Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1981, Blaðsíða 19
tir íþróttir * íþrótt
Kristján
með 75%
skotnýtingu
Kristján Arason, vinstrihandarskytt-
an úr FH, átti snilldarleik gegn Dönum
í gærkvöldi. Skotnýting hans var 75%,
þá átti hann tvær línusendingar sem
gáfu mark og sex línusendingar sem
gáfu vítaköst og fjögur mörk.
Sóknarnýting íslenzka liðsins var
nokkuð góð í íeiknum — 23 mörk voru
skoruð úr 47 sóknarlotum sem er 49%
nýting. í fyrri hálfleik voru skoruð 12
mörk úr 26 sóknarlotum — 46,1 % nýt-
ing og í seinni hálfleik var nýtingin
52,3% — 11 mörk voru skoruð úr 21
sóknarlotu.
Árangur einstakra leikmanna varð
þessi i leiknum — fyrst mörk (vítaköst-
in innan sviga), síðan skot og knettin-
um tapað:
Kristján A
Steindór G
Bjarni G
Þorgils Óttar
AlfreðG
Sigurður S
Haukur G
Ólafur J
SigurðurG
Þorbjörn J
9(6)—12—1—69.2%
3(0)— 4—1—60%
2(0)— 3—0—66.6%
2(0)— 3—1—50%
2(0)— 5—1—33.3%
2(1)— 5—3—25%
1(0)— 1 — 1—50%
1(0)— 2—0—50%
I (0)— 4—0—25%
0(0)— 0—0
7 mörk voru skoruð úr vítaskotum, 6
mörk með langskotum, 4 af línu, 3 úr
hornum, 1 eftir gegnumbrot og 1 eftir
hraðaupphlaup
Steindór Gunnarsson „fiskaði”
fimm vítaköst á línunni, Alfreð, Þor-
gils Óttar, Haukur og Bjarni
Guðmundsson eitt hver.
Kristján Arason átti 6 línusendingar
sem gáfu vítaköst og Sigurður Sveins-
son eina.
Kristján átti tvær línusendingar sem
gáfu mörk og Sigurður Gunnarsson
eina.
Einar Þorvarðarson stóð í markinu í
fyrri hálfleik — varði 6 skot (6 langskot
og 2 skot úr hornum) þannig að við
fengum knöttinn og tvö skot þannig að
Danir fengu hann aftur. Hann fékk á
sig 11 mörk.
Kristján Sigmundsson stóð í markinu
í seinni hálfleik en kom inn á í tveimur
vítaköstum í fyrri hálfleik — varði ann-
að. Kristján varði þrjú langskot í seinni
hálfleik þannig að við fengum knöttinn
en tvö skot þannig að Danir fengu hann
aftur. Kristján fékk á sig 13 mörk í
leiknum.
-sos
Kristján Arason, með danskan handlegg
á sér, sendir knöttinn í mark Dana.
Skoraði níu mörk í leiknum.
DV-mynd Friðþjófur.
Steindór Gunnarsson sendir knöttinn í danska markið. Eitt af þremur mörkum hans af línu.
Tap fyrir Dönum í landsleiknum í gærkvöldi,
DV-mynd Friöþjófur.
stæða dómgæzlu þýzkra
—Islenzka landsliðið hvorki f ugl né fiskur án Þorbergs Aðalsteinssonar.
Vömin brást algjörlega í síðari hálfleik
íslenzka lansliðið í handknattleik
féll niður á heldur lágt plan i lands-
leiknum við Dani í Laugardalshöll í
gær, oft mikið ráðaleysi í sóknar-
leiknum og varnarleikur bókstaflega
ekki fyrir hendi langtímum saman.
Einkum i síðari hálfleiknum. Danir
unnu verðskuldaðan sigur — að vísu
með aðeins eins marks mun — og ef
ekki hefði komið til mjög hagstæð
dómgæzla vestur-þýzku dómaranna
hefði tapið eflaust orðið miklu stærra.
Danir léku betur en i fyrsta leiknum á
sunnudagskvöld, hraði meiri, en það er
þó staðreynd, að þetta danska landslið
er aðeins skuggi þeirra landsliða, sem
Danir hafa átt bezt. Miðlungslið, varla
það og það er slæmt að tapa fyrir slíku
liði á heimavelli eins góðan stuðning og
íslenzku leikmennirnir fengu frá fjöl-
mörgum áhorfendum — og frá þýzku
dómurunum. Ekkert plan i leik þeirra,
einstaklingsframtak ræður rikjum.
Varla að flétta sjáist. Harður dómur
en því miður merkir undirritaður ekki
að um framför sé að ræða, þrátt fyrir
efnilega unga leikmenn. Það kom vel í
Ijós, að án Þorbergs Aðalsteinssonar er
íslenzka landsliðið ekki til stórræða.
Kraftur hans og hraði var ekki til
staðar í gær og því fór sem fór gegn
miðlungsliði Dana. Þorbergur gat ekki
leikið vegna höfuðhöggsins, sem hann
hlaut í fyrsta leiknum.
Það var spenna lokamínútur
leiksins, það vantaði ekki. Þó hafði
maður alltaf á tilfinningunni að Danir
mundu bera sigur úr býtum. Eftir að ísf
liðið hafði unnið upp þriggja marka
mun Dana, 16—19, og jafnað í 21—21
átta mínútum fyrir leikslok, skoruðu
Danir alltaf á undan. Jafnt 22—22 og
23—23 en 22 sekúndum fyrir leikslok
tryggði Jen Roepstroff sigur danska
liðsins — sigur, sem fyrir löngu hefði
átt að vera í höfn fyrir Dani ef ekki
hefði komið til dómgæzla þeirra
þýzku.
Jafnt ífyrri hálfleik
Það var mikið jafnræði með
liðunum í fyrri hálfleiknum þar sem
Einar Þorvarðarson markvörður var
bezti maður íslenzka liðsins.
Dómararnir voru mjög harðir — ráku
danskan leikmann strax af velli eða
eftir 90 sekúndur. Slíkt er óvenjulegt og
rétt á eftir fékk Kristján Arason að
fjúka af velli. Danir komust i 3—1 en
ísland jafnaði í 3—3 eftir 10 mín. Síðan
var jafnt á öllum tölum upp í 9—9. Um
miðjan hálfleikinn kom langur kafli
hjá báðum liðum, sem raunverulega
átti ekkert skylt við handknattleik.
Delluleikur, eins og litlu strákarnir
sögðu.
Vítaköstum útdeilt til beggja liða i
fyrri hálfleiknum og Kristján
Sigmundsson kom inn á til að verja viti
í stöðunni 8—8. Hraðupphlaup og
Óttar Þorgils skoraði. Danir jöfnuðu
úr víti. Siðan komst ísland í 11—9 og
það þótt varið væri vítakast Kristjáns
Arasonar, bezta útileikmanns íslands í
fyrri hálfleiknum. Sigurður Sveinsson
kom íslandi í 11—9 úr vítakasti. Svo
kom að honum að láta verja frá sér
vítakast. Siggi bætti það upp með góðu
marki, 12—10. Danir jöfnuðu í 12—
12. Það var staðan í hálfleik.
Hvar var vörnin?
Lengi vel í síðari hálfleiknum var
varnarleikur ísl. liðsins algjörlega í
molum. Iðulega stóðu tveir til þrír
Danir dauðafríir í línu og það var lítið
gaman fyrir Kristján Sigmundss. sem,
hafði tekið stöðu Einars, að standa i
markinu. Jafnt var þó 14—14 en svo
fóru Danir að síga fram úr. Komust
þremur mörkum yfir 18—15 eftir 12.
mín. ísland skoraði varla mark nema
úr vítaköstum — Kristján Arason.
Leikurinn í molum í vörn og sókn hjá
íslenzka liðinu. En svo kom, smáglæta
— dönskum leikmönnum tvívegis vikið
af velli.
Munurinn fór að minnka smám
saman og Siggi Gunn.skoraði falleg-
asta mark leiksins. Þrumuskot neðan á
slá og inn. Loksins jafnt 21—21. En
lokin voru ekki nógu hagstæð. Siggi
Sveins skaut framhjá markinu í dauða-
færi. Það kom ekki að sök. Bjarni
Guðmundsson, sem heldur lítið hafði
borið á i leiknum, jafnaði úr
hraðaupphlaupi í 22—22 eftir fallega
Heimsmethafinn
f þrístökki al-
varlega slasaður
Brasiliski heimsmethafinn í þrí-
stökki, Joao de Oliveira, er á batavegi
eftir alvarlegt umferðarslys, sem hann
lenti i nálægt Sao Paulo i siðustu viku.
Bill, sem hann ók, lenti i árekstri. Hann
var þegar fluttur meðvitundarlaus á
sjúkrahús í Campinas. Hann er alvar-
lega slasaður, brákaður á fæti, kjálka-
og höfuðkúpu. Einnig blæðing í lunga.
Aðgerð lækna heppnaðist vel en það
verður þó ekki vitaö fyrr en eftir tæp-
an mánuð hvort Oliveira getur keppt
aftur.
Joao de Oliveira setti núgildandi
heimsmet í þrístökki, 17,89 metra, í
Mexikó-borg 1975. hsím.
sendingu Óla Jóns. Danir komust í
23 —22 fjórum mín. fyrir leikslok.
Bjarni jafnaði í 23—23 — sveif inn í
teig Dana, fékk sendingu frá Sigga
Gunn. og skoraði. Ein mínúta og 37
sekúndur eftir. —ísland í vörn, og þá
kom fyrir nokkuð, sem ég minnist ekki
að hafa séð áður í jafnri stöðu. Reynt
var að taka 2 leikmenn danska liðsins
úr umferð. Auðvitað var það á kostnað
varnarleiksins og Roiepstroff skoraði
24. mark Dana 22. sek. fyrir leikslok.
Það reyndist sigurmark leiksins. Bjarni
sveif inn í teiginn rétt fyrir leikslok og
fékk knöttinn en áður höfðu þýzku
dómararnir dæmt aukakast á Dani.
Þar fór síðasti möguleikinn að ná
jafntefli.
Einar markvörður og Kristján
Arason stóðu upp úr í íslenzka liðinu,
Steindór átti góða spretti í síðari hálf-
leik. Óttar Þorgils Mathiesen ekkert
notaður þá eftir að hafa skorað tvö
falleg mörk í fyrri hálfleiknum. Flestir
leikmenn liðsins lakari en í fyrsta
leiknum, þegar okkur tókst að vinna
þrátt fyrir óhagstæða dómgæzlu. Þor-
björn Jensson aðeins skuggi þess
leikmanns, sem hann var kvöldið áður.
Sama má kannski segja um fleiri
leikmenn. Möguleika á að jafna aðeins
metin gegn Dönum kastað á glæ. Það
er ekki viðunandi að tapa fyrir þessu
danska landsliði, sem er án margra
leikmanna, sem munu leika fyrir
Danmörku á HM síðar í vetur.
Mörk íslands skoruðu Kristján 9/6,
Steindór 3, Óttar 2, Alfreð Gíslason 2,
Bjarni 2, Siggi Sveins 2/1, Siggi Gunn.
1, Haukur Geirmundsson 1 og Ólafur
1. Fyrir Dani skoruðu Erik Rasmussen
64, Hattesen 4, Roepstroff 3, Gulver 3,
Havrun 3, Morten Kristensen 3/1 og
Sten Nilsen 2. ísland fékk níu vítaköst í
leiknum, Danir sex. Furðuleg breyting
frá leiknum kvöldinu áður, þegar
ísland fékk ekkert víti. Danir sjöl! —
ísl. leikmönnum þrisvar vikið af velli í
;ær, fimm Dönum.
-hsim.