Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1982, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1982, Side 12
12 DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER1982. Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjómarformaflur og útgáfustjórí: SVEINN R. EYJÚLFSSON. Framkvœmdastjórí og útgáfustjórí: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÖNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aflstoflarritstjóri: HAUKUR HBLGASON. Fráttastjórí: JÓNAS HARALDSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEIN3SON. _ j Ritstjóm: SÍDUMÚLA 12-14. SÍMI 88611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33~ SÍMI27022. Afgraiflsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLT111. SÍMI 27022. Simi ritstjómar 86611. Setning, umbrot, mynda og plötugerö: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA 12.Prentun: ÁRVAKUR HF.. SKEIFUNNI 19. . \ Áskriftarver0 á mánuði 130 kr. Verð í lausasölu 10 kr. Heloarblað 12 kr. Orkuveröiö eraöalmáliö Þá er blessuö ísalsdeilan byrjuð á nýjan leik meö nýrri endurskoðun á nýju bókhaldsári. I þetta sinn ber ekki eins mikið á milli og fyrri árin og reyndar ekki nógu mikið til að geta haft áhrif á skattgreiðslur Isals til ríkiskassans. Hvor aðili hefur sína skýringu á minni ágreiningi um árið 1981 en var um árin þar á undan. ísal segir, aö endur- skoðendurnir Coopers & Lybrand séu komnir nær jörðinni en áður. Hjörleifur ráðherra segir, að ósvífni Alusuisse hafi minnkað. Augljóst er,að gífurlegt aðhald í bókhaldi og endurskoð- un þarf aö veita fjölþjóðlegum fyrirtækjum á borð við Alusuisse. Ráðgjöf kunnáttufyrirtækja á borö við Coopers & Lybrand er því mikils virði, þótt þeim geti skjátlazt eins og öðrum. Endalaust má deila um, hvert sé sanngjarnt uppgjör milli dótturfyrirtækisins ísals og móðurfyrirtækisins Alu- suisse. Og vafasamt er, að efna þurfi til opinbers bófahas- ars í hvert sinn, sem árlegri endurskoðun lýkur. Raunar má gruna Hjörleif um aö efna til þessara upp- þota til að egna Morgunblaðið og Sjálfstæðisflokkinn til stuðnings við ísal og þar meö hið óvinsæla Alusuisse að baki. Þannig eru uppþotin meira pólitísk en efnisleg. Margsannað er um allan heim, að ein helzta rekstrar- forsenda fjölþjóðafyrirtækja á borð við Alusuisse er að færa peninga milli landa. Að segja Isal vera í taprekstri er álíka marklaust og að segja tunglið vera úr osti. Hitt er svo jafnrétt, að erfitt er að eltast við þetta, ekki sízt þegar Alusuisse neitar að gefa upplýsingar. Þess vegna er skynsamlegra að semja um fastar greiðslur en um breytilegar greiðslur eftir meira eða minna umdeildu bókhaldi. Komið hefur í ljós, að leiðrétting árið 1975 á hörmulega lélegum samningi frá 1966 gerði bara illt verra. Þá var föstum greiðslum breytt í hreyfanlegar. Og þá hófst darr- aðardansinn um bókhaldið, sem aldrei fæst úr nein niður- staða. Nær væri fyrir Islendinga að snúa sér í auknum mæli að áþreifanlegri hlutum á borð við orkuverö. Þar hefur hið átakanlega komið í ljós, að verð orkunnar til Isals er ekki nema einn þriöji af því, sem það ætti af sanngirni að vera. Raforkuverðið er nú 6,5 veröeiningar á orkueiningu, en ætti að vera 18 einingar. Sú skoðun byggist á, að í upphafi var verðið 2,5 einingar, þegar heimsmarkaðsverð var 3 einingar, það er að segja aðeins nokkru hærra. Nú er meðalverö raforku til álvera í heiminum 22 ein- ingar. Ef Bandaríkin eru tekin sérstaklega, er verðið líka 22 einingar. Á aðalmarkaði Isals, í Vestur-Evrópu, er meðalverðið 21 eining. Verð Isals ætti að vera rétt innan við það. Einnig til staðfestingar á þessu er, að Alusuisse og dótt- urfyrirtæki þess greiða að meðaltali 20 einingar annars staðar. Engin verksmiðja hringsins greiðir eins lágt verð og ísal greiöir til Landsvirkjunar. 6,5 eininga verð er hreint hneyksli. Ef rétt er, aö samkeppnisfært raforkuverð til álvera sé 20 einingar og muni fara hægt hækkandi upp í 24 einingar á næstu árum, eigum við að reyna að fá nýjan samstarfs- aðila um eignarhald og rekstur Isals og sölu afurða þess. Sé ísal ekki fáanlegt til að semja um heiðarlegt orku- verð, til dæmis 18 einingar, er fullljóst, aö Alusuisse sést ekki fyrir í græðgi í viðskiptum við Islendinga og hefur það þó þegar nóg spillt nauðsynlegum áhuga Islendinga á erlendu samstarfi um stóriðju. Jónas Kristjánsson. Réttast aðreisa þær hvergi Þegar konan mín kom heim úr ínn- kaupaferö, ekki alls fyrirlöngu, tíndi hún upp úr pokunum alla skapaða hluti sem þarf til baksturs, nema strásykur aö sjálfsögöu, því að ein- hverjir höföu tekið sig til og keypt hvert einasta korn sem til var í land- inu og var tilefniö ekki þaö, aö stjóm- völd ætluöu aö banna bruggun áfengs öls, heldur hitt aö þetta þótti góð fjár- festing; sérstaklega fyrir þá sem baka lítið, því aö sumir hverjir þurfa aldrei aö kaupa sykur framar á ævinni, jafnvel þótt þeir veröi fjör- gamlir. En þetta gagnaði okkur lítið, aö því er bakarinn í f jölskyldunni taldi, og einnig efaðist hann um aö þaö kæmi að gagni þótt ég f æri út i garö og tæki fyrstu skófiustunguna að nýrri sykurverksmiðju, eins og ég bauðst þó til, og taldi mig kunna, þar sem ég hef séö þetta gert svo oft í sjónvarp- inuaðundanfömu. Voru nú góö ráð dýr, eins og svo oft áöur í Islandssögunni, því aö þótt búiö sé aö útrýma sykri úr gos- drykkjum hefur ekki enn veriö fund- in upp aöferö til aö baka sykurlausar kökur, svo vitað sé. En viö deyjum sjaldan ráöalausir í sveitinni, frekar en kaupmaöurinn á Húsavik, sem benti viðskiptavini sínum á aö kaupa sandpappir þar sem salernispappír var uppseldur þá stundina. Eftir nokkra umhugsun benti ég bakaran- Benedikt Axelsson c um á aö nota bara molasykur í baksturinn því að ég sæi ekki betur en hann væri búinn til úr strásykri, þótt leiða mætti að því getum einnig aö strásykur væri búinn til úr mola- sykri og kæmi þetta þó í rauninni út á eitt. Þar með var afmæli bamsins bjargaö því að eins og ég sagöi áöan var nóg til af hveiti og dropum og svo mikið af kókósmjöli aö engu var líkara en bakarinn heföi veriö áskrifandi aö því lengi. Af verksmiðjunum skuluð þér þekkja þá Þótt ég skilji oröið harla margt í íslensku þjóðlífi er það enn fyrir ofan minn skilning hvers vegna menn em annaöhvort meö eöa á móti verk- smiðjum og einnig hitt hvers vegna menn rífast um hvar þær skuli byggðar, því af gamalli reynslu okk- ar af verksmiðjubyggingum væri réttast aö reisa þær h vergi. Eg þekki ágæta verksmiðju hér norðanlands sem var ætlað það hlut- verk aö vinna síld, en það stóðst á „Hringormur er viðkunnanleg skepna og ^ ómissandi þegar maður borðar salt- fiskinn sinn á laugardögum.” Þröstur Ölafsson, hagfræöingur og aðstoðarmaður fjármála- ráðherra, ritaði nýlega blaðagrein, sem vakið hefur þó nokkra athygli. Sumir tala nú um tímamót, sinna- skipti eða a.m.k. gagngera stefnubreytingu í sjávarútvegs- málum hjá Þresti og hans flokki. Vist er um það að skýr og skorinorð viðurkenning Alþýðubandalagsins á ofvexti fiskiskipaflotans er tiltölu- lega ný af nálinni. Það hefur heldur ekki verið algengt að sjá Ab-menn leggja til að samkeppninni verði leyft að njóta sín í efnahagslegum at- höfnum manna eða að hag- kvæmninni verði beitt í atvinnu- vegunum en réttlætinu annars staðar. En hagfræðingar, sem vilja láta taka mark á sér þó að ríkis- stjórnir myndist og hverfi verða að sjálfsögðu að minna annað slagið á sig sem fagmenn. Og það er enginn vandi að búa til umgjörð í sjávarút- vegi með nógu almennum og teygjanlegum orðum, ekki síst ef menn ætla öðrum að fylla út í þá umgjörð og sjá um framkvæmdir. Það getur einmitt verið snjallt að búa til fallega ramrna fyrir fram- tíðina þegar fer að styttast í valda- ferli manna. Margt í boðskap Þrast- ar í Þjóðviljagreininni er stórgott, og eins og talaö út úr minu hjarta. Þó má finna galla í kenningunum, suma meira að segja meinlega. Vinnsluleyfi í höndum byggðastjórna Það er svo sem ekki í fyrsta skipti sem minnst er á þaö að deila afla niður á byggöalög. Þetta var einmitt aöalinntakið í tilraun til stefnumót- unar í sjávarútvegi sem boöuö var fyrir einum 2 árum. Þá var einnig mikið notast við slagorð eins og ,,samræming veiöa og vinnslu” og „afkastageta fiskvinnslu- stöövanna”. Sú stefnumótun gufaði upp e.t.v. einmitt vegna þess að af- kastageta fiskvinnslustöðvanna fékkst ekki skUgreind og „heima- menn” voru lítt hrifnir af því aö vera ætlaö þaö hlutverk aö skipta afla miUi nágranna sinna. H já Þresti eru „vinnsluleyfi í höndum byggöa- stjóma” og deilt niður í „samræmi viö vinnslugetu f rystUiúsa”. Ég er hræddur um að þetta mál sé ekki hugsaö tU botns frekar en fyrri daginn. Afkastageta eöa vinnslugeta er nefnUega töluvert flókiö mál. Á að miða viö þaö, að afuröasamsetning og aflasamsetning sé eins hjá öUum frystihúsum? Eða á aö reikna út frá einhverju meöaltali síöustu ára, burtséð frá þróun og stöðugum breytingum. Vita menn t.d. að þaö eru yfir 20 frystihús á Suðurnesjum sunnan við Straum? Hafa menn hug- mynd um hvað stórhýsi eins og á Djúpavogi, Patreksfirði og víöar gætu afkastað miklu ef þau heföu fólk og fisk? Ég er því miður hræddur um aö menn hafi ekki einu sinni gert tilraun til aö ákveða forsendur sínar og mælistærðir í þessu sambandi hvaö þá prófaö aö setja heildardæmið upp Þröstur Ólafsson. — „Það getur elnmitt verið snjailt að búa til fallega ramma fyrir framtíðina þegar fer að styttast á valdaferli manna,” segir Bjöm Dag- bjartsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.