Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1981, Page 32
32
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1981.
Nýjar bækur
Nýjar bækur
Nýjar bækur
Einleikarinn
eftir Jack Higgins
Út er komin hjá Leiftri bókin „Einleik-
arinn” eftir Jack Higgins. Áður hafa
fimm bækur komið íit eftir Higgins á
íslensku, en þeirra frægust er vafalaust
„örninn er sestur”.
Um efni bókarinnar segir meðal
annars svo á bókarkápu:
Mikali var heimskunnur og eftir-
sóttur einleikari. Hvar sem hann fór
var honum tekið sem aufúsu-
gesti. Þá var kvenhylli hans við brtiiLð-
ið. En hann iifði tvöfjöldi lífi, þvi að
jafnframt var hann einnig grimmlynd-
asti morðinginn, sem lagði leið sína um
stórborgir Evrópu. Hann vann verk sitt
eingöngu vegna spenningsins, en
hvorki af hugsjón né i hefndarskyni.
Einleikarinn er 224 blaðsíður að
stærð, Ólafur Ólafsson ísienskaði.
Leiftur hf. prentaði.
Ég vil líka lifa
eftir Ednu Hong
Bókaútgáfan Salt hefur sent frá sér
bókina Ég vil líka lifa eftir bandaríska
rithöfundinn Ednu Hong.. Sr. Jónas
Gíslason dósent þýddi bó',..na.
Ég vil líka lifa er þroskasaga
Gunthers, sem var fæddur fatlaður.
Hann var talinn einskis nýtur og látinn,
afskiptalaus. Honum er komið fyrir á
heimili fyrir vangefna og fatlaða og þar
mætir hann í fyrsta sinn kærleika og
umhyggju. Er því lýst hvernig hann
verður smámsaman nýtur þegar hann
fær verkefni við sitt hæfi. Edna Hong
er bandarísk og er Ég vil líka lifa ein af
þekktustu bókum hennar. Hlaut hún
árið 1977 heiðursdoktorsnafnbót við
Saint Olav College í Minnesota.
Ég vil líka lifa vekur til umhugsunar
á ári fatlaðra. Prentverk Akraness
annaðist prentun og bókband og
Guðlaugur Gunnarsson teiknaði kápu-
mynd.
Úr fylgsnum
fyrri tíöar
Ólöf Jónsdóttir tók saman
Komin er út hjá Bókamiðstöðinni
bókin Úr fylgsnum fyrri tiðar og er það
annað bindi í ritsatni með þessu nafni
sem Ólöf Jónsdóttir hefur tekið saman
og búið til prentunar. Fyrra bindið
kom út fyrir þremur árum og hafði að
geyma frásagnaþætti eftir 15 íslend-
inga.
Þetta bindi fiytur frásagnir 10 þjóð-
kunnra íslendinga um lifsreynslu þeirra
og frásagnarverða þætti úr lifi þeirra
og kennir þar margra grasa.
Þeir sem eiga þætti í öðru bindi af
bókinni Úr fylgsnum fyrri tiðar eru:
Sverrir Júiíusson, dr. Hallgrímur
Helgason, Helgi S. Eyjólfsson, Baldvin
Þ. Kristjánsson, Ingvar Agnarsson,
Ormur Halldórsson, séra Björn Jóns-
son, Zóphonías Pétursson, Ásgeir
Guðmundsson og Þorsteinn Matthías-
son. Er hér um mjög fjölbreytt frá-
sagnarefni að ræða og kennir margra
grasa úr islenzku þjóðlífi.
Útgefandi er Bókamiðstöðin.
GSTslBJÖRG SKilíRÐARÍKVn ii
Voríð kemur bráðum .
Vorið kemur
bráðum...
eftir Ingibjörgu Sigurðardótt-
ur
Bókaforlag Odds Björnssonar hefur
gefið út bókina Vorið kemur bráðum
eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur.
Bókin fjallar um heitar ástir,,
tryggðarof og mannlegan breiskleika.
Ástin er þó ætíð það afi sem fer með
sigur af hólmi í viðureign við sálarkuld-
ann . . . . og vorið kemur.
Söguþráðu’r bókarinnar er spennandi
og lýsir íslenzkum raunveruleika.
Vorið kemur bráðum er 188 blað-
síður aðstærð. Prentverk Odds Björns-
sonar annaðist prentun.
Með sand í
augum
eftir Jónas Guðmundsson
Bókaútgáfan Skáprent í Reykjavík
hefur gefið út ijóðabókina Með sand í,
augum eftir Jónas Guðmundsson rit-
höfund. Er þetta 16. bók höfundar en
önnur ijóðabókin sem hann iætur frá
sér fara.
Á kápu bókarinnar segir Helgi
Sæmundsson ritstjóri meðal annars:
Jónas Guðmundsson er iöngu þjóð-
kunnur af skáldskap sínum og mál-
verki og hér dregur hann upp einkenni-
legar og áhrifaríkar ljóðmyndir sem
sprottnar eru úr islenzkum raunveru-
leika en búa yfir töfrum og dul ef betur
er að gætt. Umhverfis kvæðin vakir
aðsteðjandi veður og nálægð hins
mislynda úthafs er umlykur hólmann
römmum blævi og yfirskilvitlegri birtu
þegar brugðið getur til beggja vona á
snöggu augabragði iíðandi stunda.
Með sand i augum er 56 blaðsíður að
stærð, kápu teiknaði Þorvaldur Skúla-
son. Skáprent prentaði en bókbands-
vinnu annaðist Bókfeii hf.
Lykillinn
að Rebekku
eftir Ken Fallett
Lykillinn að Rebekku heitir bók sem
Bókaforlag Odds Björnssonar hefur
gefið út. Höfundur bókarinnar er Ken
Follett en Hersteinn Pálsson íslenzkaði.
Þetta er hörkuspennandi njósnasaga
úr seinni heimsstyrjöldinni. Sögusviðið
er Kairó árið 1942. Rommel sækir að
höfuðborg Egyptalands með eyði-
merkurher sinn og vinnur hvern sigur-
inn á fætur öðrum. Honum tekst hvað
eftir annað að koma óvinum sínum að
óvörum og það er eins og hann viti um
allar þeirra ráðagerðir.
í Kairó starfar þýzkur njósnari og
honum tekst að afla dýrmætra upp-
lýsinga um bardagaaðferðir banda-
manna. Þeim upplýsingum tekst
honum að koma til Rommels með því
að nota dulmál. Lykillinn að dulmáli
hans er því jafnframt lykillinn að sigri
nasista í Egyptalandi.
Líkaböng
hringir
eftir Gunnar Bjarnason
Bókaforlag Odds Björnssonar hefur
sent frá sér bókina Líkaböng hringir
eftir Gunnar Bjarnason.
í þessari bók segir Gunnar Bjarnason
frá ýmsum afskiptum sínum af mál-
efnum landbúnaðarins. Fyrst og fremst
er þetta þó sagan um eins vetrar skóla-
stjóradvöl hans á Hólum í Hjaltadal,
forsögu þess og eftirmála.
Á meðan Gunnar var skólastjóri á
Hólum voru geysilega mikil blaðaskrif
um störf hans þar. Endaði það með því
að hann var hrakinn frá störfum af
flokksbróður sínum, Ingólfi Jónssyni
frá Hellu, þáverandi landbúnaðarráð-
herra. Fleiri háttsettir menn komu hér
við sögu og í bókinni jafnar Gunnar
reikningana.
Líkaböng hringir er 279 blaðsíður að
stærð. Prentverk Odds Björnssonar
prentaði.
Andandi
eftir Kristján Hreinsmögur
Komin er út ljóðabókin „Andandi”
eftir Kristján Hreinsmögur. Höfundur
gefurbókina út.
Andandi er fjórða ljóðabók Kristj-
áns, en áður hafa komið út eftir hann
bækurnar Málverk, Og, og Friðryk.
í bókinni eru tólf ljóð, en bókin er 29
blaðsíður að stærð. Ljósmynd á kápu
tók Linda Jóhannsdóttir. Bókin er sett
og brotin um hjá Acta hf. Filmur voru
unnar i Prentþjónustunni hf., en prent-
un hjá Sóinaprent hf.
Gull í
mund
eftir Þuríði Guðmundsdóttir
Gull í mund heitir ný skáldsaga eftir
Þuríði Guðmundsdóttur frá Bæ og er
þetta fjórða bók höfundar á síðustu
fimm árum. Þetta er saga ásta og
sveitalífs eins og það var lifað hér fyrr á
árum og hafa söguhetjurnar verið
kynntar í fyrri bókum Þuríðar og
einnig sögusviðið. Er haldið áfram að
segja ástar- og baráttusögu ungra
hjóna á fyrstu tugum aldarinnar og
gerist sagan öll fyrir vestan. Þuríður
Guðmundsdóttir frá Bæ hefur náð
háum aldri en lætur engan bilbug á sér
finna og sendir frá sér nýja bók á nær
hverju ári. Stutt er síðan ljóðmæli
hennar voru gefin út og Þuríður er með
skáldsögu í smíðum um þessar mundir.
Gull í mund er gefin út af Bókamið-
stöðinni sem annast hefur prentun, en
bókin er sett hjá Prentsm. Ásrún.
Bókin er 158 bls.
Guðjón Sveinsson
GIAUMBÆINCÍAM
Á FERÐ OG FIIK rl
Glaumbœingar
á ferð og f lugi
eftir Guðjón Sveinsson
Bókaforlag OJds Björnssonar hefur
gefið út bókina Glaumbæingar á ferð
og flugi eftir Guðjón Sveinsson.
í þessari bók koma við sögu sömu
persónur og í bókinni Glatt er í
Glaumbæ, sem út kom fyrir nokkrum
árum. Hér segir frá fjölskyldu sem býr i
sveit og segir einn yngri fjölskyldu-
meðlimurinn frá. Fjölskyldan fer til
Reykjavíkur og lendir þar, og á leið-.
inni, í ýmsum skemmtilegum ævin-
týrum. Einnig er sagt frá daglegum
störfum í sveitinni á raunsæjan hátt,
enda er höfundurinn bóndi.
Glaumbæingar á ferð og flugi er
einkum hugsuð sem barna og unglinga-
bók. Hún er 190 blaðsíður að stærð,
Prentverk Odds Björnssonar sá um
prentvinnu.
Ennþá sigli
ég sjóinn
Ennþá sigli ég sjóinn er annað bindi
sjóferðasagna Hrafns Valdimarssonar,
fært í letur af Gunnari M. Magnúss
rithöfundi.
Fyrra bindið, Ég sigli minn sjó, kom
út fyrir tíu árum og vakti þá mikla at-
hygli. í þessum bókum segir Hrafn frá
sjóferðum sínum um öll heimsins höf
en hann er eins og Hollendingurinn
fljúgandi, á sifeldri ferð um heims-
höfin.
Á ferðum hans ber margt fyrir augu
og Hrafn segir á lifandi og hressilegan
hátt frá því sem fyrir augu ber í fram-
andi og fjarlægum löndum.
í formála segir Gunnar M. Magnús
m.a.: „Hann hefur siglt langferðaleiðir
um heimshöfin, komið í allar álfur og
séð meira af heiminum en fiestir eða
allir aðrir íslendingar. Hrafn hefur
oftar en talið verður farið yfir mið-
jarðarlínuna og kynnst veðrum úthaf-
anna, einnig notið draumalífs far-
mannsins. Frásögn Hrafns er hreinskil-
in og forvitnileg.”
Ennþá sigli ég sjóinn er 167 bls., út-
gefandi Bókamiðstöðin sem annaðist
prentun en setningu vann Prentver.
Almanak
Jóðvina-
félagsins
Ný bók er komin út eftir Ólaf Hauk
Símonarson og nefnist Almanak Jóð-
vinafélagsins. Það er Mál og menning
sem gefur bókina út.
Ólafur Haukur Símonarson er vel
kunnur af verkum sínum og hefur
komið víða við. Eftir hann hafa komið
út skáldsögur, ljóð og smásögur. Hann
hefur samið leikrit, lagatexta og söng-
lög sem komið hafa út á hljómplötum
o.fl. Á siðasta ári kom út hjá Máli og
menningu skáldsagan Galeiðan sem
fékk lofsamlega dóma en kunnastur
mun Ólafur Haukur vera fyrir skáld-
sögu sína Vatn á myllu kölska sem kom
út hjá sama forlagi 1978.
Almanak Jóðvinafélagsins er ljóð-
saga. Ólafur Haukur ritar dagbók sem
er skráning alls í senn: Leitar skáldsins
að óvininum sem ætlar að tortíma
heiminum í kjarnorkustyrjöld innan
næstu 1050 daga frá því sagan hefst,
hversdagslega skáldlegs lifs í Reykja-
vík, vonar, vonleysis og ótta, tilhlökk-
unar skáldsins og eftirvæntingar
meðan það bíður þess að verða faðir.
Frásögnin er full af ádeilu og skopi,
fleyguð ljóðum og hversdagslegri lifs-
speki.
Almanak Jóðvinafélagsins er í vasa-
bókar- eða dagbókarbroti, 83 bls. að
stærð. Sigrid Valtingojer gerði kápuna.
Bókin er unnin i Prentsmiðjunni
Hólum hf.