Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1981, Side 33
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1981.
33
Menning Menning Menning
cý y
Áfengislaus
nýársfagnaður
ad Hótel Sögu — Lækjarhvammi
nýársdag — föstudag 1. janúar 1982!
Hefst meö boröhaldi kl. 19.00
VÖNDUÐ SKEMMTIATRIÐI:
SKEMMTUN FYRIR ALLA ÞÁ, SEM VILJA
SKEMMTA SÉR ALGÁÐIR.
Miöar seldir í Skóbúðinni, Laugavegi 62, kl. 9—
19 þriðjudag 29/12 og miðvikudag 30/12 og aö
Borgartúni 23,2. hæð,
kl. 20—22 sömu daga.
Upplýsingar í síma
27440 og 27655.
Skemmtinefiid
Freeport-klúbbsins
Þrátt fyrir að vera barnamynd að flestu leyti, eða alla vega að höfða til barnsins i okkur öllum, þá ber myndin stundum
húmanískan og vel tímabæran boðskap.
Mynd fyrir barnið
í okkur öllum
Flest atriðanna eru spaugileg, en aldrei drepfyndin enda svo sem ekkj tiljiess ætlast.
Jón Oddur og Jón Bjarni.
Loikstjóri: Þráinn Bortelsson.
Leikendur: Póll og Wilhelm Sœvarssynir,
Steinunn Jóhannesdóttir, Egill Ólafsson.
Framleiðandi: Noróan 8.
Sýningarstaflur: Hóskólabíó.
Hver hefði trúað því fyrir svona 5 ár-
um, að á jólunum 1981 myndu vera
sýndar tvær íslenskar kvikmyndir,
myndir sem standast kröfur unt gæði?
Þetta er samt tilfellið og virkilega
ánægjulegt. Það er að bera í bakkafull-
an lækinn að ræða gæði „Útlagans”,
enda tæpast jólamynd. ,,Jón Oddur og
Jón Bjarni” stendur hins vegar undir
nafninu jólamynd/fjölskyldumynd,
ennfremur sem íslensk kvikmynd sem
nýtir sér sjónarhól barna og sakleysi
þeirra, með þvi að sýna okkur spaugi-
lega — jafnt sem alvarlega — atburði
daglegs lífs.
Myndin er því röð atburða — kafla
úr bók? — sem hafa sinn eiginn stíg-
anda og ris. Það er ekki mikið um þessa
atburði að segja og vart annað hægt en
að fagna fagmannlegum vinnubrögð-
um allra aðstandenda í gerð þeirra.
Margir kynnu ef til vill að halda að
myndir væri þá ekkert annað en röð af
„skissum” og hefði ekkert heildayfir-
bragð. Þráinn kentur kvikmyndun á
bókum Guðrúnar Helgadóttur (sem ég
hef ekki lesið, en hyggst gera) lil hjálp-
ar með þvi að láta heimsókn og brott-
förn Kormáks afa mynda rantma um
alla þessa títtnefndu atburði, Áður-
nefndur skortur á heildaryfirbragði er
því ekki fyrir hendi.
Flest atriði myndarinnar eru spaugi-
leg, en aldrei drepfyndin enda svo
sem ekki til þess ætlast. Húmorinn er
eðlilegur og verður til úr atvikum sem
gætu gerst oggerast oft, eins og t.d. hið
spaugsama atvik þegar pabbi tvibur-
anna tapar fötum sínum og eftirleikur
þess.
Þrátt fyrir að vera barnamynd að
satt. Ósannindi og hræsni (afmælisboð
ömmu Dreka) eru aðeins til hjá full-
orðnum, og má með sanni segja að full-
orðnir geti talsvert af Jóni Oddi og
Jóni Bjarna lært.
Öll predikun í kvikmyndum er mér
talsvert á móti skapi, en einmitt það
tekur nokkurn brodd og trúverðugheit
úr umfjöllun myndarinnar um vangefin
börn og jafnvel vandainál (vont orð)
aldraðra. Flest í kringum vangefnu
stúlkuna Selmu er vandræðalegt og
boðskapurinn — predikunin öllu frek-
ar— uppáþrengjandi.
Þrátt fyrir þennan galla, sem verður
að telja minniháttar, þá líður myndin
hratt og vel áfram. Þráinn kann að
byggja upp sín atriði og Iteld ég að öll
FLUGELDAMARKAÐUR
FISKAKLETTS
Býður upp á fjölbreytt úrval
af flugeldum á hagstæðu verði.
Aðal
útsölustaður [
Helluhraun
- t
Fjarffar- Hjallahraun 9
kaup Sími 52634
Trönuhraun.
Styrkið starf björgunar-
sveitarinnar
Pris-ma
c
5
c
o
t
Flugeldar
Blys— Sólir
Gos — Stjörnuljós
Fjölskyldukassar á
kr. 130,-
kr. 180,- kr. 250,-
Útsölustaöir einnig:
Strandgötu 4
Lækjargötu 32
Reykjavikur vegur
h
Athugið:
Flugeldasýning 29. des.
kl. 20.00 að Hjallahrauni 9.
Jóiatrés-
skemmtun
verður haldin að Hótel Sögu, Súlnasal, sunnudaginn 3.
janúar 1982 og hefst kl. 15 síðdegis.
Aðgöngumiðar verða seldir á skrifstofu Verzlunarmanna-
félags Reykjavíkur að Hagamel 4. ____
Miðaverð: Börn kr. 45,00 fullorðnirkr. 15,00
Tekið verður á móti pöntunum í símum 26344 og 26850.
Verzlunarmannafólag Reykjavíkur.
flestu leyti, eða alla vega að höfða til
barnsins i okkur öllum, þá ber myndin
stundum húmanískan og vel tímabær-
an boðskap. Boðskapur þessi fjallar yf-
irleitt um umgengnisvenjur og siðferð-
isreglur dagsins í dag, hversu rangar
þær eru og oft hvernig þær ættu frekar
að vera. T.d á að Ijúga þegar sannleik-
prinn kann að meiða? Við vitum að
bórn eru saklaus og því engin furða
þegar tvíburarnir skilja ekki foreldra
sina fyrir að skamma þá fyrir að segja
Kvikmyndir
Örn Þórisson
frásögnin sé auðgripin fyrir börn, án
þess þó að vera barnaleg.
Leikarar standa sig tneð prýði, ungir
sem aldnir. Engir ofleika, frekar und-
irleika fallega eins og Sleinunn og Egill
1 hlutverkum foreldra tvíburanna.
Krakkarnir standa sig allir prýðilega,
þrátt fyrir framsagnarerfiðleika. Hvað
frammislöðu krakkanna varðar má
þakka leikstjórn Þráins og natni Itans
við smávægilegustu atriði. Vísanir i
eldri islenskar kvikmyndir eru
skemmtilegar og takast að öllu leyti.
Ég ætla að sleppa lesendutn við allar
upptalningar á gæðuin og göllum vinnu
fólks sem lagt hefur a.m.k. Itálfl ár af
ævi sinni til að búa til 90 mínútna
mynd. Ég kýs frekar að hvetja fólk til
að sjá fyndna og þroskandi (annað
vont orð) kvikmynd, sem að mörgu
leyti er í betra jafnvægi en aðrar is-
lenskar myndir. „Jón Oddur og .lön
Bjarni” er kjörin fyrir börn (varla
yngri en aðalpersónurnar) og ekki síður
ákjósanleg fyrir uppalendur.