Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1983, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1983, Blaðsíða 4
4 DV. ÞRIÐJUDAGUR16. AGUST1983. Enn umsúrefni: „ÁBURÐARVERKSMIÐJAN HÖFD FYRIR RANGRISÖK” — mistök við áfyllingu súrefnis og köfnunaref niskúfa geta ekki orðið í Áburðarverksmiðjunni, segir Runólfur Þórðarson verksmiðjustjóri „I framhaldi af skrifum DV aö undanfömu um súrefni þaö sem framleitt er í Áburðarverksmiöjunni og íslensk loftför eru hætt aö kaupa, vil ég aö þaö komi fram aö viö seljum þaö aðeins einum aöila og þaö er Isaga,” sagði Runólfur Þórðarson, verksmiöjustjóri í Áburöarverk- smiðjunni, í samtali viö DV í gær. „Samkvæmt samningi sem geröur var áriö 1966 er skylda okkar sú ein aö selja Isaga súrefni meö hreinleika á bilinu frá 99,4%—99,7%, en síðan höfum viö engin áhrif á hver kaupir þaöaf fyrirtækinu.” Aö sögn Runólfs hefur starfsmönn- um Aburöarverksmiöjunnar veriö kunnugt um aö súrefni frá verk- smiöjunni var notað á íslenskar flug- vélar, en ekki vitaö fyrr en nú í vor hvaöa kröfur voru gerðar um gæði þess og þá var afhending stöövuð. „Þaö koma bílar frá Isaga til okkar tvisvar á dag meö kúta til áfyllingar sem þeir sjálfir hafa flokkaö,” sagöi Runólfur ennfremur, „og þaö er útiiokaö aö viö fyllum vit- laust á þá, einfaldlega vegna þess aö stútar súrefniskútauna passa ekki á köfnunarefnisáfyllinguna og svo öfugt.” Aðspurður hvernig á því gæti þá staðið aö vitlaust efni færi á kútana sagði Runólfur að eina skýringin væri sú aö notendur rugluöust á kútum, en þar væri ekku um aö ræöa mistök við áfyllingu, þau væru úti- lokuð, heldur mannleg mistök sem e.t.v. mætti rekja til slæmra merk- inga á kútunum. Um þau mál er ekki til nein reglu- gerö og þótt hún hafi veriö lengi í smíðum vantar hana enn. -EIR. Beðið eftir flugi. Eins og fram kom í DV í gær fóru 25 blaðburðarbörn á vegum DV og Vikunnar í ævintýraferð til Kaupmannahafnar á laugardaginn. Myndin er tekin er þrír blaðburðardrengir styttu sér stundir meðan beðið var í fríhöfninni. Þar var tæki- færið notað og tölvuspilin dregin upp. Mikið hefur verið um dýrðir í ferðinni, heim- sókn i Tívolí, dýragarðinn og á Dyrehavsbakken. Hópurinn kemur heim úr ferðinni í dag. DV-mynd Helgi. Eins og sjá má á DV-mynd S. var þaO hin mesta mildi aO dáraskapur farþegans varO ekki ungmennunum aO fjörtjóni. Ökuferöin endaöi inni i garöi — lá við stórslysi vegna dáraskapar ungmenna í ökuferð á Laugarásvegi Telja má hina mestu mildi aö ekki varð stórslys á laugardagskvöld er bif- reið rann stjómlaus inn í garö viö Laugarásveginn. Málavextir eru þeir að þrjú ung- menni óku í bifreið suður Laugarás- veginn í átt að Langholtsvegi. Gáski ungmennanna gekk fulllangt er far- þegi í bílnum drap á honum meö þeim afleiðingum aö stýriö læstist og afl- hemiar misstu kraft. Skipti engum togum aö bifreiöin rann stjórnlaus yfir gangstéttarbrún, í gegnum limgerði og niður mannhæðar háa, bratta garðs- hlíð. Trjágróöur, sem bifreiöin rakst á dró úr hraða hennar. Stöövaðist bif- reiðin á hliðinni og skall skottlokiö í húshornið. ,,Er viö vorum að snæða kvöldverð- inn heyröum viö þungan dynk,” sagöi Þór Þorsteinsson, íbúi aö Laugarás- vegi 50. „Litum við út um gluggann og urðum heldur betur undrandi er bifreið lá á hliðinni viö húshornið en aö sama skapi glöð er krakkarnir skriöu út, lúpulegir en ómeiddir. Guði sé lof ”. Það þarf vart aö taka fram aö þaö var guösmildi aö ekki varö stórslys af þessum dáraskap. Ekki heföi þurft aö spyrja aö leikslokum ef bifreiðin heföi ekiö á húsvegginn eöa vegfarendur heföu verið á gangstéttinni. Skottlok bifreiðarinnar skall í húshorninu og var þaö mildi aö afturgluggi lenti ekki á hominu. Bifreiöin skemmdist töluvert. Garðurinn aö Laugarásvegi 50 skemmdist mikiö, trjágróöur er illa farinn og eins og hálfs metra limgerði fallið á fimm metra kafla. -ás. Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Lýðræðissigur í Nígeríu Framkvæmd kosninganna i Nígeríu hlýtur aö vera þeim mönn- um gleðiefni sem trúa því aö lýðræði geti fest rætur í Afriku. Einhverjar fregnir hafa borist um kosningasvik en það er ekki óeðlilegt i landi eins og Nígeríu. Miklu meira máli skiptir að kosningarnar fóru fram og menn, sem andsnúnir eru forsetanum, fengu að bjóða sig fram og berjast gegn honum. Á sama tima berast fregnir frá Chad þar sem uppreisnarmenn undir forustu fyrrverandi forseta, en studdir af einræðisherranum í Líbýu, reyna að taka landið herskildi. Bandarikjamenn, Frakkar og Zaire- menn hafa stutt við bakið á stjórn- inni í Chad en með óbeinum hætti þó og virðist stjórnin eiga i mesta basli með að hrinda sókn uppreisnar- manna. Fyrir helgina óskaði Bandaríkja- stjóm eftir fundi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna til þess að ræða um ihlutun Líbýumanna. Útvarpið sagði frá þessu, en þegar sagt var frá umræðum í ráðinu brá svo undar- lega við að aðeins var sagt frá því aö Líbýumenn hefðu sakað Bandarikja- menn um ihlutun og að Rússar hefðu varað heimsvaldasinna við að skipta sér af málum i Chad. Ekki eitt orð um ásakanir Bandarikjamanna, rétt eins og þær kæmu málinu ekkert við og að þeir væra aðalsökudólgarair. Svona langt geta menn seilst, þegar hatrið og fordómarair eru fyrir hendi. Virðist æ nauðsynlegra að láta fara fram ítarlega rannsókn á því hveraig fréttamenn á Ríkisútvarp- inu starfa einkanlega þeir sem vinna við erlendar fréttir. Eins og fyrr segir tókust kosning- araar í Nígeríu nokkuð vel. Þar i landi hafa orðið talsverðar framfarir en landið býr við kapítalíska stjórnarhætti og forsjársósíalismi er í Iágmarki. Það er eftirtektarvert að í þessu landi hafa framfarir orðið meiri en i mörgum öðrum rikjum Afríku og má það án efa þakka efna- hagskerfinu. Meðal annars hafa samvinnufélög vaxið þar og dafnað en þeim hafa vart verið veitt nein forréttindi held- ur gilda um þau svipaðar reglur og hér á landi eða á Norðurlöndum. Annars staðar í Afríku hafa áhuga- menn um samvinnustefnu komið samvinnu á með opinberum þrýstingi og er það helst í Tansaníu en þar er allt á leið til andskotans fyrir stórkostlega forsjárstefnu for- setans sem verið hefur einn helsti talsmaður Afrikusósialisma og horf- ir nú á þrotabú hans í riki sinu. Sam- vinnumenn frá Norðurlöndum hafa um Iangt skeið unnið að uppbyggingu samvinnurekstrar i Tansaniu en þar er ekki sömu sögu að segja og í Nigeríu. Reksturinn hefur gengið illa og skriffinnska gifurleg. Eru samvinnumenn þeirrar skoðunar eftir reynslu sína í þess- um rikjum að það sé rangt að reyna að koma samvinnurekstri á með valdboði. Best sé að hver maður ráði því sjálfur hvort og hvemig hann tekur þátt i samvinnurekstri en sé ekki beittur þrýstingi frá yfirvöld- um. Það er mat manna að forseti Nigeriu hafi þó nokkra möguleika á því að sveigja efnahagsstefnu lands- ins til þeirrar áttar að landið verði ekki eins háð einhliða útflutningi á olíu og áður. Oliugróðinn blindaði menn þar eins og víðar en sú gróða- lind er þorrin. Forsetinn mun leggja mikla áherslu á landbúnað en um langan aldur fluttu Nigeríumenn matvæli út þótt hin síðari ár hafi orð- ið að flytja verulegt magn af land- búnaðarafurðum inn. Ein af ástæð- um þess að menn trúa því að for- setanum takist þetta er að efnahags- kerfi landsins er kapitaliskt og þess vegna þjálla og skilvirkara. Um það þegir hins vegar frétta- stofa útvarpsins enda passar það ekki í kramið hjá þeim sem þar bera starfslega ábyrgð. Svarthöföi.'

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.