Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1982, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1982, Síða 35
DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER1982. 35 Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið DALLAS JAFNAST EKKI ÁVIÐGÓÐABÓK — höfundur Dallas ekki sáttur við sjónvarpsgláp Nú geta aödáendur Dallas-þátt- anna hugsaö gott til glóöarinnar, því Dallas birtist aftur á skjánum i októ- ber. Sigurför þessara þátta um heim- inn á sér enga hliðstsðu. Þeir hafa veriö sýndir í 58 löndum fram aö þessu og hafa slegið öll met þáttanna Rætur. Fsestlr munu þó kannast viö höf- und Dallas, David Jacobs. í upphafi ætlaöí hann sér að gera Sue Ellen aö aðalpersónunni, sem allt átti að snú- ast í kringum. Ekki leið þó á löngu þar til J.R. „stal senunni”. Fram að hlutverki sinu í DaDashafði Larry Hagman leikið mestu ljúfmenni sem ekkert fór fyrir á einn eða neinn hátt. Hann var orðinn innilega leiður á þvi hlutskipti og lék J.R. af svo miklum krafti að Sue EUen og önnur hlutverk urðu fl jótlcga að láta í minni pokann. David Jacobs hefur ekki þurft að sjá eftir þeirri ákvörðun sinni. Þætt- irnir hafa orðið honum mikil féþúfa, eins og geta má nærri. Hann er þó ekki aUs kostar sáttur við sjónvarpsgláp; finnst ógnvekj- andi hversu margir sitja og góna á hvað sem er, kvöld eftir kvöid. Ekki finnst honum bæta úr skák þegar fólk borðar jafnvei kvöldmatinn fyrir framan sjónvarpið. Jacobs telur mikinn hluta s jónvarpsefnis vera aUt of auðmelta fæðu; spurningum eigi ekki að svara í sömu mund og þeim er varpaðfram. DaUas-þáttunum tU málsbóta seg- ir hann að þar sé ekki breitt yfir neitt. Fjölmargt, sem þar á sér stað, htjóti að ganga fram af áhorfendum; vekja þá tU umhugsunar. Hann segir jafnframt að fólk vUji flýja veruieik- ann, þegar það sest niður fyrir fram- an sjónvarpið. Það vUji geta brugöið sér á vit einhvers draumaheims og gieymt hversdagsleikanum um stund. Jacobs telur samt að meira sé að sækja tU góðrar bókar. gfsiSip; David Jacobs, höfundur Dallas-þáttanna, telur fólk eyða aUt of miklum tima fyrir framan sjónvarpið og að meira sé að sækja tU góðrar bókar. Var Marilyn Monroe myrt? LeynUögregiumaöur nokkur í Los Angeles heldur því fram að kvik- myndaleikkonan MarUyn Monroe hafi á sínum tíma verið myrt af öfga- hópi innan CIA tU að koma í veg fyrir að hún segði frá samsæri gegn Fidel Castro, leiðtoga á Kúbu. MUo Speriglio sem hefur rannsak- að kringumstæðurnar við dauða leik- konunnar fyrir 20 árum segist geta sannað að Robert Kennedy, sem þá var dómsmálaráðherra, hafi sagt MarUyn frá samsærinu og hún hafði síðan getið þess í dagbók sinni. Á blaðamannafundi sem SperigUo hélt ásamt manni þeim er skoöaði lík leikkonunnar endurtók sá síðar- nefndi þá yfirlýsingu sina að hann hefði verið þvingaður tU að undirrita dánarvottorð þar sem sagt var að hún hefði dáið vegna of stórs skammts af svefnlyfjum. Héraðs- réttur í Los Angeles hefur krafist rannsóknar á þessum ummælum og nýlega tUkynnti skrifstofa saksókn- ara að máUð yrði tekið upp og aUar aðstæöur við dauða leikkonunnar rannsakaðar að nýju. David og Pamela Skeates, frá Coffs Harbour i Astralíu, hressir og glettnir aðdáendur lands og þjóðar, eru hér í heimsókn um þessar mundir. DV-mynd: Einar Úlason. Ástralskur íslandsvinur í heimsókn: Vildi sýna konu sinni ísland David Skeates og fimm Rotary- félagar hans, aUir frá ÁstraUu, voru í 6 vikna heimsókn á Islandi áriö 1977. David leist svo vel á sig hér aö hann ákvað að sýna konu sinni, Pamelu, land og þjóö. Þau eru því stödd hér um þessar mundir; komu í tveggja vikna heimsókn. David og Pamela búa í Coffs Har- bour, þar sem hann starfar við byggingaiðnaðarfyrirtæki. Ekki er tU- breytingarsnautt fyrir þau að ferðast um Island, því heima búa þau við hita- beltisloftslag. Coffs Harbour er vinsæU ferðamannastaður, á mUU Sidney og Brisbane. Meðal atvinnuvega þar má nefna fiskveiöar og bananarækt. Þau hjónin kváöust gjarnan vUja koma hingað einhvern tímann aftur og eyða hér nokkrum mánuðum, en ekki geta þau hugsað sér að setjast að á Is- landi. Þau setja þá helst fyrir sig lofts- lagið okkar, verðlag hér og verðbólg- una. Á þeirra heimaslóðum er að vísu einhver samdráttur í atvinnulífi sem stendur og nefndu þau m.a. 15% verð- bólgu. — Okkur Islendingunum varð nú hugsað til þess aö ekki þykja 15% mikið hér í þeim efnum. Ekki sögðum við samt neitt. Maöur reynir aö vera þjóðlegur og tíunda ekki ókosti um of. Hingað komu Pamela og David eftir tveggja vikna feröalag um Evrópu og langaði raunar að skreppa til Græn- lands héðan. Þau flýttu sér samt að gleyma þeim draumi, þegar í ljós köm að spaugið kostar 250$ á mann (um 7000 ísl. fyrir bæði). Þá er um að ræða þriggja klukkutíma dvöl á Grænlandi. Allt ferðalag þeirra hjóna hefur ekki síst verið Pamelu ævintýri. Hún hafði skroppið til Nýja-Sjálands en annars aldrei út fyrir Ástralíu komið. -FG. Oskírö Bjömsdóttir kom Ijósunni sinni í fréttir Oskírð Björnsdóttir ákvað þann 10. júh' sl. að drífa sig í heiminn í svo miklu snarhasti að við það komust bæði hún og ljósan hennar, Jensina Oladóttir, í fréttir. Jensína er nefnilega komin á níræðisaldurinn. Regína Thorarensen, einn nafnkunn- ari fréttaritari okkar DV-manna, sendi dágóðan pistil um fæðingu óskírðrar. Hann birtist á baksíðunni hjá okkur 21. júlí með bæði pomp og prakt. Enga átt- um við þó myndina, en nú hefur verið bætt úr því, eins og sjá má. Jensína Oladóttir var ljósmóðir á Ströndum i rúma hálfa öld. I níu ár hefur hún haldið sig vera hætta störf- um. Oskírð sýndi hins vegar bæði henni og öðrum fram á að í fyrsta lagi var Jensína alls ekki alveg hætt, í öðru lagi haföi Jensína engu gleymt. Oskírö kom í heiminn í Ámeshreppi á Ströndum. Fæðingin gekk prýðilega og vó daman 15 merkur. Eldri systkini hennar tvö eru fædd á sjúkrahúsi, en haft er eftir móður þeirra, Bjamfríði Fossdal, aö aldrei hafi hún f undiö slíka öryggiskennd við fæðingu sem í hönd- um hinnar öldnu ljósmóður. -FG. Oskírð Bjömsdóttir hvfUr hér í traustum örmum Ijósunnar sinnar, hennar Jensínu Oladóttur. Mamma og pabbi fengu að vera með. Þau heita Bjamfríður Fossdal og Bjöm Torfason. Raunar er kannske búið að skíra litlu dömuna núna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.