Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1983, Blaðsíða 5
DV. ÞRIÐJUDAGUR16. ÁGUST1983.
5
launadeilur standa enn í Þyrilsmálinu:
STÉTTARFÉLAGIÐ ÆTTIAÐ VINNA
MEÐ OKKUR EN EKKIÁ MÓTI
„Viö erum meö í höndunum telex-
skeyti, undirritaö af Ingólfi Stefáns-
syni hjá Farmanna- og fiskimanna-
sambandi Islands þar sem segir aö
FFSI hafi tekið viö launagreiöslum
fyrir yfirmenn á ms. Þyrli. Þessar
greiðslur höfum viö þó aldrei séð né
fengið svör frá Ingólfi um hvar þessir
peningar séu niðurkomnir,” sagði
Siguröur Þóröarson stýrimaöur í viö-
tali viö DV.
Sigurður og fleiri yfirmenn, sem
siglt hafa á Þyrli, hafa ekki fengið laun
sín greidd hjá útgerðinni. Er þama um
að ræða 8 eöa 9 yfirmenn og eiga þeir
tugi þúsunda inni hjá útgerðarmanni
Þyrils og einnig hjá Farmannasam-
bandinu eftir því sem þeir telja. Tveir
af þessum mönnum eiga inni hátt á
annað hundraö þúsund krónur en aörir
minni upphæöir.
Þegar Þyrill var kyrrsettur í
Humble á Englandi í vor, eins og frægt
varö í fréttum bæði hér og á Englandi,
var það m.a. vegna þess aö skipverjar
höfðu þá ekki fengið greidd laun í lang-
an tima. Enginn matur var til um borö
— segir Sigurður Þórðarson
og uröu skipverjar að lifa á ölmusu frá
hafnarverkamönnum á staðnum.
Skipiö var kyrrsett þarna í nokkra
daga og var vistin um borð allt annaö
englæsileg.
Sjómannafélagiö og Farmannasam-
bandiö komust aö sjálfsögöu í þetta
mál og geröu þau samning við út-
gerðarmanninn. „Vinnubrögö Far-
mannasambamdsins í því sambandi
eru fyrir neðan allar hellur,” sagöi
Sigurður. „Þaö tók víxla af útgeröar-
manninum sem tryggingu fyrir laun-
um okkar og sendi okkur síðan aftur út
á sjó meö skipinu.
Þaö kannaöi ekki einu sinni hvort
matur væru um borö fyrir mannskap-
inn né heldur hvort við hefðum nokkuð
til málanna aö leggja. Félagið eða hag-
fræðingur þess hefur sjálfsagt vitað aö
viö myndum aldrei samþykkja að taka
verðlausa víxla upp í laun okkar. Því
var okkur ekki sagt frá neinu — aöeins
sent telex um aö allar greiðslur væru
komnar.
Þetta telex höfum viö í höndunum en
greiðslurnar höfum viö ekki séö enn.
Viö fáum engin svör hjá FFSI um hvar
þessar greiöslur séu niöurkomnar. Viö
höfum nú orðið að veröa okkur úti um
lögfræðinga til að innheimta þessar
greiðslur hjá FFSI því að þar fáum viö
sjálfir engin svör.
Við borgum af launum okkar í þetta
stéttarfélag okkar og ætlumst þá til í
staöinn aö þaö vinni fyrir okkur en ekki
á móti. Viö ætlumst heidur ekki til aö
félagiö sé sáttasemjari i deilum á milli
áhafnar og útgeröar og standi svo með
útgerðinni eins og gerðist í þessu
máli,” sagöiSiguröur.
Hann sagöi okkur að hann heföi feng-
iö 30 þúsund króna ávisun frá út-
geröarmanninum þegar hann yfirgaf
skipiö, en hún hafi veriö innistæðulaus
eins og fleiri sem skipverjar hefðu
fengið þegar þeir ætluöu aö leysa þær
út á Islandi. Hann sagðist ekkert vita
hvar Þyrill væri nú niöurkominn. Síð-
ast hefði hann frétt af honum í Álaborg
í Danmörku og þar hefði hann þá legið
aögeröalaus í nokkrar vikur.
-klp-
Kyrrsetning ofíuskipsins Þyrils i höfninni i Southampton ímaisi., varmikið
i fréttum i DV og einnig sögðu ensk blöð og BBC sjónvarpið frá þvi. Skipið
var kyrrsett vegna þess að skipverjar höfðu ekki fengið greidd laun síðan i
desember og margir þeirra hafa enn ekki fengið þessi laun sín greidd.
Ljómarall '83
hefst á fímmtudag
Ljómarall ’83 hefst næstkomandi
fimmtudag, 18. ágúst, og mun standa
til sunnudagsins 21. ágúst.
Þetta er fjóröa alþjóðlega rall-
keppnin sem fer fram hérlendis en
aö þessu sinni taka 19 keppendur
þátt, þar af einn erlendur.
Keppnin er i þremur áföngum og
er alls 1765,04 kílómetrar og þar af
eru 552,07 kílómetrar sérleiðir.
Keppnin hefst klukkan 9 á fimmtu-
dagsmorgun við Vogaskólann i
Reykjavík. Það er borgarstjórinn í
Reykjavík, DavíðOddsson.sem ræs-
ir fyrsta keppanda og verður það
fyrsta atriðiö á afmælisdegi Reykja-
vikurborgar 18. ágúst.
Upplýsingamiðstöö keppninnar
verður í Vogaskólanum, en þar
verður stjómstöö keppninnar einnig,
og eru allir velkomnir þangaö á
meðan á keppninni stendur.
Ljómaralli lýkur sunnudaginn 21.
ágúst klukkan 14 viö Vogaskólann.
-sþs-
HtkVKi
Logi Einarsson keppnisstjóri i Ljómarafíi '83, bendir hir ó eina af
leiðum þeim sem ekin verður í ralfínu.
Eitt af skfíyrðum fyrir þátttöku i rafíkeppni er að hafa veltigrind eins ogþáer hór sést ibilum keppenda.
Kemur hún í veg fyrir að hús bifreiðarinnar leggist saman við vettu. DV-myndir ÓG.
Það var ekki asanum fyrir að fara hjá þessum myndariegu krökkum fyrir
utan Herðubreið á Seyðisfirði. Tafíð frá vinstri: Silvía Dögg Tómasdóttir,
Arnar Sveinlaugsson, Vilhelm Adolfsson og Eiríkur Þór Björnsson. Þeir Vil-
helm og Eiríkur voru roknir áður en við náðum frekar tafí afþeim.
DV-mynd: Bjarnleifur.
„ÉG Á NÚ BARA
AÐ PASSA
HANNí DAG”
— hressir krakkar fyrir utan Hótel
Herðubreið á Seyðisf irði
,JIa, jú, jú, viö erum alveg til í aö
láta taka af okkur mynd,” sögðu þessir
hréssilegu krakkar á Seyðisfirði sem
við Bjamleifur ljósmyndari rákumst á
'umdagin.
Þeir voru staddir fyrir utan Hótel
Herðubreið á miklum góðviðrisdegi og
tóku lífinu létt eins og vera ber.
,,Ég á nú bara aö passa hann i dag.
Mamma hans og pabbi voru nefnilega
aö fara að mála og töluðu viö mig,”
sagöi hún Silvía Dögg Tómasdóttir
sem er lengst til vinstri á myndinni. Og
auövitað er hún aö tala um Seyð-
firöinginn unga í kerrunni, hann Arnar
Sveinlaugsson.
Silvía bætti því síðan kampakát við
aö hún byggi nú á Akureyri, ,,en ég er
hjá ömmu minni hér í sumar”.
-JGH.
Sauðárkrókur:
Vatnsverksmiðja
i burðarliðnum
Bæjarráö Sauðárkróks samþykkti
nýlega aö ganga í ábyrgö fyrir þriggja
milljóna láni vegna væntanlegrar
stofnunar hlutafélags um vatnspökk-
unarverksmiðju. Þaö er Hreinn
Sigurðsson, framkvæmdastjóri á Sauð-
árkróki, sem haft hefur forystu um
málefniö en þetta hefur staðið til í
mörg ár.
Samkvæmt heimildum DV hafa
sýnishorn verið send til Bandaríkjanna
til athugunar og hafa þau hlotið mjög
góða umsögn. Hreinn Sigurðsson
kvaðst ekki geta sagt neitt um máhð að
svo stöddu nema að það væri í vinnslu
og myndi skýrast innan skamms tíma
aðfullu.
-pa.