Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1982, Blaðsíða 17
16
DV. FOSTUDAGUR 5. NOVEMBER1982
DV. FOSTUDAGUR 5. NOVEMBER1982
25
íþróttir
íþrótt
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþrótt
íþrótt
íþrótt
íþróttir
Frakklands og léki þar með Paris St.
Germain.
Ardiles og fjölskylda hans hafa
kunnað vel viö sig í París en nú, eftir
að mesta reiöin er af honum runnin,
vill hann komst aftur til London og
Tottenham. Hann fékk höfðinglegar
móttökur á Englandi þegar lið hans lék
við Swansea í Evrópukeppni bikarhafa
á dögunum. Ottaðist hann mest að
Englendingar myndu ekki fyrirgefa
honum stóru orðin í sambandi við
Falklandseyjamáliö en þegar hann
fann að „Tjallinn” hafði fyrirgefiö
honum þau, óskaði hann eftir viö-
ræðum við forráðamenn Tottenham.
Otkoman úr þeim varð nýr tveggja ára
samningur sem undirritaður var í gær-
kvöldi og mun Ardiles byrja að leika
með Tottenham aftur næsta haust.
-klp-
Páfinn félagi
hjá Barceiona
Forráðamenn spánska stórliðs-
ins Barcelona slógu keppinautum
sínum Real Madrid alveg viö í gær.
Þá tilkynntu þeir að hans heilag-
leiki Jóhannes Páil páfi hefði veriö
gerður að heiðursfélaga Barcelona.
Voru þeir hjá Real Madrid ekki
komnir með neitt svar við því þeg-
ar síðast fréttist. -klp-
HETJA ARHUS KFUM
— ef tir tvær til þrjár vikur
Frá Guðna Bragasyni — frétta-
manni DV í Miinchen.
— Sagt var frá því í blöðum hér í
gær að aðgerð sú sem var gerð á
Ásgeiri Sigurvinssyni, leikmanni Stutt-
gart — á Canstatter-sjúkrahúsinu í
Stuttgart, hefði heppuast vonum
Braut Greta
áhugamanna-j
reglumar?
Norska hlaupadrottningin Grete
Waitz, sem hér keppti í sumar, hefur
verið ásökuð um að brjóta áhuga-
mannareglurnar. Það er stórblaðið
New York Times sem það gerir í gær
með því að fullyrða að hún hafi fengið
114.000 dollara fyrir sigurinn í New
York maraþonhlaupinu á sunnudaginn
var. Blaðið segir einnig að Alberto
Salazar, sem sigraði í keppni karl-
manna í blaupinu, hafi fcngiö 18.000
dollara í sinn hlut. Málið er nú í rann-
I sókn. -klp-
framar og að meiðsli haushefðuckki
verið eins alvarleg og talið var í fyrstu.
Það væru læknamir Dr. Parsch og
Dr. Edward Stump sem skáru Ásgeir
upp við vöðvaslitum við nára. Þeir
sögðu í viðtali við „BILD” að Ásgeir
ætti að geta byrjað að æfa léttar
æfingar eftir tvær til þrjár vikur og
vera kominn í fulla æfingu þegar
keppnistímabilið byrjar aftur eftir
jólafrí.
Blaðið segir frá því að þaö hafi verið
mikil blóðtaka fyrir Stuttgart að
Ásgeir hafi meiðst og ekki getað leikið
meö liðinu að undanförnu. Stuttgart á
að leika gegn Hamburger SV á laugar-
daginn en Hamburgerliðiö hefur ekki
tapað 28 leikjum í röð í „Bundeslig-
unni”. -GB/-SOS.
Ásgeír Sigurvinsson—aftur á f ulla ferð eftir jólafríið?
ísland ekki með
í OL í knattspymu
Úlfamir
töpuðu
Leikin var heil umferð í ensku 3. og 4.
deildarkeppninni í vikunni. Þá fór
fram einn leikur í 2. deild — Cam-
bridge lagði Úlfana að velli 2—1.
3. deild:
Bouraemouth—Bristol R. 0-0
Brentford—Preston 3-1
Chesterfield—Gillingham 1—2
Exeter—Wigan 2—1
Huddersfield—Doncastle 3—0
Millwall—Plymouth 2—2
Newport—Sheff. Utd. 3-1
Orient—Walsall 2—1
Portsmouth—Lineoln 4—1
Reading—Cardiff 1-2
Wrexham—Southend 3—2
4. deild:
Blackpool—Torquay 1-0
Bristol C.—Chester 0—0
Colchester—Wimbledon 3-0
Crewe—York 2-1
Darlington—Aldershot 1-1
Hartlepool—Mansfield 0—4
Hull—Bury 2—1
Peterborough—Northampton 2-0
Scunthorp—Port Vale 1—0
Swindon—Tranmere 4—2
Lugi stöðvaði loks
sigurgöngu Frölunda
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, frétta-
manni DV í Svíþjóð:
— Ein umferð var leikin í All
Svenskan í handknattleik karla í vik-
unni. Þar gerðist það helst markvert
að gamla félagið hans Jóns Hjaltalín
Magnússonar, Lugi frá Lundi, stöðvaði
sigurgöngu Frölunda frá Gautaborg.
Gautaborgarliðið, sem ekki hafði
tapað leik, er þekkt fyrir vel útfærð
hraðaupphlaup. I þetta sinn var þeim
þó ekki komið við. Leikmenn Lugi sáu
um það og svöruðu síöan með því aö
skora nær helming sinna marka úr
hraðaupphlaupum. Urðu þau alls 12 á
móti 2 frá Frölund. Leiknum lauk með
sigri Lugi 26—18.
GUIF frá Eskilstuna sigraði hitt
Lundar-liðið, H43 með 28 mörkum gegn
26. Andrés Kristjánsson skoraði 3
mörk í leiknum og hefur því gert alls 26
mörk í 6 fyrstu leikjunum.
önnur úrslit í All Svenskan í vikunni
urðu þessi:
Kropskultur—Landskrona 26—25
Warta—Visby/Gute 23—22
Vikingama—Heim 28—30
Drott—Ystad 19—17
Frölunda er efst að loknum 6 um-
ferðum með 10 stig. Þá koma Karls-
krona, Ystad og GUIF með 8 stig,
Drott, Heim, Lugi og Warta með 6 stig,
Visby/Gute og H43 með 5 stig, Krops-
kultur meö 4 en á botninum er gamla
stórveldið í handknattleiknum í Sví-
þjóð, VikingarnameðOstig. GAJ/-klp-
Lárus Guðmundsson — ekkl með Waterschei í næstu fjórum leikjum.
Árgentínski landsliðsmaðurinn í
knattspymu, Osvaldo Ardiles, undir-
ritaði í gærkvöldi nýjan tveggja ára
samning við enska 1. deildarliðið Tott-
enham Hotspúr.
Ardiles lék áður með Tottenham en
eftir að Falklandseyjastríðið kom upp
— en þá var hann í frii frá Tottenham
og æfði með argentínska landsliðinu
fyrir HM á Spáni — tilkynnti hann að
til Englands færi hann aldrei aftur.
Samningi hans við Tottenham var þá
ekki lokið, en samkomulag náðist um
að hann færi í eitt ár til að byrja með til
og einar 12 aðrar Evrópuþjóðir heldur ekki skráðar í forkeppnina
D-riðill
Spánn, Frakkland, Portúgal, Belgía,
Vestur-Þýskaland, Israel.
íslendingar taka ekki þátt í for-
keppni ólympíuleikanna í knattspyrau
að þessu sinni. Það hefur ísland
raunar ekki gert síðan fyrir ólympíu-
leikana í Montreal 1976.
Það eru fleiri E vrópuþ jóðir en ísland
sem hafa alveg misst áhugann á knatt-
spyrnukeppni ólympíuleikanna.
Vantar a.m.k. 12 þjóðir í forkeppnina
að þessu sinni. Kom það í ljós í fyrra-
dag þegar dregið var um hvaða þjóðir
ættu aö leika saman í forkeppninni
fyrirleikana 1984.
A-riðill
Sovétríkin, Ungverjaland, Búlgaría,
Tyrkland, Grikkland.
B-riðill
Austur-Þýskaland, Pólland, Finnland,
Noregur, Danmörk.
C-riðill
Júgóslavía, Rúmenía, Italía, Austur-
ríki, Holland, Lichtenstein.
Norðurlandamótið íhandknattleik karla:
ÞURFA 32 FÁ1500 MANNS
TIL AÐ SLEPPA VIÐ TAP!
Noröurlandamótið í handknattleik
karla — 20 ára og yngri — hefst í kvöld
í LaugardalshölUnni. Fyrstl leikurinn
byrjar kl. 20 og er það leikur milli
íslands og Noregs. Strax á eftir verður
annar stórleikur en þá mætast erki-
f jendumir Danir og Svíar.
Handknattleikssamband Islands
verður að fá um 1500 áhorfendur á
mótiö um helgina til að sleppa fjár-
hagslega út úr þessu ævintýri. Brúttó-
kostnaður við mótið nemur um 180
þúsund krónum og stærsti — og raunar
eini tekjuliðurinn sem HSI hefur — er
aðgöngumiðasalan.
Mótið stendur yfir í þrjá daga en því
líkur síðari hluta dags á sunnudaginn.
Þá fer verðlaunaafhending fram og
einnig verða þá veitt þrenn einstakl-
ingsverðlaun í mótinu. -klp-
Hvaða félag nær í
Pétur Guðmundsson?
„Það hafa fleiri félög haft sam-
band við mig síðan þú talaðir við mig
síðast,” sagði Pétur Guðmundsson
körfuknattleiksmaður í samtali við
DV í gærkvöldi.
Sem kmmugt er af fréttum er nú í
uppsiglingu mikill slagur margra
liða um Pétur og verður fróðlegt að
fylgjast með því hver hreppir hnoss-1
ið.
„ÍR-ingar höfðu samband við mig í I
gær og ég talaði við þjálfara liðsins I
og stjórnarmann. Það kom margt já-1
kvætt fram í þeim samtölum en enn I
er alsendis óvíst hvert ég fer. Þaðj
skýrist ekki fyrr en eftir helgina,”|
sagðiPétur. -SK.
Ein þjóð tekur nú í fyrsta sinn þátt í
alþjóðakeppni í knattspymu. Er það
Lichtenstein sem hefur aldrei verið
með áöur, hvorki í Evrópukeppni, HM-
keppni eöa OL-keppni.
Meðal þeirra þjóöa sem ekki mæta í
forkeppni OL að þessu sinni eru fyrir
utan Island, England, Skotland, Wales,
Irland,Sviss,Svíþjóðogfleiri. -klp-
Borðtennis-
kapparfrá
Skotlandi
og Wales
— taka þátt í afmælis-
móti BTÍ á morgun
Tveir atvinnumenn í borðtennis taka
þátt í 10 ára afmælismóti Borðtennis-
sambandsins, sem verður í íþróttahúsi
Kennaraháskólans á morgun. Það eru
þeir Dave Welsman frá Wales og
Skotinn David Mcllroy. Þetta eru
fastaleikmenn í landsliðum þjóða
sinna.
Afmælismótið hefst kl. 14 og er
áætlað aö undanúrslitaleikirnir hefjist
kl. 17 og úrslitaleikurinn kl. 17.45. Allir
bestu borðtennismenn Islands taka
þátt í mótinu og verður gaman að sjá
þá glíma við Bretana.
-SOS.
LARUS VAR DÆMDUR í
FJÖGRfl LEIKJA BANN
fyrir að vera rekinn út af í leiknum á móti Waregem
Frá Kristjáni Bernburg frétta-
ritara DV í Belgíu:
— Markaskorarinn mikli hjá Water-
schei, íslendingurinn Lárus
Guðmundsson, var í gær dæmdur í
fjögra leikja keppnisbann af belgiska
knattspyrnusambandinu. Verður
Lárus því ekki með liði sínu í 1. deildar-
leikjunum gegn Berschot, Club
Brugge, Tongeren og Anderlecht.
Lárusi var vísað af leikveHi í leik
Waterschei gegn Waregem um miðjan
síðasta mánuð. Þá steig einn leik-
manna Waregem viljandi ofan á fótinn
á honum þar sem Lárus lá á vellinum.
Hann borgaði fyrir sig meö því að
dangla með hinum fætinum fyrir
„neðan beltisstað” á kappanum. Sá
dómarinn það brot og vísaði Lárusi út
af.
„Ég átti alveg eins von á að fá sex
leiki í bann,” sagði Lárus í viðtali við
DV í gærkvöldi. „Það er lán í óláni að
þetta bann skuli koma núna. Eg hef átt
við meiðsli að stríða síðan í leiknum
við Lokeren, en fæ nú túna til að jafna
migáþeim.”
Það er slæmt fyrir Waterschei að
missa Lárus nú. Hann hefur skorað
mikið af mörkum í haust og þetta bann
setur einnig strik í reikninginn hjá
honum í keppninni um að verða
markakóngur Belgíu þetta keppnis-
tímabil. -klp-
Osvaldo ArdQes
Ardiles aftur
til Tottenham
Islœnding blev Aarhus KFUMs
trúmfkort
Aalborg HK — Aarhus KFUM
14-17 (8-9)
Símon Unndórsson — gerir það gott í handknattleiknum í Dan-
mörku, eins og sjá má m.a. á þessari fyrirsögn hér fyrir ofan.
— sem nú er í öðru sæti í 1. deildinni f danska handknattleiknum
íslendingurinn Símon Unndórs-
son, sem áður lék með KR, hefur
heldur betur slegið í gegn í
danska handboltanum að undan-
förnu, en þar leikur hann með
Árhus KFUM í 1. deildinni.
Hann kom mjög vel út úr síðasta
leik Árhus KFUM, sem þá Iék
gegn Álborg HK á útivelli. Extra-
blaðið segir að hann hafi verið
besti maður liðsins ásamt Per
Vandbæk og nýi þjálfari liðsins,
Ole Eliasen, hrósar Símoni mikið.
Staðan var 15—13 fyrir Árhus
KFUM og allt í jámum þegar
Símon „sló til” og gerði út um
leikinn. Árhus KFUM, sem nú er í
öðru sæti í dönsku 1. deildinni á
eftir Holte, sigraði í leiknum 17—
14. -klp-
Ásgeirgetur
byrjað að æfa
Evrópukeppnin í knattspymu:
Þau leika í næstu
umferð
í dag verður dregið um hvaða lið lenda saman í
næstu umferð í Evrópumótunum þrem í knatt-
spyrau, en þar eru nú þessi lið eftir.:
Evrópukeppni deildarmeistara:
Juventus, ítaliu, Liverpool, Englandi, Aston
Villa, Englandi, San Sebastian, Spáni, Hamburg
SV, Vestur-Þýskalandi, Widezew Lodz, Póllandi,
Sporting, Portúgal og Dinamo Kiev, Sovétríkjun-
um.
Evrópukeppni bikarmeistara:
Waterschei, Belgíu, Barcelona, Spáni, Inter
Milan, ítaliu, Aberdeen, Skotlandi, Austria Vin,
Austurríki, Paris St Germain, Frakklandi, Real
Madrid, Spáni og Bayern Munchen, Þýskalandi.
UEFA-keppnin:
Werder Bremea, V-Þýskalandi, Anderlecht,
Belgíu, Valencia, Spáni, Spartak Moskva, Sovét-
rikjunum, Boheminans, Tékkóslóvakíu, Benfica,
Portúgal, Dundee United, Skotlandi, AS Roma,
ítaliu, Bordeaux, Frakklandi, FC Köln, V-Þýska-
landi, Craiova, Rúmeníu, FC Zurich, Sviss, Sevilla,
Spáni, Sarajevo, Júgóslavíu,' Kaiserslautera, V-
Þýskalandi.
í gær var síðasti leikurinn í UEFA-keppninni. Þá
sigraði Servetta, Sviss, pólska liöið Slask Wroclaw
5—1 og er Servetta því eitt af 16 liðum sem eftir eru
þar.
Aðeins eitt lið sem skipað er islenskum leikmanni
er eftir í keppninni. Það er lið Lárusar Guðmunds-
sonar, Waterschei, sem er í Evrópukeppni bikar-
meistara. -klp-
Borg komst í úrslit
— en þar steinlá hann fyrir
iohn McEnroe
Sænska tennisstjarnan Björn Borg varð að láta í
minni pokann fyrir Bacdaríkjamanninum John
McEnroe í úrslitaleiknum á miklu tennismóti sem
lauk i Perth i Ástraliu i gær.
Björn Borg tók þátt í því móti ásamt öllum helstu
tennisköppum hans. Var þetta eitt af fyrstu mótunum
sem hann tekur þátt í nú í langan tima og bjóst því
enginn við neinu af honum.
Hann sýndi þó strax að hami liafði engu gleymt
nema síður væri og sló hann hvera kappann út á fætur
öðrum. Endaöi hann á Tékkanum Ivan Lendl, sem
hafði þá verið ósigraður í 52 leikjum í röð.
Með sigrinum yfir honum komst Björn í úrslit á
móti McEnroe, sem hann hefur ekki keppt við í nær
heilt ár. Þar gekk aftur á móti allt á afturfótunum hjá
Svíanum, og hann varð að sætta sig við 6—1 og 6—4
tap..... -kip-
Björa Borg—komst í úrslit i Perth.
Dregið íbikarkeppni
fblaki
Dregið hefur verið í 1. umferð bikarkeppni Blak-
sambandsins. Þessi lið drógust saman:
Karlar
Skautafélag Akureyrar—Bjarmi
UMSE —Óðinn
Samhygð—Þróttur, Neskaupstað
ÍBV—Víkingur
HK—Fram
Þróttur R, ÍS og Breiðablik sitja yfir.
Konur
Þróttur — KA
Breiðablik—ÍS
Gert er ráð fyrir að 1. umferðin verði leikin um
miðjan febrúar næstkomandi. -KMU.