Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1981, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1981, Qupperneq 31
verður haldið sunnudaginn 3. jan. nk. í íþróttahúsi Kennaraháskólans. Keppnin hefst kl. 14 með kata unglinga, kata kvenna, hópkata og kata karla, um kl. 16 er síðan kumite (frjáls glíma) á dagskrá. „Á vængjum söngsins" — Sigriður Ella á nýrri hljómplötu íslenzkar hljómplötur gefa út nýja hljómplötu, Sigriður Ella Magnúsdóttir syngur, við undirlcik Graham Johnson, víðfrægs brezks píanóleikara. Á plötunni eru átján lög, á sjö málum. Á A-hlið plöt- unnar eru m.a. titillagið ,,Á vængjum söngsins” ásamt velþekkum lögum eftir Schubert og Strauss. Á B-hlið eru tvö lög eftir íslenzka höfunda, Litla kvæðið um litlu hjónin eftir Pál ísólfsson og Vísur Vatnsenda-Rósu þjóðlag i útsetningu Jóns Ás- geirssonar, þá hið fræga lag Griegs ,,Jeg elsker dig” og „Flickan kom ifrán sin álsklings möte” eftir Sibeiius. Loks eru þjóðlög frá ýmsum löndum. Upptaka for fram í CBS studios í London i nóvember sl. Markrún Felixdóttir, Mjósundi 3 Hafnarfirði, andaðist 15. des. að St. Jósefsspitala í Hafnarfirði. Hún fædd- ist 6. sept. 1885 á Kleppustöðum í Strandasýslu, elsta dóttir hjónanna Helgu Markúsdóttur og Felix Eiríks- sonar. Árið 1909 giftist hún Ásmundi Þórðarsyni og bjuggu þau i Neðri- Brekku i Saurbæ. Ásmundur lézt 1934 og fluttist Markrún þá til Hafnar- fjarðar. Hrefna Erlendsdóttir Hollan lézt í Landakotsspítala 24. des. Kristín Guðmundsdóttir, Hringbraut 88, lézt að kvöldi 24. des. Jóhanna Hjaltalin Dennis leikkona lézt 26. des. Ása Viglundsdóttir andaðist í Borgar- spítalanum 26. des. Guðlaug Snæbjarnardóttir, Hátúni 10, andaðist i Borgarspítlanum á jóladag, 25. des. Jussi Peltola lézt 15. des. í sjúkrahúsi í Helsingfors. Jarðarförin fer fram 8. jan frá heimili hans að Rantala Sisma, Finnlandi. Gestur Sigfússon, Frambæjarhúsi Eyrarbakka, lézt á Sjúkrahúsi Suður- lands á aðfangadag. Þorkell Kristjánsson fyrrverandi full- trúi, Dalbraut 27, andaðist i Borgar- spítalanum 24. des. Jóhannes Ormsson, Mávahlið 44, lézt í Elliheimilinu Grund 23. des. Drengimir vora ekki f rá unglinga- heimili ríkisins í frétt DV í gær um innbrot fimm drengja kom fram að þeir væru frá unglingaheimili ríkisins í Kópavogi. Kristján Sigurðsson forstöðumaður heimilisins hafði samband við blaðið í gær og sagði þetta ekki rétt. Leiðréttist það hérmeð. BAMBUS BLYS Nýja bikmiið mitt er vist of Htiö, svo ég verö aö skila þvi. Áttu flugbréf undir þaö? Valgeir Guðjónsson bóndi að Daufá í Skagafirði lézt 21. des. sl. Hann fædd- ist 17. jan. 1929, sonur hjónanna Guðjóns Jónssonar og Valborgar Hjálmtýsdóttur sem bjuggu að Tungu- hálsi. Valgeir útskrifaðist úr Hólaskóla 1949 og kvæntist Guðbjörgu Felixdótt- ur. Þau eignuðust einn son og þrjár dætur. Happdrætti karlakórs Reykjavfkur Dregið hefur verið út hjá Borgarfógeta í happdrætti Karlakórs Reykjavíkur og komu eftirtalin númer upp: 1.2570 Ferð til Ítalíu. 2. 2734 Ferð og dvöl í sumarhúsi i Danmörku. Happdrætti Sambands ungra framsóknarmanna Vinningsnúmerin eru í réttri röð frá 1 .-24. desember: 4498; 1983; 1647; 3933; 4346; 2118; 4964; 2122; 4379; 4133; 3067; 3066; 3927; 4656; 3241; 3409; 4189; 3424; 1030; 3842; 4634; 2858; 4825 — 24. desember var 2794. Gjöf til Skála- túnsheimilis (Mos- fellssveit Nú rétt fyrir jólin afhentu eigendur veitingastaðarins Lauga-ás, þeir Gunnlaugur Heiðarsson og Ragnar Guðmundsson, Skálatúnsheimilinu Mosfellssveit vönduð hljómflutningstæki sem ætluð eru til nokt- unar 1 dagstofu vistmanna. Ekki er að efa að þessi höfðinglega gjöf verður vistfólkinu til mikillar ánægju, enda hefur það ákaflega gaman af hljóm- list. Á meöfylgjandi mynd eru eigendur Lauga-áss Gunnlaugur Heiðarsson og Ragnar Guðmundsson, ásamt Hreggviði Jónssyni framkvæmdastjóra Skálatúns og Björgvin Jóhannssyni forstöðumanni heimilisins. Tapað — fundið Lyklakippa með tveimur bíllyklum tapaðist í mið- bænum í gærdag. Finnandi vinsamlegast hafi sam- band við DV, ritstjórn. Fundarlaun. Yfir 500SAAB seldir á árinu Hinn 21. des. sl. var afhentur hjá SAAB-umboöinu fimmhundraðasti SAAB-inn á þessu ári. Myndin hér að ofan var tekin er eigendurnir Þor- steinn Steingrímsson og Sigríður Anna Þorgríms- dóttir tóku við bílnum. Með þeim á myndinni eru Ingvar Sveinsson, forstjóri Töggs og Garðar Eyland framkvæmdastjóri. SAAB-inn hefur átt miklum vinsældum að fagana, og munu nú vera um það bil 3.200 SAAB- bílar á öllu landinu. Ferðafélag fslands Gönguferð sunnudaginn 3. janúar. Kl. 11 — Grimmansfell í Mosfellssveit. Létt ganga. Fararstjóri: Þorsteinn Bjarnar. Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum. Verð kr. 50.- Farið frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Far- miðarvið bil. Útivistarferðir Nýársferfl i Þórsmörk 1.—3. janúar Farið kl. 13 á föstudag (nýársdag) frá BSÍ. Göngu- ferðir við allra hæfi. Brenna, flugeldar og kvöld- vaka. Komiö i bæinn á sunnudagskvöld. Upplýs- ingar og farseðlar á skrifstofu Útivistar, Lækjargötu 6a, simi 14606. Eftirgjöf aðflutningsgjalda af bifreiðum til öryrkja Ráðuneytiö tilkynnir hér með, að frestur til að sækja um eftirgjöf aðflutningsgjalda af bifreið til öryrkja skv. 27. tl. 3. gr. toilskrárlaga er til 15. febrúar 1982. Sérstök athygli er vakin á því að sækja skal um eftirgjöf á nýjum umsóknareyöublöðum og skulu umsóknir ásamt venjulegum fylgigögnum sendast skrifstofu öryrkjabandalags íslands, Hátúni 10, Reykjavik, á tímabilinu 15. janúar til 15. febrúar 1982. HAPPDRÆTTI ST YRKT ARFÉLAGS VANGEFINNA Vinningsnúmer: 1. vinningur, BMW bifreið 518, á miða nr. 22247. 2. vinningur, bifreið að eigin vali að upphæð fyrir kr. 100 þús., á miða nr. 29265. 3. -10. vinningur, húsbúnaður að eigin vali að upphæð kr. 20 þús. hver, nr. 3134—5286—6217—20758—52513— 86031—99700—100566. Félagið flytur öllum hugheilar þakkir fyrir veittan stuðning. Styrktarfélag vangefinna. Logandi bambusblys sem hægt er að nota aftur og aftur. Þarf aðeins að fylla hylkið af steinolíu og þá helst loginn í 2-3 tíma, þolir vind og regn, og gefur gott Ijós. Gefur sérstakan hátíðablæ. Tilvalið í GARÐINN - Á LEIÐIÐ í KIRKJUGARÐINN - FYRIR SKÍÐAFÓLK, í BLYSFARIR - TIL AÐ KVEIKJA Á RAKETTUM O.FL. verslunin Manila Suðurlandsbraut 6, sími 31555 DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1981. íslandsmót Andlát Jshotokan karate í gærkvöldi I gærkvöldi Happdrætti Pennavinir Tilkynningar „Æ, EKKIHREKKJA MIG”! Sjónvarpsdagskráin í gærkvöldi var með skárra móti af mánudegi að vera, en oft á tíðum finnst mér að betur mætti vanda til mánudags- kvöldanna. Einhver áramótagalsi virðist vera kominn í sjónvarpsmenn, ef marka má byrjun fréttanna í gær. Það fyrsta sem heyrðist í fréttatímanum var neyðaróp Sonju Diego „Æ ekki hrekkja mig” og þegar liða tók á fréttatímann sá maður að stutt er í áramótin. Tom og Jenni standa alltaf fyrir sinu og finnst mér að þeir mættu sjást oftar en einu sinni í viku. Það ánægjulegasta við kvöldið var að bú- ið er að gera nýja mynd um meðferð gúmbjörgunarbáta, en gamla myndin, sem búið er að sýna mörg hundruð sinnum, var að gera sjónvarpsglápara vitstola. íþróttir Bjarna Fel. voru með lélegra móti að því leyti að sýndur var tapleikur íslands í körfuknattleik gegn Hollandi, sem er sá lélegasti sem ég hef séð. Sænska myndin Við vorum þó heppin með veður kom mér á óvart, ég hélt að Svíar gætu ekki gert gamanmyndir. Þessi fékk mann til að hlæja, kannski vegna þess að þarna var komið náiægt okkur íslendingum og lýst sumarfríi einnar fjölskyldu þar sem allt gekk á afturfótunum. Við gætum örugglega gert gaman- mynd um þetta efni eri bara ennþá skemmtilegri. Kanadíska fræðslu- myndin um ófrjósemi fannst mér góð og það verður að segjast eins og er að Kanadamenn eru snillingar í gerð fræðslumynda. í dagskrárlok kom svo Bjarni Fel. með valda kafla úr landsleik íslendinga og Dana í hand- knattleik, sem því miður tapaðist, en þetta framlag sjónvarpsins, að koma með leikina glóðvolga á skjáinn, ber að þakka. Dularfullt bros Guðrúnar Ólafsdóttur þulu í lok dagskrár minnti mann aftur á að stutt er í áramót. Magnús Ólafsson. Kiwanisklúbburinn Hekla Jóladagatalahappdrættið Vinningsnúmer 1. des. no. 574, 2. des. no. 651, 3. des. no. 183, 4. des. no. 1199, 5. des. no. 67, 6. des. no. 943, 7. des. no. 951, 8. des. no. 535, 9. des. no. 1004, 10. des. no. 2344, 11. des. no. 172, 12. des. no. 1206, 13. des. no. 593, 14. des. no. 2308, 15. des. no 2103, 16. des. no. 382, 17. des. 1997, 18. des. no. 459, 19. des. no. 950, 20. des. 1000, 21. des. 2255, 22. des. 175, 23. des. no. 2000, 24. des. no. 2. Systur óska eftir pennavinum: Jcannc Weener (15 ára) og Fredrike Weener (18 ára), Tollenburg 32,NL-6714 EK EDE (gld), Netherlands. Oliver Pain Thierville 27140 Gisors France. 18 ára gamall franskur piltur óskar eftir penna- vinum, piltum eða stúlkum, á hvaða aldri sem er. Skrifarensku.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.