni Sigurðs
syni, leikmanninum snjalla úr KR
Símon Ólafsson var stigahæstur — U
stig, Torfi Magnússon 13 stig, Jóna:
Jóhannsson 9 og Kristján Ágústsson 6.
Þriðji landsleikur þjóðanna fer fran
í Vestmannaeyjum i kvöld.
„Það vantaði meirí
kraft og sigurvilja”
sagði Hilmar, landsliðsþjálfari. Þriðji
landsleikurinn við Dani á Akranesi í kvöld
Torfi Magnússon sendir knöttinn i körfu Hollendinga en það dugði skammt.
DV-mynd Friðþjófur.
— Það vantaði meiri kraft og sigur-
vilja hjá strákunum. Þeir tóku ekki eins
ákveðið á móti Dönunum — eins og í
fyrri leiknum, því fór sem fór, sagði
Hilmar Björnsson, landsliðsþjálfari
eftir landsleikinn i gærkvöldi.
— Okkur hefur vantað meiri kraft til
að leika 2-3 leiki í röð án þess að gefa
neitt eftir. Það er ekki nóg að leika
fyrsta Ieikinn á fullu en slaka síðan á.
Við erum nú að reyna að gera þarna
breytingar á með því að leika 3 lands-
leiki eða fleiri í röð eins og nú gegn
Dönunum, sagði Hilmar.
Hilmar sagði að varnarleikurinn
hefði brugðizt — Danirnir hefðu fengið
tækifæri til að skora mjög ódýr mörk
og það hefði dugað þeim til sigurs.
— Nú fóru leikmenn ekki eftir þeirri
fyrirskipun þinni að skjóta uppi á
danska markvörðinn?
— Nei, þeir virtust algjörlega lokast
fyrir því um tíma. Þegar þeir skutu
uppi lá knötturinn yfirleitt í netinu en
aftur á móti varði danski markvörður-
inn vel niðri — alls 12 skot í leiknum.
Hilmar sagði að sóknarnýtingin
hefði verið 49%. Það er nýting sem að
öllu eðlilegu hefði átt að færa okkur
sigur.
islendingar og Danir leika sinn
þriðja landsleik á Akranesi í kvöld og
hefst leikurinn kl. 19.00.
-sos