Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1981, Blaðsíða 36
Keypti ríkið vatnsrétt-
indin af röngum aðila?
—ernústefnttilaðgreiöaþauíaimaðsinn
Tveim ráðherrum og tveim raf-
magnsveitustjórum hefur nú verið
stefnt fyrir hönd ríkisins í bæjarþingi
Reykjavíkur til greiðslu á rúmlega
2,3 milljónum króna, auk vaxta í 25
ár og kostnaðar, fyrir fossa- og
vatnsréttindi i fjórum ám á Vest-
fjörðum. Ríkið keypti raunar
réttindin í desember 1%1 en
stefnendur halda því fram, að
seljandi þá hafi eignað sér þau með
röngu og líklegast fölsuðu afsali.
Það eru tvær systur í Danmörku,
dætur og einkaerfingjar Snæbjarnar
Fornjóts, sem nú krefja ríkið um
þessa greiðslu, nkr. 2.321.182, auk
2% vaxta frá 1.1.1956 og alls
kostnaðar, en Snæbjörn átti fossa-
og vatnsréttindi í Dynjandisá, Svíná,
Mjólká og Hofsá í Auðkúluhreppi, í
landi jarðanna Dynjanda, Borgar og
Rauðsstaðar. Snæbjörn lézt
13.7.1953, en hafði skilið við konu
sína og móður stefnanda 14 árum
áður.
í desember 1961 keypti ríkissjóður
þessi umræddu vatnsréttindi af
Orkuvötnum hf. fyrir gkr. 1.880.000,
auk vaxta frá í ágúst 1956.
Stefnendur nú segja, að þetta félag
hafi aldrei eignazt réttindin. Afsal til
félagsins frá móður þeirra hafi verið
falsað, auk þess sem hún hafi ekki
verið erfingi að réttindunum.
Afsali Ebbu von Kaulbach til
Orkuvatna hf., er þinglýst á ísafirði
19.7.1954, en það dagsett í Malmö í
Svíþjóð 29.6. það ár. Það er bæði
óundirritað og ekki vottað með
undirritunum. í því er vísað til
þinglýsts endurrits úr skiptabók
Frederiksbergs frá 1953, en þar er
ekki minnzt á vatnsréttindin. Loks
telja stefnendur sig geta sannað að
móðir þeirra og lögmaður, sem var
annar tilgreindra votta á afsalinu,
hafi ekki verið í Svíþjóð afsals-
daginn! Fullyrða stefnendur að
frumrit þessa afsals hafi aldreið verið
til.
Hlutafélagið Orkuvötn var
samkvæmt heimildum DV eingöngu
stofnað vegna viðskipta með þessi
vatnsréttindi og er ekki lengur til.
Eigendur þess munu allir vera látnir.
Fyrir hönd stefnenda, systranna
Bente Marie Kaulbach Fornjótur og
Hedde Birgit Stoklund, fer Jón E.
Ragnarsson hrl. með málið á hendur
ríkinu. Fjármálaráðherra, iðnaðar-
ráðherra, rafmagnsveitustjóra
ríkisins og framkvæmdastjóra
Orkubús Vestfjarða er stefnt fyrir
ríkisins hönd. -HERB.
Æft af fullum krafti
„Þaö er mikffl spenningur í mönnum og afflr ákveðnir í aö gera þetta sem bezt úr garði,"
sagðiÁrni Reynisson, framkvæmdastjóri ísienzku óperunnar, við DV ímorgun. Æfingará
Sígaunabaróninum standa nú yfir. Er ætiunin að frumsýna óperuna 9. janúar næst-
komandi. Sem sjá má er eftir að ganga frá í salnum í Gamla bíói. Smíðum er hins vegar að
mestu lokið. DV-mynd Bjarnleifur.
m Kópavogur:
Fjögur hundaleyfi en
70 hundar hreinsaöir
—ákveðið að kjósa bæði um hunda og menn í vor
Stórþjófnaöurinn
á Akureyri:
50. þús. kr.
verðlaunum
heitið
„Við höfum heitið þeim vegleg-
um verðlaunum sem stuðlað geta að
því að upplýsa þetta innbrot,”
sagði Skúli Ágústsson einn af eig-
endum Hölds á Akureyri. Talaði
Skúli um 50 þúsund króna verð-
laun. Heildarverðmæti þess sem
stolið var úr peningageymslu Hölds
aðfaranótt Þorláksmessu var um
300 þúsund krónur.
Þýfið hefur þjófurinn eða þjóf-
arnir haft með sér á brott í tveimur
skjalatöskum. Fjölskylda Guð-
mundar Knudsen dýralæknis á
Akureyri fann töskurnar í kanti
þjóðvegarins skammt norðan við
Akureyri annan dag jóla. í töskun-
um voru ávísanir, bensínnótur og
önnur verömœt skjöl sem ekki gátu
komið þjófnum eða þjófunum að
gagni. Verðmætið sem fannst var
um þriðjungur þess sem stolið var.
Þeir sem gefið geta upplýsingar
eru beðnir að snúa sér til rannsókn-
arlögreglunnará Akureyri.
GS—Akureyri
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti
samhljóða föstudaginn 18. des., að
samhliða bæjarstjórnarkosningum í
vor skuli kosið um hundahald í bæn-
um. Átta bæjarfulltrúar samþykktu
þetta en þrír sátu hjá. Tillaga um
hundakosningarnar kom frá heilbrigð-
isnefnd bæjarins í kjölfar árlegrar, lög-
skipaðar hundahreinsunar 11. desem-
ber, en þá voru færðir þangað um 70
hundar. Hundaleyfi í Kópavogi eru
hins vegar aðeins fjögur.
Hundahreinsunin hefur verið eins
konar óformleg hundatalning í og með
undanfarin ár og er niðurstaðan nú sem
næst sú sama og í fyrra. Þó er talið að
allmörgum hundum sé skotið undan
hreinsun og því megi reikna með að
Kópavogshundar séu jafnvel á annað
hundrað að tölu og þá næstum allir
leyfislausir. Þau fjögur leyfi sem i gildi
eru hafa verið veitt fólki vegna fötlunar
og af sérstökum ástæðum.
Óleyfilegt hundahald í Kópavogi
hefur verið talsvert vandamál um ára-
bil, ekki sízt eftir að hundahald var
leyft að nýju í öðrum nágrannabæjum
en höfuðborginni eftir tilteknum regl-
um. Þegar hundahreinsun í fyrra leiddi
i Ijós að tugir óleyfilegra hunda væru í
bænum tók Ásgeir Pétursson bæjar-
fógeti að sér að semja tillögur um úr-
kosti. Er líklegt að kosið verði um þær
tillögur í vor í framhaldi af samþykkt
bæjarstjórnar nú.
Áður hefur verið skýrt frá því í DV
að forkosningar vegna bæjarstjórnar-
kosninganna í Kópavogi verði í febrú-
arlok. Hundakosningarnar verða hins
vegar ekki fyrr en i vor.
HERB
frýálst, úháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 29. DES. 1981.
HÖRMULEGTSLYS
ÍVOPNAFIRDI:
Þriggjaára
drengur
drukknaöi
Það sviplega slys varð við bæinn
Fremri-Nípur í Vopnafirði, síðla dags t
gær, að þriggja ára drengur féll ofan í
vatnskeldu og drukknaði.
Drengurinn mun hafa farið út úr
húsi um klukkan 15.30 í gærdag og
freistazt til að leika sér við kelduna,
sem er um eins metra djúp og í rúmlega
hundrað metra fjarlægð frá bænum.
Fljótlega var farið að svipast um eftir
honum og fannst hann látinn um
klukkan 17.30.
-JB.
Lögbann á
þrjár mynd-
bandaleigur
Lögbannsúrskurður hefur nú verið
kveðinn upp yfir þremur myndbanda-
leigum að kröfu Jóns Ragnarssonar,
eiganda Regnbogans. Regnboginn
hefur einkaleyfi á myndum frá EMl.
Munu þessar þrjár leigur, Videoval,
Video-spólan og Video-miðstöðin allar
hafaleigtútmyndirfráEMI. _SSy
Ríkiðfékkekki
Landmannaafrétt
Hæstiréttur hafnaði í gær kröfu
ríkisins um eignarétt að Landmanna-
afrétti. Klofnaði rétturinn í afstöðu til
málsins, þrír dómarar synjuðu kröfu
ríkisins en tveir vildu að hún næði fram
að ganga.
í undirrétti féll dómur í máli þessu
síðla árs 1978. Var hann ríkinu í hag.J
Áfrýjuðu nokkrir hreppar í Rangár-
vallasýslu þeim dómi.
-KMU.
LOKI
Friðjón mun nú hafa fyrirgert
rótti sínum til sendiherra-
stöðuí Moskvu.
q ískalt
oeven up.
hressirbetur.