Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1982, Side 25
DV. ÞRIÐJUDAGUR26. OKTOBER1982.
Smáauglýsingar
25
Sími 27022 Þverholti 11
Duglegar og ábyggilegar
stúlkur óskast strax, vaktavinna.
Uppl. á staönum í dag og næstu daga.
ísbúðin, Laugalæk6.
Skálatúnsheimiliö
óskar eftir manneskju í eldhús. Uppl.
gefur ráöskona í síma 66249.
Stúlka óskast
til afgreiöslustarfa. Vinnutími frá kl.
15—18, og þriöju hverja helgi. Uppl. á
staönum. Miöbæjarbakarí, Háaleitis-
braut 58—60.
Starfskraftur óskast
vinnutimi er frá kl. 16—21, alla daga,
aöra hvora viku. Uppl. gefur forstöðu-
maöur í síma 66248 frá kl. 8—16. Skála-
túnsheimilið.
Sölumaöur.
Sölumaður óskast til aö selja gjafa-
vörur. Þarf aö geta byrjaö strax og
hafa eigin bíl til umráða. Hafiö sam-
band við auglþj. DV í síma 27022 e. kl.
12.
H-951
Starfskraftur óskast
til starfa í efnalaug hálfan daginn, þarf
aö vera vanur aö pressa fatnaö. Uppl. í
síma 75050 og 36824.
Kona óskast
'til aö taka í gegn íbúð í Laugarnesi
einu sinni í viku, ca 4 tíma. Vinsaml.
hringiö í síma 76129.
Matsvein og háseta
vantar á 200 tonna línubát. Uppl. í síma
92-1745.
Ábyggilegur starf skraftur
óskast til afgreiöslustarfa eftir hádegi
frá kl. 13—18. Uppl. í Fatabúöinni,
Bankastræti 3, miðvikudag 27. okt. frá
kl. 17-18.
Bústjóri óskast aö svinabúi,
ibúö á staðnum. Aöeins maöur meö
starfsreynslu kemur til greina.
Vinsamlega hafiö samband viö auglþj.
DV ísíma 27022 eftirkl. 12.
H—020
Hjón í Seljahverfi
óska eftir aöstoö viö heimilisstörf einu
sinni í viku, ca 4 klst. í senn. Vinnutími
eftir samkomulagi. Uppl. í sima 78421
eftirkl. 16.
Afgreiöslustúlka óskast
Stúlka óskast til afgreiöslustarfa,
vaktavinna. Uppl. á staönum næstu
daga, Veitingahúsiö Gafl-inn Hafnar-
firði.
Nýjar bækur Nýjar bækur Nýjar bækur
og Páll
Bókaútgáfan Salt hefur sent frá sér
tvær bamabækur, Pétur og Páll.
Fjalla þær um ævi og störf postulanna
Péturs og Páls, lýsa í máli og myndum
starfi þeirra aö útbreiöslu kristninnar.
Eru þær 24 bls. ríkulega myndskreytt-
ar af Lennart Frantzén. Textann hefur
skrifaö Andres Kiing, sænskur rithöf-
undur og blaðamaöur. Eru bækumar
ritaöar sem ævisögur og eru allspenn-
andi á köflum. Þýöandi er Jóhannes
Tómasson, en bækumar eru gefiiar út í
samvinnu margra þjóöa, setning og
filmuvinna texta unnin af tæknideild
Morgunblaðsins, en bækurnar prentaö-
arí Englandi.
I'IETSÖLUUÓK IfSIR
RYrmAurn Kvr.nnA a LisrK/unAn oa
, msruRSt.AtJSAn hátt
APÍAÍS WIN
Unaðsreitur
Gleðisöqur eftir Anais Nin
IÐUNN hefur gefið út bókina
Unaðsreit eftir bandariska höfundinn
Anais Nin. Bók þessi sem á frummáli
nefnist „Delta of Venus” hefur aö
geyma þrettán gleöisögur. Anais Nin
er látin fyrir nokkrum árum, en hún er
einn kunnasti og virtasti höfundur
gleðisagna á þessari öld. Hún varö
fyrst kvenna til aö helga sér bók-
menntagrein þar sem sjónarmið karla
höföu veriö næsta einráö. Um bókina
segir svo í kynningu forlagsins:
,,Anais Nin fjallar um kynlífið á nýjan
hátt, á máli sem er þmngið lífi og
húmor. Hér er lýst kynnautn kvenna af
mikilli list og hispursleysi. Sögur
Anais Nin hafa verið þýddar á fjölda
tungumála, hvarvetna vakið aðdáun
gagnrýnenda.” — Unaðsreitur er
fyrsta bók þessa höfundar sem út
kemur á íslensku. Guörún Bachmann
þýddi bókina sem er 200 blaðsíður.
Prentrún prentaði.
Móri
ný teiknimyndasaga um
Sval og félaga
Ut er komin hjá Iðunni, ný bók í
teiknimyndaflokknum um Sval og
félaga og er þaö fimmtánda bókin í
flokknum. Nefnist hún Móri og er eftir
Foumier. Bókin er gefin út í samvinnu
við Interpresse í Danmörku. Um efni
sögunnarsegirákápubaki: ,,Svalurog
Valur lenda í miklum háska og stór-
ræðum hér eins og endranær. Þetta
byrjar þannig aö þeir fá bréf frá vin-
konu sinni, Oróreu, sem býður þeim á
alþjóðaþing töframanna. Þegar til
Gálgavíkur kemur er þeim sagt að
Orórea sé uppi í kjamorkuverinu mikla.
Á leiðinni þangað hitta þeir drauginn
Móra. Hann er í slæmu skapi, enda
finnst honum þessar vítisvélar vera aö
eyðileggja fyrir sér starfiö. Samt er
hann ekki dauður úr öllum æðum og
getur gert mönnum ýmsar skráveifur.
En þegar þeir félagar finna
Oróreu. . — Móri er 48 blaösíður.
Jón Gunnarsson þýddi textann.
Riddarar
hringstigans
eftir Einar Má Guðmundsson
Almenna bókafélagið hefur sent
frá sér skáldsöguna Riddara
hringstigans sem hlaut fyrstu
verðlaun í bókmenntasamkeppni
þeirri sem forlagið efndi til á 25
ára afmæli sínu. Höfundurinn Ein-
ar Már Guðmundsson er áður
þekktur fyrir ljóðabækur sínar, 3
að tölu, en Riddarar hringstigans
er fyrsta skáldsaga hans.
Bókin er kynnt þannig á bókar-
kápu: „Nýstárleg skáldsaga eftir
einn af okkar allra efnilegustu
ungu rithöfundum. Kímin að
framsetningu, alvöruþrungin og
áhrifamikil að efni. Sagan gerist í
Reykjavík fyrir 10—15 árum í
hverfi sem er í byggingu. Aðalper-
sónurnar eru nokkrir ungir dreng-
ir og einn þeirra segir söguna.
Þessi ungi sögumaður er sannkall-
að bam í tiltektum sínum og við-
horfum og þó sýnist vitund hans
rúma alla tíma og allan heiminn
— einhvers konar stílgaldur.
Heimur þessara drengja er vissu-
lega annar og öðruvísi en það sem
fyrri kynslóðir íslenskra bama
hafa staðið andspænis. Og þó að
hann sé oft broslegur er hann
hvorki einfaldur né auðveldur og
stundum jafnvel skelfilegur. Enda
hljóta drengirnir sína vígslu og
hana rækilega.”
Riddarar hringstigans er 228
bls. að stærð. Hún er unnin í
Prentsmiðju Áma Valdemarsson-
ar.
Maður dagsins
eftir Andrés Indriðason
Maður dagsins er Reykjavíkur-
saga sem gerist í nútímanum. Hún
segir frá ungum manni, íþrótta-
stjömu, sem nær svo langt að
hann slær hvert metið af öðru í
íþrótt sinni og setur loks heims-
met. En hefur hann sigrað þrátt
fyrir það? Síður en svo. Allir þykj-
ast eiga hann, stjórnmálamenn,
kaupsýslumenn, fjölmiðlar, og
telja sig mega nota hann eins og
þeim sýnist. Hann á sem sagt eftir
að sigra umhverfi sitt. Hvemig
skyldi það ganga? Sagan hefur
svar við því.
Maður dagsins er 192 bls. að
stærð og unnin í Prentsmiðju Áma
Valdemarssonar. tJtgefandi er Al-
menna bókafélagið.
Þriggja
orða nafn
eftir ísak Harðarson
Þessi ljóðabók er ein þeirra
þriggja bóka sem verðlaun hlutu í
bókmenntakeppni þeirri sem Al-
menna bókafélagið efndi til á 25
ára afmæli sínu. Bókin skiptist í
þrjá hluta, sem heita Villigötur,
Afvegir og Vegurinn til Sunnuhlíð-
ar. Ljóðin eru alls 33.
Höfundurinn Isak Harðarson er
26 ára að aldri og er Þriggja orða
nafn hans fyrsta bók. Hann er
kynntur þannig á bókarkápunni:
„Isak Harðarson fæddist í
Reykjavík hinn 11. ágúst 1956, kl.
12.52 e.h. Hann er að heiman. ”
Og um bókina segir á sama
stað: „Þriggja orða nafn. Fyrsta
bók hins unga höfundar. Sérstæð
ljóð, djúp og þróttmikil. Alvöru-
þmngin leit ungs manns að til-
gangi. Glæsilegt byrjandaverk
upprennandi skálds.”
Þriggja orða nafn er 102 bls. að
stærð og unnin í Prentsmiðjunni
Hólum. Útgefandi er Almenna
bókafélagið.
Vorganga í
vindhæringi
eftir Bolla Gústavsson
Bókin er ein af þremur verð-
launabókum Almenna bókafélags-
ins í bókmenntasamkeppni þeirri
sem forlagið efndi til á 25 ára af-
mæli sínu.
Undirtitill bókarinnar er. . . á
mótum ljóðs og sögu, og hún segir
frá mannlífi á Oddeyri við Eyja-
fjörð fyrir 30—40 árum. „Margar
persónur koma við sögu,” segir í
káputexta bókarinnar, „ og munu
sennilega ýmsar þeirra koma
kunnuglega fyrir sjónir þeim sem
þarna þekktu til. En umfram allt
er bókin merkilegt skáldverk sem
bregður stórum svip yfir dálítið
hverfi, saga um fólk á ýmsum
aldri, misjafnt í háttum og mis-
jafnt að þroska...” eins og segir í
bókarkynningunni.
Vorganga í vindhæringi er 150
bls. að stærð, unnin í Prentsmiðj-
unni Hólum. Utgefandi er
Almenna bókafélagið.
Virgill
litli
eftir Ole Lund Kirkegaard
Iöunn hefur gefiö út nýja barnasögu
eftir danska höfundinn Ole Lund
Kirkegaard. Nefnist hún Virgill litli og
er sjötta bók þessa höfundar sem út
kemur á íslensku. Kirkegaard var
kunnur höfundur barnabóka. Hann
myndskreytti jafnan sögur sínar sjálf-
ur og eru teikningar hans afar spaugi-
legar svo aö saga og myndir mega
hvorugt án annars vera. Þessi nýja
bók, Virgill litli fjallar um lítinn dreng
og tvo vini hans. Við sögu koma einnig
storkur, dreki meö átta lappir og kaup-
maöur sem boröar kaspíra-fræ. Líka
er sagt frá afmælisveislu og leit aö
földum fjársjóöi, aö því er segir á
kápubaki bókarinnar. — Virgil litla
þýddi Þorvaldur Kristinsson. Bókin er
102 blaðsíður. Prisma prentaöi.
Smáaugtýsingadeildin er
iÞvetinltill
og síminn þar er27022
OpUnllnvirktdngsfrákl.9—22
LwpnfapiMM.9-14
SumudngafríkL 18—22