Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1982, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1982, Blaðsíða 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER1982. 7 Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Marentza Poulsen vlð matargerð á heimili sínu vestast í Reykjavík. DV-mynd: EO. ROGNADRÝLUR EDA HROGNABOLLUR Einn kemur þá annar fer, það er gangurinn i áskorendaþættinum og reyndar víðar. Síðasta þriðjudag var Hrefna Hilmarsdóttir frá Vestmanna- eyjum áskorandi og beindi hún þeim tilmælum til Marentzu Poulsen að hún tæki við í dag. Marentza er fædd í Færeyjum en kom fyrst til Islands árið 1964 og hefur búiö hér síðan, ef frá er talið stutt timabil sem hún var í Dan- mörku. Hrefna haföi orð á því í sinni áskorun að færeysku fiskibollurnar hennar Marentzu, sem nefnast KNETTIR, væru mjög vinsælar meðal vina og vandamanna. Það var fyrr á þessu ári sem einn áskorandinn, einmitt frá Færeyjum, kom með uppskrift af þess- um ágætis bollum, svo það var horfið frá því að birta þá uppskrift frá Marentzu. I staðinn fáum við uppskrift af hrognabollum eða rognadrýlum, sem víst eru ekki verri. I samtali okkar Márentzu kom f ram að hún er lærð smurbrauösdama og starfar á vetuma sem veitingastjóri í Oddfellow-húsinu. Talið barst að dvöl hennar hér á landi og kom í ljós að hún hefur kosiö hingað til að halda sínum færeyska ríkisborgararétti. , ,Eg þráaðist við í mörg ár, vildi ekki sækja um íslenskanríkisborgararéttog missa nafnið mitt,” sagði Marentza „en nú hefur reglum verið breytt og líklega fer ég fljótlega á stúfana og sækist eftir islenskum ríkisborgarar- étti.” Þetta segir hún með lýtalausum framburði á íslenskunni. Þá eru það uppskriftimar: Föroyskur rognadrýlur Bollur úr hrognum 11/2 kg hrogn •. 800 g hveiti 2 tsk. salt 1/2 tsk. salt 1/2 tsk. pipar 2 tsk. matarsódi 500 g mör Látið f rekar stóran pott með vatni í á helluna. Kreistið hrognin í skál. Skeriö mörinn smátt. Hnoðið hveiti, pipar, salti, matarsóda og mör saman við hrognin (það má líka setja rúsínur út í deigið). Bleytið hendurnar og búið til kringlóttar bollur, frekar stórar. Látiö síöan bollurnar út í sjóðandi vatnið og sjóðið í 25 mínútur, við vægan hita. Hrognabollumar bornar fram meö soðnum kartöfium. Ofnsteiktur fiskur 1 kg rauðsprettuflök salt og pipar safi úr einni sítrónu ldós sveppir (lítil) rækjur 2 dl r jómi Smyrjiö eldfast mót meö feiti. Leggið fiskinn í mótið, kryddið með salti og pipar. Sítrónusafanum hellt yfir fiskinn. Raðiö rækjum og sveppum yfir, hellið síðan rjómanum yfir. Setjið mótið í 225 gr. heitan ofn (lok á mótiö) og bakið í hálfa klukkustund. Borið fram með soðnum kartöflum og fersku grænmeti. Svartfuglsréttur fyrir f jóra f jórar svartfuglsbringur salt og pipar 2 matsk. smjör eða smjörlíki 2 dl vatn 1 dl sýrður rjómi Steikt í potti. Bræðið smjörið, leggið síðan bringurnar í og steikið beggja megin. Kryddið vel meö salti og pipar. Hellið síðan sýrða rjómanum út í og hrærið í. Látið sjóða við vægan hita í 1—1 1/2 klst. Sósa 1 matsk. smjör eða smjörlíki 21/2 matsk. hveiti soð af bringunum 11/2 dl rjómi salt og pipar ef þarf. Borið fram með brúnuðum kartöfl- um, rifsberjahlaupi og rauðkáli (eða grænmetissalati). Sojafars Fyrir þá sem ekki vilja eingöngu snæða kjöt og fisk í ailan mat. 500 g sojabaunir 4 stk. gulrætur 2 stórir gullr laukar 11/2 dl hýðishrisgrjón Vitam Körning (til að sjóða hrísgrjónin í) sveskjur 1 lítil dós af Tartexi (fæst í SS Austurveri og Heilsuhúsinu) 5 tesk. súrsaðar agúrkur (saxaðar) og örlítill lögur sjávarsalt: herbamare Leggið sojabaunirnar í bleyti yfir nótt, sjóðið þær síðan í léttsöltuðu vatni í 1 1/2—2 klst. Sjóðið gulræturnar (gjaman meö sojabaununum síðustu mínúturnar) þartil þær erumjúkar. Sjóðið hýðisgrjónin í ea. 40 mínútur. Hakkið sojabaunirnar, laukinn, gul- rætumar, sveskjurnar, hrísgrjónin og agúrkurnar, blandið síðan tartexinu og kryddinu saman við. Þynnið farsið, sem á aö vera nokkuö þykkt, með örlitlum agúrkulegi. Smyrjið eldfast form og stráið brauðmylsnu í það, látið síðan farsið í formið og bakið í 200 gr. heitum ofni í 40 mínútur. Borið fram með sveppasósu og soðnum kartöflum. Súrmjólkurábætir 8 bl. matarlím 2 dl rjómi 5 dl súrmjólk 1—2 matsk. púðursykur eða strásykur 4—5 matsk. rúsinur 3 matsk. hakkaðar möndlur 1 tesk. vanilludropar Leggið matarlímið í kalt vatn. Þeytið rjómann. Blandið saman súr- mjólk, sykri, rúsínum, möndlum og vanillu. Hellið vatninu af matarlíminu og bræðið. Kæliö síðan með einni matskeið af köldu vatni. Hrærið svo matarlíminu saman við súrmjólkina og síðan einnig þeyttum rjómanum. Látið búðinginn stífna og skreytið með þeyttum rjóma og söxuðummöndlum. Búðingurinn borinn fram með ávaxtasósu eða niðursoðnum ávöxt- um. Næsti áskorandi: Síðast þegar ég var í matarboöi hjá Magneu fékk ég fyllta kjúklinga, sem smökkuðust afbragðsvel. Hún kryddar allan mat af mikilli kúnst. Þetta voru orð Marentzu Poulsen um næsta áskorandann, Magneu Kristinsdóttur húsmóöur í Kópavogi. -ÞG. J\ SPENNUM beltin JMfcb sjálfra okkar WM vegna! trévörurnar DÖNSK GÆÐAVARA y sending

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.