Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1982, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1982, Síða 8
8 Útlönd Útlönd Útlönd DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER1982. Utlönd Mikill gróói af skemmti- ferðaskipum &rsþing breska verkamannaf lokksins: viöhaldi á skipum og fyrst og fremst vörukaupum farþega. Farþegarnir eru aðallega frá Vestur-Þýskalandi og Bandaríkjun- um. Skipin standa stutt við og nota farþegar þann tíma að mestu til að versla. Átta milljónir af þeim 12 milljóna tekjum sem koma inn á mánuöi má rekja til kaupa farþeg- anna á alls kyns vörum í verslunum og vöruhúsum, segir í frétt frá sænska Ferðamálaráðinu. Skemmtiferðaskip þau er heim- sækja Stokkhólm á vinsælasta ferða- mannatímanum gefa af sér góðar tekjur, eða 12 milljónir sænskra króna á mánuði. Tekjur þessarkoma af hafnargjöldum, hafnsögugjaldi, Tóku sendiráð Póllands í Bern og SETJA PÓLSKU STJÓRNINNI ÚRSLITAKOSTI Vinstrimenn biðu ósigur Vinstrisinnar biðu óvæntan ósigur á ársþingi breska verkamannaflokksins, þegar þaö hófst í gær í Brighton að venju. Fulltrúar létu vilja allsherjar- ráðsins sem vind um eyrun þjóta og knúðu í gegn skipulagsbreytingar, sem auka munu áhrif þeirra verkalýðsfé- laga er fremur þykja hófsamari. Hér eftir geta meðalstór verkalýðs- félög sjálf kjörið sína fulltrúa í alls- herjarráðið, sem dregur úr valdi stærri verkalýðsfélaganna, en þau eru öll frekar til vinstri í flokknum. Flokksþingiö þykir annars einkenn- ast af nokkurri deyfð í starfi verka- lýðsfélaganna vegna fækkunar meðlima í atvinnuleysinu. Þykir hafa borið á því þetta árið að hinn almenni félagsmaður sé ekki eins herskár og flokksforkólfarnir og verkalýðsforyst- an. Mörg félög hafa þó í bígerð samúðar- verkföll til stuðnings starfsfólki í heil- brigöisþjónustunni, sem eiga í launa- deilu við það opinbera. Þó setti Thatch- er-stjómin nýlega lög sem banna slík samúðarverkföll en verkalýösforingj- ar segjast reiðubúnir aö fara í fangelsi til stuönings baráttunni. — Kref jast afnáms herlaganna og vilja pólitíska fanga lausa úrfangelsum Vopnaðir menn sem hótað hafa aö sprengja pólska sendiráðiö í Bern í Sviss í loft upp höfðu bygginguna enn á valdi sínu snemma í morgun. Þó höfðu þeir látið lausan einn gísla sinna, barnshafandi konu. — Mennirnir, sem eru taldir fimm, náðu sendiráðinu á sitt vald í gærmorgun og tóku tíu diplómata fyrir gísla. Sjálfir segjast mennirnir vera vopnaðir þungum vélbyssum og með 25 kg af sprengiefni. Hótuðu þeir að' sprengja sig og gísla sína á morgun ef herstjómin í Póllandi aflétti ekki her- lögunum, sleppti pólitískum föngum og lokaöi fangabúöum. Eftir eins dags samningaþóf við svissneska embættismenn hafa hryðjuverkamennirnir krafist og feng- ið læknislyf. Þeir óskuðu eftir lækni skammt undir miðnættiö og slepptu þá barnshafandi konu sem haföi verið í gíslahópnum. I orðsendingu sem mennimir létu frá sér fara á miða kalla þeir sig pólska „heimaherinn” og „þjóðfrelsishreyf- inguna”. Það vísar til misheppnaðrar tilraunar andkommúniskra afla til uppreisnar gegn hemámsliði nasista í Varsjá 1944. Enginn veitti mönnunum athygli þegar þeir gengu í hægðum sínum inn í bygginguna í gærdag. Skömmu síðar var hringt úr sendiráöinu til lögreglunnar og kunngerðar kröfurn- ar. öryggisliðið sló þá hring um sendi- ráðið. Svissnesk yfirvöld gerðu pólsku stjórninni viðvart en hún skorar á svissnesku stjórnina að tryggja öryggi gíslanna. Félagar úr verkalýðshreyfingunni Einingu sem búa í Sviss segjast engin deili vita á hryðjuverkamönnunum og fordæmdu þeir sendiráðstökuna sem þeir sögðu stangast algerlega á við hugsjónir og grundvallarstefnu Einingar. DANIR FÁ MINNI- HLUTASTJÓRN Þórir Guðmundsson í Kaupmannahöfn skrifar: Ný stjóm borgaraflokkanna mun taka við völdum í Danmörku síðar í þessari viku. Eftir langan fund í gær- kvöldí ákváðu Ihaldsflokkurinn, mið- demókratar, kristilegi þjóðarflokkur- inn og vinstri að mynda fjögurra flokka minnihlutastjóm undir forsæti Poul Schliiter, sem er formaður íhalds- flokksins. I gær tókst Schliiter ekki að fá rót- tæka eða sósíaldemókrata í neins kon- ar meirihlutastjóm. — Glistrup for- maöur framfaraflokksins hafði lýst yfir áhuga á því að verða fjármálaráð- herra en Niels Helveg, formaður rót- tæka flokksins, útilokaði þann mögu- leika með því að neita að taka þátt í stjóm með framfaraflokknum. Afleiðingin varö sú að hvorugur flokk- anna fór í stjóm og Danmörk fær minnihlutastjórn. Dagblaöiö Politiken hefur í morgun eftir mönnum sem til þekkja aö Henn- ing Christophersen, formaður vinstri, verði utanríkisráðherra. Ihald og vinstri fá átta ráöherra hvor flokkur, miðdemókratar fimm og kristilegir einn. Poul Schliiter hafði fengið umboð drottningar til aö mynda meirihluta- stjóm en hefur ekki enn lagt ráðherra- lista minnihlutastjómar sinnar fyrir drottninguna. 200 bændurgjaldþrota Áætlað er aö á þessu ári verði 200 bændur gjaldþrota í Svíþjóð. Fyrst og fremst er hér um nýbýli að ræða með mikla skuldabyröi og háa vexti af lánum sinum. Nútíma landbúnaður krefst mikils stofnfjár. I Jönköping hefur landbúnaöarráðið reiknaö út að bóndi sem hefur búskap í dag tekur á sig að meðaltali 1,5 milljónir sænskra króna í skuldabyrði. Það þýðir að hann þarf aö borga 212.000 krónur í vexti á ári af lánum sínum og 20.000 krónur f ara í afborganir. Spies kominn fram úr Tjöru- borgarpresti Simon Spies, hinn litríki ferða- skrifstofukóngur Dana, er nú kom- inn fram úr Tjömborgarprestinum Eilif Krogager, sem lengi hefur rekið umsvifamestu ferðaskrif- stofu á Norðurlöndum. — Það þykir séö aö 420 þúsund frá Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi (aðallega) muni ferðast á vegum Spies þetta árið. Þykir ekki langt í hálfu milljónina. I blaðaviðtali segir Spies aö það hafi aldrei veriö sér neitt kappsmál að feröaskrifstofa hans yrði sú stærsta og upp fyrir hálfa milljón ferðamanna ætlar hann sér ekki því þá verður hann að fjölga starfsfólki og leggja í meiri kostnaö með allri þeirri áhættu sem því þykir fylgja. Hann telur að lykillinn aö velgengni sinni liggi í einföldum rekstri. Hann rekur aðeins sex söluskrifstofur: I Kaupmannahöfn, Billund á Jótlandi, Helsinki, Stokk- hólmi, Gautaborg og Málmey. (Auk 22 minni hér og hvar í Svíþjóð.) Spies rekur einnig flugfélagið Conair. Nýtískuflugvélar sínar staðgreiddi hann eins og frægt er. Conair þjónar 70% allra ferða á vegum Spies en Scanair, dóttur- fyrirtæki SAS, annar að heita má afgangnum. Spies, sem byrjaði í ferðaskrif- stofubransanum fyrir 25 árum, er frægur af sínum ungu konum og Spies hefur um sig tvitugar stúlkur, situr ófeiminn nakinn fyrir á myndum og hefur ávallt laðað að sér athygli f jölmiðia. mörgu bílum og á margan máta lit- ríkum lífsferli. Þeir ferðakóngarnir Spies og séra Eilif hittast sjaldan, en þó allt- af einu sinni á ári. Spies hefur í gamni boðið Tjöruborgarprestin- um að þeir gerðu hvor um sig erfðaskrár og arfleiddu þann að feröaskrifstofu sem lifði hinn. „Presturinn vildi það ekki. Kannski af því að hann er eldri en ég, eða hver veit hvað,” sagði hinn 61 árs gamli Spies.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.