Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1982, Síða 1
Frjálst, óháð dagblað
DAGBLAÐIÐ — VÍSIR
244. TBL. — 72. og 8. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1982.
FLUGVÉLAR SAKNAÐ —
HVARFÚTÍSORTANN
—taliðað
Lítillar einkaflugvélar, TF MAO
frá Isafirði er saknað vestur af Kópa-
nesi. Flugvélin flaug um klukkan
hálfátta í morgun mjög lágt yfir vél-
bátinn Þrym BA 7 og henti niður
tveimur ljósmerkjum. Síðan hvarf
hún út i myrkrið en hefur aö öllum
líkindum lent í sjónum. Talið er að
einn maður sé með vélinnL
„Flugvélin flaug mjög lágt yfir
okkur og hratt. Siðan komu tvö ljós-
merki frá henni. Við sáum hana
síðan hverfa og hún lenti síðan lík-
lega í sjónum,” sagði Þorsteinn
Jónsson, skipstjóriá Þiym, ísamtali
við DV í morgun.
Þrymur var að draga fullar 22
milur vestur af Blakk, í niðamyrkri
og um sjö vindstigum þegar þetta
gerðist. Skipverjar hófu strax leit og
tilkynntu hvað gerst hafði. Fljótlega
dreif að fleiri báta og um hálfníu í
morgun voru sex skip byrjuð að
leita.
Þegar þetta er skrifað er ekki búið
að finna vélina, en vél frá Flugmála-
stjórn og þyrla og birgðavél frá
Varnarliðinu eru á leið vestur til
leitar. Fokkervél Landhelgisgæsl-
unnar er í viðbragðsstööu á Reykja-
víkurflugvelli. JGH
Vélin sem leitað er að, TF
MAO frá ísafirði.
D V-mynd Bjarnleifur.
Pétur Guð-
mundsson
farinn til
Ítalíu
Frá Sigurði Ág. Jenssyni — frétta-
manni DV í Washington: — Pétur
Guðmundsson, körfuknattleiks-
maðurinn snjalli, sem hefur leikið með
bandaríska atvinnumannaliðinu Port-
land Traiblazers i Bandarikjunum, fór
til ttalíu í morgun þar sem hann mun
leika með einu þekktasta körfuknatt-
leiksliði ttaliu, Fabriano, sem hefur
bækistöðvar fyrir norðan Róm, í vetur.
Portland lánaði Pétur til Italiu, en
hann er á fimm ára samningi við félag-
ið. Þetta kom fram þegar Traiblazers
tilkynnti hvaða tólf leikmenn félagið
myndi nota í vetur í NBA-deildinni,
sem hefst um helgina. Tveir leikmenn
þurftu að víkja úr fjórtán manna hópi.
og var Pétur annar þeirra.
H. Whaiet, blaðafulltrúi Traiblaz-
ers, sagði í viðtali við DV að ástæðan
fyrir þvi að Pétur væri farinn til Italíu
værí að hann hefði sjálfur viljað fara
þangað. — Það var mjög skynsamlegt
hjá Pétri að fara til Italíu, þar sem
hann mun öðlast keppnisreynslu sem
hann hefði ekki fengið hjá Traiblazers í
vetur þvi að varamannabekkurinn
hefði beðiö hans.
-SÁJ/-SOS.
Útvarpsumræðurnar um stefnuræðuna:
Á AÐ KJÓSA Á MUÐJUM
VETRIEÐA BARA í JÚNÍ?
Páhni Jónsson ráðherra varpaði
þeirri spumingu fram í útvarpsum-
ræöum í gærkvöld, hvort nokkurt
„tjón” y rði að því þótt ekki yröi kosið
fyrr en í júní. Geir Hallgrímsson (S)
vildi láta kjósa hið fyrsta og sagði að
hafa mætti kjördaga fleiri en einn tíl
að bæta upp að kosið yröi í vetrar-
mánuðL
Gunnar Thoroddsen forsætisráð-
herra f jallaði í stefiiuræðu sinni um
„snögg umslúpti” sem orðið heföu í
efiiahagsmálum í ár og komið á
óvart. Viðskiptahallinn yrði í ár um
10% af framleiðslunnL Kaupmáttur
ráðstöfunartekna mundi minnka um
1%. Útflutningur mundi minnka um
13%. .Jleimskreppan hefur sótt
okkur heim,” sagði forsætisráð-
herra. Hann sagði að áhersla yrði
lögð á fulla atvinnu og því markmiði
ekki fómað til að draga úr verðbólgu
hraðar en ella yrði. Geir Hallgrims-
son sagði að sjálfstæðismenn í
stjómarandstöðu vildu með engum
hætti taka ábyrgð á stjómháttum og
stjómarathöfhum þessarar stjómar.
Sjálfstæðismenn vildu ráðast gegn
verðbólgu með skattalækkunum og
niðurskurði ríkisbáknsins. Stein-
grímur Hermannsson ráðherra sagði
framsóknarmenn vera til viðræðna
um að ganga lengra en gert er í efna-
hagsaðgerðunum, ef rekstrargrund- *
völlur atvinnuv'ega væri tryggður og
fuU atvinna áfram. Magnús H.
Magnússon (A) sagði að ráðstöfun-
arfé heimilanna heföi veríð skert um
8% vegna rangrar fjárfestingar síð-
ustu ár. Halldór Ásgrimsson (F)
sagði óvarlegt að búast við niður-
stöðum í stjórnarskrármálinu á
næstunnL Hann lagðist gegn f jölgun
þingmanna. Vilmundur Gylfason
(A) sagöi að stjórnin ætti aö fara frá.
Síðan skyldi reynt að mynda meiri-
hlutastjóm og minnihluta- eða utan-
þingsstjóra, tækist það ekkL Hann
sagði að hugsanlegt væri aö breyta
stjómarskrá þannig að forsætisráð-
herra yrði kosinn beinum kosning-
um. Svavar Gestsson ráðherra sagði
að glundroði mundi aukast, færi rík-
isstjómin frá. Alþýðubandalagið
hefði viljaö kosningar strax í nóvem-
ber til að treysta meirihluta núver-
andistjómar.
-HH