Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1983, Síða 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR16. AGUST1983.
3
Nágrannanum fannst
þakið allt of hátt
„Samstaða náðist um þetta og ég
held að allir séu nú sáttir,” sagði
Friðþjófur Sigurösson, byggingafull-
trúi í Hafnarfirði, er við spurðum
hann um ágreining sem kom upp á
milli húseigenda við Þrastarhraun í
Hafnarfirði um byggingu á nýju þaki
áhúsiþar.
Húseigandi við Þrastrarhraun
hefði fengið leyfi og samþykktar
teikningar af nýju þaki á hús sitt.
Var gamla þakið, sem var f latt, hrip-
lekt og fékk hann leyfi til að setja
upp svokallað valmaþak. Fékkst
leyfi til að hafa þakið 150 sm á hæð en
eigandinn ákvað að hafa það ekki
nema 136 sm.
Þegar hann ætlaði að hefjast
handa við að reisa þakið mótmæltu
nágrannar hans. Töldu þeir þakiö
eins og það var allt of hátt og skyggði
á útsýni og eignir þeirra. Varð út af
þessu nokkurt þref en á endanum
sættust allir aðilar á að lækka þakiö
og var fallist á að það yrði 90 sm á
hæð.
Nágranninn höföaöi til nýrrar
reglugerðar sem gefin var út í vor,
en þar er ákvæði sem segir að ef
breytingar eru á húsum í gömlum
hverfum verði að leita álits annarra
húseigenda í hverfinu á því áður en
samþykkt yfirvalda sé veitt.
Ér hald manna að þetta ákvæði
eigi eftir að valda ýmsum húseigend-
um, sem vilja breyta útliti húsa
sinna, margvíslegum vandræðum og
kosta mikiö fé og tíma eins og í þessu
tilfelliíHafnarfirði. -klp-
Sumarhus
og Tívolí
á sama stao
Byrjað var á að lækka nýja þakið á húsinu við Þrastarhraun í gær, en það þurfti að fara niður um bálfan metra svo
að allir væru ánægðir. Myndin er tekin frá glugga nágrannans. i DV-mynd Helgi.
Skattaskoðun DV1983:
ÞRÍR BORGA YFIR MIUJÓN
í ÁLÖGD HEILDARGJÖLD
— lyfsalar undir smásjánni
Hér koma skatthæstu einstakling-
arnir hingaö til í skattskoðun DV 1983.
Það er greinilega ekki ónýtt að vera
apótekari, að minnsta kosti sums
staðar, ef tekið er tillit til tekna. Hvað
fyndist ykkur til dæmis um að hafa um
230 þúsund í mánaöartekjur? Með
slíkar tekjur verður maöur auðvitaö að
vera reiðubúinn að borga yfir milljón-
ina í heildarskatta.
Annars virðist tekjum apótekara
vera æði misskipt, til dæmis hefur ívar
Daníelsson í Borgar-Apóteki um 230
þúsund í mánaðarkaup, reiknað fram til
dagsins í dag, á meðan Oddur C.S.
Thorarensen í Laugavegs-Apóteki hef-
ur einungis um 27 þúsund í mánaðar-
tekjur. Það er greinilegt að fólk sem er
á ferö um Laugaveginn gerir eitthvað
annaö við peningana sína en að versla í
apótekinu.
Tveir aörir apótekarar hafa einnig
heldur rýrar mánaðartekjur miðað við
heildina en það eru þeir Karl Lúðvíks-
son í Apóteki-Austurbæjar og Benedikt
Sigurðsson í Apóteki-Keflavíkur.
Þeirra mánaðarkaup reiknað fram til
dagsins í dag, er um 35 þúsund krónur.
Skýringar á þessum tekjumismun
apótekara vitum vér eigi, kannski er
hér fólgin vísbending um hvar fólk er
hraustast, hver veit?
Tekjusk. Eignask. Otsvar Skattar alls
Andrés Guðmundsson, Háaleitis-Apótek 597690 46290 172390 1080783
Benedikt Sigurðsson, Apótek-Keflavíkur 65303 9850 32550 362468
Birgir Einarsson, Apótek-V esturbæj ar 706787 25003 198450 1188833
Christian Zimsen, Laugarness-Apótek 413048 85779 121080 777385
Helga Vilhjálmsdóttir, Mosfells-Apótek 116989 6254 42140 217887
Ingibjörg Böðvarsdóttir, Breiðholts-Apótek 531609 16488 144810 784857
Ivar Daníelsson, Borgar-Apótek 738140 56039 209210 1239314
Karl Lúðvíksson, Apótek-Austurbæjar 73747 118594 31360 510371
Kjartan Gunnarsson, Iðunnar-Apótek 506478 33033 138860 952464
Matthías Ingibergsson, Kópavogs-Apótek 431154 16350 122050 758145
Mogens A. Mogensen, Garðs-Apótek 165617 31390 55860 435732
Oddur C. S. Thorarensen, Laugavegs-Apótek 46410 45988 24790 233352
Sigurður Olafsson, Reykjavíkur-Apótek 111293 10990 45170 17410
Sverrir Magnússon, Hafnafjarðar-Apótek 195660 14201 58120 381433
Wernerl. Rasmusson, Ingólfs-Apótek 269746 24758 89370 466852
Fyrir þá sem gaman hafa af að
reikna út hvað apótekaramir hafa í
mánaðarkaup í dag getum viö gefið
þeim upp þá þumalfingursreglu að
margfalda einfaldlega úts\'ar viðkom-
andi manna með tölunni 1,1.
Einhverjir lesendur kunna að reka
augun í að heildarskattar sumra apó-
tekaranna eru miklu hærri en saman-
lagður tekjuskattur , eignaskattur og
útsvar. Þetta stafar af því að margir
apótekaranna borga mjög hátt að-
stöðugjald og einnig háan atvinnurek-
endaskatt.
Enn á ný skal tekið f ram að tölur þær
sem birtast hér eru einungis álögð
gjöld samvkæmt skattskrá og því
ekki nauðsynlega endanleg gjöld.
SÞS
23. og 30. ágúst
(Mögulegt aö framlengja)
Bráöskemmtileg nýjung fyrir fjölskylduna sem vill stanslaust Tivolí-
fjör í sumarleyfinu án aukakostnaöar. Gist veröur i sumarhúsum við
Pony Park, einn stærsta Tívolígarð Hollands. Innifalinn i verði
ferðarinnar er f rjáls aðgangur að öllum tækjum, leikjum og sýningum
í Pony Park og bilaleigubíll að aukil
Verðdæmi: 4 saman i húsi kr.10.600.- Barnaafsláttur kr. 4.000.-
Heildarverð fyrir 4ra manna fjölskyldu aðeins kr. 34.000.-
Innifalið: Flug til og frá Amsterdam, gisting í sumarhúsi og ókeypis
aðgangurað Pony Park, bílaleigubíllaf A-flokki íviku.ótakmarkaður
kílómetrafjöldi, allar nauðsynlegar tryggingar og söluskattur.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆT112 - SÍMAR 27077 & 28899
Má bjóda ykkur það BESTA sem til er á
LONDON— tveir dagar á heimleið án aukakostnaðar.
50%
Notið fjölskylduafsláttinn
afsláttur fyrir börnin.
TRIANONibúðahótel á Magaluf
/1 l/uigit) ndur rn þid celjid MnUorcaíerdinn n<) adeins ó Trianon fóii) þið:
rr
1. Allar ihiidir og sólsralir sniia ó
móli sól og slrönd. iHngar
ibiiðir sniia lil hlida eAa a<) hak-
görduin eins og almennl er.)
2. Lyflurnar ganga heinl af ibiiAa-
göngunum niAur ó sundlauga-
og sólhaAssra-AiA og sandinn.
(t»arf ekki aA fara yfirgölu.)
.7. LiA reljiA ykkar eigin ibiiA sjólf
þcgar ferA er pönluA og fóiA
lyklana nieA farseAluniiin.
Allar ihiiAirnar riimgóiAar, srefn-
herhergi og slofa. flisalögA biiA og
fulllniiA eldhós. RiimgóAar sól-
sralir nieA slórkostlegu úlsýni yfir
slröndina og MagalufbyggAina.
Utsyni af ibúðasvölum Trianon
vfir strönd og byggð.
Ilar og reilingaþjónusla ó stindlaiigasricAinu. KjörbiiAir og fleiri
reilingaslaAir i hiisinu. Tugir reilingaslada og iniAslöA skemmlanalifsins
i nógrenninu.
Aðrar ferðir okkar:
Grikkland, Malta, Tenerífe, Franska Rivieran,
landid helga, Egyptaland 11. okt.,
Thailand — töfrar Austurlanda nóv. og des.
Brottför alla þriðjudaga og
laugardaga, 10—17—24—
eða 31 dagur, með eða án
viðkomu i Lundúnum.
FLUGFERDIR »'SÓLARFLUG
I Vesturgötu 17
Simar
10661
15331
og
22100