Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1983, Side 2
2
DV. ÞRIÐJUDAGUR16. AGUST1983.
Orsök
óhappsinsá
Litla-Hrauni
erstóll
vaktmanns
sprakk:
Gaslyftibúnadur sem
var ætiaður í stóla
með fastri setu
— segir Vinnueftirlit ríkisins
„Orsök óhappsins aö Litla Hrauni er
að mati Vinnueftirlitsins sú að við
framleiðslu stólsins var notaður gas-
lyftibúnaður sem aöeins er ætlaður
fyrir stóla með fastri setu sem ekki er
hægt að velta þegar setið er í stóln-
um.”
Svo segir m.a. í frétt Vinnueftirlits
ríkisins vegna atburðarins á Litla-
Hrauni nýlega þegar stóll vaktmanns
þar brotnaði með þeim afleiöingum aö
stimpill úr hólki gaslyftibúnaðar i
stólnum skaust upp í loft með verulegu
afli. Vinnueftirlitið hefur rannsakaö
Eins og sjá má var krafturinn mikill er hólkurinn þeyttist upp í loftið á Litla-
Hrauni.
atburð þennan og eru niðurstöður eftir-
farandi:
„Stóllinn sem brotnaöi var með setu
sem leikur á veltiási. Þannig má velta
setunni og bakinu aftur á bak þegar
setið er í stólnum. Seta stólsins hvílir á
gaslyftibúnaöi þannig að hægt er að
hækka og lækka setuna með til þess
gerðri stjómstöng.
Gaslyftibúnaðurinn er þannig gerð-
ur að inn í stálhólk gengur stimpill sem
hægt er að hækka og lækka með gas-
þrýstingi.
Stólar þeir með gaslyftibúnaði sem
framleiddir eru hér á landi eru flestir
með gashólka sem keyptir eru frá
þýska fyrirtækinu Suspa. Fyrirtækið
framleiðir tvenns konar hólka. Annars
vegar gashólka með gati á hliðinni
fyrir stjórnstöngina. Sá búnaður er
ekki ætlaður fyrir stóla með veltan-
legri setu eins og umræddur stóll haföi.
Hins vegar framleiðir fyrirtækið
gashólka með sérstökum þrýstihnappi
efst á enda hólksins og er þá ekkert gat
á hliðinni sem veikir hólkinn. Er þessi
búnaður mun traustari en sá fyrr-
nefndi og ætlaður fyrir stóla með
veltanlegrisetu.”
Segir síðan að orsök óhappsins á
Litla-Hrauni hefði verið sú að stóllinn
hefði verið búinn gaslyftu af fyrr-
nefndu gerðinni sem sé einungis fyrir
stóla með fastri setu. ”
Vinnueftirlitið hefur því lagt bann
viö notkun gashólka af fyrrnefndu
gerðinni í stóla meö veltanlegri setu.
Jafnframt gerir Vinnueftirlitið þá
kröfu til viðkomandi framleiðanda að
hann innkalli og geri breytingar á
þeim stólum sem seldir hafa verið með
fyrrgreindum búnaði þannig að ekki
stafi lengur af þeim sly sahætta.
-JSS.
Til vinstri má sjá gashólk af sams konar gerð og var f stólnum sem brotnaði. Til
hægri er svo hólkur sem ekki er með gati á hliðinni og er því traustari. Vinnueftir-
litið hefur nú lagt bann við notkun fyrrgreindu hólkanna í skrifstof ustóla með velt-
anlegri setu.
Stóllinn sem brotnaði. Undir setu hans sést gashólkurinn sem brotnaði og stjórn-
stöngin sem stjórnar hækkun og lækkun stólsins.
Fólk hringdi látlaust í Pennann vegna sprengistólanna:
Vildi fi skríflega yfiríýsingu
— um að stólarnir væru í lagi
„Fólk hringdi hingað látlaust fyrir
helgina vegna þessara sprengistóla.
Það kom meira að segja fyrir aö fólk
vildi ekki taka við stólunum nema það
fengi skriflega yfirlýsingu frá fyrir-
tækinu um að þeir værú í lagi. ”
Þetta sagði Hannes Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Pennans, sem'
verslar með ýmiss konar gerðir af
skrifstofustólum.
Sagði Hannes að fréttir um spreng-
ingu stólsins á Litla-Hrauni hefðu vald-
ið miklum óróa hjá fólki sem heföi ótt-
ast að það hefði sh'ka stóla í híbýlum
sinum eða væri að festa kaup á þeim.
,Eólk virtist alls ekki vita hvaða
stólar væru í lagi og hverjir ekki,”
sagði Hannes. „Margir stóðu til dæmis
í þeirri trú að allir veltistólar væru
stórhættulegir, en svo er ekki.
Fyrir um það bil tveim mánuðum
kom sérfræðingur frá Þýskalandi til
okkar til að skoða stólana sem við selj-
um. Hann kom að gefnu tilefni þar sem
það hafði gerst skömmu áður úti í
Þýskalandi, að stálkólfur gekk í gegn-
um setuna á stól og í höfuð manns. Sá
missti augaö. Þessi umræddi sérfræð-
ingur skoöaði Stáliðjustólana, að visu
ekki veltistólana, og fann ekkert at-
hugavert.
Nú hefur Stáliöjan gert sínar ráð-
stafanir varðandi breytingar á dælun-
um i stólunum þannig að stólarnir sem
hún framleiðir eiga að vera fullkom-
lega öruggir. Við höfum einnig hringt í
stærstu viðskiptavini okkar til að láta
þá vita að umræddir stólar séu í lagi og
við munum halda áfram að selja þessa
tegund,” sagði Hannes Guömundsson.
íslandsrallið hefst
líklega í næstu viku
ætluðu um 150 erlendir keppendur að
taka þátt í rallinu.
1 för með hinum erlendu rallköppum
veröur Frakkinn Jean-Claude
Bertrand, en hann hefur séð um kynn-
ingu á rallinu erlendis. Hann mun hafa
með sér þyrlu og önnur farartæki sem
notuð verða til eftirlits i keppninni.
Það eina sem enn vantar upp á til að
hægt sé að slá því föstu að rallið fari
fram er formlegt leyfi dómsmálaráð-
herra. Telja verður liklegt aö hann
muni veita leyfið enda jákvæðar um-
sagnir sýslumanna og hreppstjóra
fyrir hendi.
SÞS.
— ýmsar breytingar hafa verið gerðar á akstursleiðum
Islandsralliö margumrædda, sem
hvað mest lætin urðu útaf í vor, mun að
öllum líkindum hefjast í næstu viku.
Ekki mun ralliö þó verða eins og í upp-
hafi var áætlað því ýmsar breytingar
hafa verið gerðar á akstursleiðum.
Það sem hefur gerst í málinu frá því
í vor, er þáverandi dómsmálaráðherra
ákvað aö veita ekki leyfi fyrir rallinu
að svo komnu máli, er að leitað hefur
verið til sýslumanna og hreppstjóra
þeirra sýslna og hreppa sem aka átti
um og þeir beðnir um álit sitt á því aö
viðkomandi leiðir yrðu eknar í rallinu.
Allir þessir aöilar hafa nú sent
Landssambandi akstursíþróttafélaga
greinargerð og að sögn formanns sam-
bandsins, ör\'ars Sigurðssonar, hefur
leyfi fengist hjá öllum nema einum,
sýslumanninum í Norður-Múlasýslu.
Flestir hinna hafa komið með ein-
hverjar athugasemdir og hafa verið
gerðar breytingar á rallinu í samræmi
við þær. Helstu breytingamar era þær
að fyrsta sérleiðin fellur alveg út en
hún var á milli Egilsstaða og Möðru-
dals. Einnig fellur út leiöin umdeilda
um Amarvatnsheiði. Aðrar breytingar
eru smávægilegri og líklegast að
sumar þeirra verði að gera á meöan á
keppninni stendur ef aurbleyta verður
jafnmikil og útlit er fyrir.
Fjöldi keppenda er enn ekki ákveð-
inn en að sögn örvars munu nú vera á
leiðinni hingað til lands milli 25 og 30
erlendir keppendur, en upphaflega