Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1983, Qupperneq 9
DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. JUNl 1983.
Utlönd
Útlönd
Útlönd
Utlönd
Kosningarnar á Ítalíu:
Aðeins 2% munur á kristilegum
demókrötum og kommúnistum
Fylgi kristilegra demókrata á Italíu
hrundi í kosningunum í gær og um
helgina. Munar nú ekki nema tæpum
2% á þeim og kommúnistum. Tapaði
þessi stærsti og ráðamesti stjóm-
málaflokkur Itala um 6%. — Flestir >
spá því að þessi úrslit leiði til þess að
langan tíma taki að mynda næstu ríkis-
stjóm.
Þessi úrslit komu þvert ofan í flestra
spár því að menn ætluðu aö hlutföll
flokkanna mundu lítið raskast.
Þegar talin höfðu verið nær 90% at-
kvæða í kosningunum til neðri deildar
þingsins (630 fulltrúar) höfðu kristi-
legir demókratar fengið nær 32,5% at-
kvæða á meðan kommúnistar höfðu
náð 30,5% sem er sama fylgi og þeir
höfðu.
Þetta er versta útkoma hjá kristi-
legum demókrötum síðan flokkurinn
var stofnaður 1943. Fram til þessa
hafa þeir minnst fengiö 38,3% (í kosn-
ingunum 1979) og minnstur hefur mun-
urinn á fylgi þeirra og kommúnista
verið 4,3% (árið 1976).
Fylgistap þeirra virðist hafa dreifst
á smáflokkana þar sem nýfasistar og
sósíalistar juku smávegis við sig.
Forvígismenn kristilegra demó-
krata viðurkenndu strax í nótt að úr-
slitin fælu í sér slæman dóm kjósenda á
flokknum sem ráðið hefur hverri ríkis-
stjóm, sem mynduð hefur verið frá því
í stríðslok. Ciriaco de Mita, fram-
kvæmdastjóri flokksins, sagði blaða-
mönnum aö kosningamar spegluðu
„mótmæli, fordæmingu og óánægju
kjósendanna”. — „Enginn vann en við
töpuðum mestu,” sagði hann.
Enrico Berlinguer, leiðtogi komm-
únista, fagnaði ósigri kristilegra
demókrata og spáði að úrslitin boöuðu
endalok einráða þeirra í stjórnar-
myndunum. Skoraði hann eindregið á
sósíalista að ganga til samstarfs við
kommúnista og útiloka kristilega
’ demókrata.
Bettino Craxi, leiðtogi sósíalista sem
ruddu kosningunum braut með því að
ganga út úr síðasta stjórnarsamstarfi,
hafnaði áskorunum Berlinguers.'
Sósíalistar fengu um 11% eða 2%
minna en Craxi hafði gert sér vonir um
til þess að styrkja betur tilkall sitt til
forsætisráðherrastólsins.
Því er spáð að í stjórnarmyndunar-
viöræðunum framundan muni Craxi
reyna að notfæra sér veikleika kristi-
legra demókrata til þess að krefjast
forsætisráðuneytisins en almennt er
talið aö eftir samstarfsrofiö muni
kristilegir demókratar verða óþjálir
viðsamninga.
Líklegasta afleiðing kosninganna
þykir sú að næsta stjóm falli frá
sparnaðarráðstöfunum núverandi
stjórnar. Italir eiga við 16,5% verð-
bólgu að glíma og hrikalegan halla á
fjárlögum.
Enrico Berlinguer, leiðtogi kommúnista, er hættur að tala um „sögulegar sættir” kommúnista og kristilegra demó-
krata og fagnar því sem hann spáir að séu endalok stjóraaraðildar kristilegra. Hann skorar á sósialista að ganga til
stjóraarsamstarfs við kommúnista.
f'ÞESSI
GALVANISERAÐI
MEÐ ÞYKKA
WWLAKKINU
UNO NÚMER EITTHJÁ
AUTO MOTOR UND SPORT
I samanburði á sex tegundum
smábíla sem gerður vará vegum hins
virta bílablaðs Auto Motor und Sport,
varð FIAT UNO í fyrsta sæti.
Auðvitað fyrstur, það er engin tilviljun
að bíllinn heitir UNO.
(UNO þýðir einn eða fyrsti á ítöisku).
KAUPTU BLAÐIÐ OG LESTU
SJÁLFUR (BLÖÐ NR. 10 OG 11)
auto
motor
sport
FIA 7 ER FREMSTUR
EGILL
VILHJÁLMSSQN HF. / j
Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77202
F // A T