Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1983, Síða 6
6 DV. ÞRIÐJUDAGUR16. ÁGUST1983.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Senn líður að rifsberjatímanum: _
BERIN HENTA VEL MEBIS,
SEM ÁBÆHR EBA MED KJÖTl
Rifsber hafa yfirleitt verið tind af trjám á fsiandi en nú er einnig hægt að
kaupa þau í búð. Þessi eru frá Hollandi og kostar 500 g askja yfirleitt 60—70
kr.,enverðgetur veriðmismunandimilliverslana. DV-mynd: Bj.Bj.
Það lítur illa út meö rifsberjarunn-
ana í görðum á Reykjavíkursvæðinu
og víöar og sennilega verður mun
minna sultað af rifsberjum í ár en
venja er. Rifsber hafa hins vegar
sést í verslunum aö undanfömu og
eru þau flutt inn frá Hollandi.
Aö sögn Halidórs Hestnes, hjá
fyrirtækinu Bananar hf., sem flytur
berin inn, mun þetta vera í fyrsta
sinn sem rifsber eru flutt til Islands.
Mun áframhaldandi innflutningur
ráöast af sölu næstu vikumar.
V enj ulega hef ur mátt byr ja að tína
rifsber af runnum í lok ágúst og
aðalvertíöin hefur svo staöið í fyrri
hluta septembermánaðar. Vonandi
batnar veörið þannig að hægt verði
að tína nokkur ber og í þeirri trú að
svo verði birtum viö nú nokkrar
hugmyndir um notkun rifsberja. Eru
þær sóttar í matreiðslubanka
Sigrúnar Davíðsdóttur.
Tiivalið er að tína berin af
stilkunum og nota þau þannig í
ávaxtasalöt, t.d. með eplum, bönun-
um og perum. Þau sóma sér einnig
vel ofan á r jómtertur og innan í þær.
Rifsberjasulta
Flestir kannast viö rifsberjasultu
og hlaup. En í stað þess að sulta
berin er hægt að hræra sykri saman
viö þau, láta þau standa nokkrar
klukkustundir, eða yfir nótt, og sjúga
í sig sykurinn. Þá höfum við sultu sem
er frísklegri á bragðið en soðin sulta
og ekkert af C-vítamíninu hverfur.
Þessi sulta er góð á pönnukökur,
klatta og vöfflur en einnig með kjöti.
Sykurmagnið fer eftir smekk hvers
og eins. Það er einnig gott að láta
nokkra negulnagla í svona sultu,
einnig annaö krydd, t.d. engifer,
kanil, allrahanda og vanillusykur.
Norðmenn hafa þann háttinn
gjaman á við ber að blanda þeim í
þykkt pönnukökudeig, eða öllu
heldur klattadeig, og baka þannig
ber í pönnukökurnar sem þeir strá
síðan sykri á, stafla upp og skera í
gegnum staflann eins og köku.
Þeyttur rjómi sómir sér vel með.
Rifsber með ís
Rifsber með ís er góð samsetning.
Bæði er hægt að setja rifsber í ísinn
þegar hann er búinn tii eöa bera.
berin fram sykmð með ísnum. Þaö
er e.t.v. óvenjulegra, og jafnvel enn
betra, að hita berin og bera þau fram
heit meö ísnum. Þá em berin sett í
pott ásamt svolitlu af sykri eftir
smekk og síðan hituð undir loki viö
vægan hita þar til þau em orðin heit í
gegn en ekki farin að springa mikiö.
Ef við viljum hafa meiri vökva þá er
hægt að sjóða berin í svolitlu af
appelsínusafa, eða e.t.v. með smá-
vínskvettu í.
Pæbotnar
Rifsber henta vel í pæbotna
Þá er pæbotn útbúinn og bakaöur
tómur svo hann taki á sig lit. Síðan
eru berin sett í botninn ásamt sykri
og bakaö þar til allt er vel heitt í
gegn. Þetta er einfaldasta útgáfan og
með þessu er gjaman borinn fram
þeyttur rjómi. Vel fer einnig á að
nota t.d. epli og/eða pemr í pæ meö
berjunum. Einnig er hægt að stíf-
þeyta 2—3 eggjahvítur, bæta þurrum
berjunum þar í ásamt Sykri og baka
blönduna þar til berjablandan hefur
fengiðásig lit.
Það er einkar vel til fundið að setja
rifsber í kökur, t.d. í jólakökudeig í
stað rúsína. Jólakakan er síöan
bökuð rétt eins og venjulega. Rifs-
berjajólakaka er góð volg en hún
geymist einnig.
Skyrkrem
Rifsber í mjólkurmat þekkja
margir, ekki síst í skyri. Skyrkrem
er búið til úr 50—100 g af skyri, pela
af þeyttum rjóma og hunangi eða
sykri, og er það gott með rifsberjum.
Einnig er hægt að blanda berjunum
beint í skyrkremið. Þá er kremiö
látiö standa í kæli í nokkrar klukku-
stundir því þá stífnar þaö. Þetta er
þó ekki nauösynlegt. Svona krem er
einnig hægt að setja í bakaöa, kælda
pæskel eða í pönnukökur.
Ný rifsber er hægt að frysta og
geyma þar til þeirra er þörf
Þá er best aö þvo berin þegar þau
hafa veriö tínd af stilkunum og láta
þau þorna. Berin eru þá sett í plast-
poka og svo í frysti. Oþarfi er að
frysta þau með sykri þótt svo sumir
kjósi það. Gott er að hrista berin
nokkru eftir að þau hafa verið fryst.
Þá losnar um þau og auðveldara er
að taka þau úr pokanum síðar.
Mauk
Auk þess að boröa berin heil, eins
og þau koma fyrir, er hægt að setja
þau í kvörn og hakka þau. Þá er rétt
aö bæta sykri í. Slíkt mauk má síðan
nota í hvers kyns krem, eitt sér á
kökur, t.d. rjómatertur eöa pönnu-
kökur, kalt eöa heitt með ís og borða
þannig eins og ávaxtaís. Þá þarf að
hræra í því, meðan það frýs, nokkr-
um sinnum, svo það verði ekki að ís-
klumpi. I svona rifsberjaísfroðu er
vel til fundið að nota appelsínusafa.
Síðast en ekki síst er tilvalið að
nota rifsber í sósu með kjöti. Ef
kjötið er steikt á pönnu er hægt að
bæta nokkrum rifsberjum á pönnuna
undirlokin.
Loks eru rifsber góð í salat úr
venjulegu blaðsalati, kínakáli eða
jöklasalati. -sa
PRÚTTAÐ
Á íslenskum
skreiðarmarkaði
Ég hef alltaf haldið að það sem vísustu
menn kalla skreið sé ekkert annað en
óbarinn eða óbitaöur harðfiskur. Sem
sagt hertur fiskur beint af trönunum. En
í þessu kann mér að skjátlast.
Þetta skiptir mig þó ekki öllu og ég lifi
sæll í minni trú. Ég versla á harðfisk- og
bitafiskmarkaðnum og skreiðin er mér
ekki annað en útflutningsafurö, sem að
vísu hefur oft glatt þjóðarhag.
Á síðustu misserum hefur skreiðin þó
mest orðið aö illseljanlegum bunkum i
birgðaskemmum. Og við eigum víst heil
ósköp af skreið sem enginn veit hvort
veröa að peningum áður en skreiðin
verðuraðþúst.
I mínum huga er það eitt af undrum
veraldar hvernig þessi torselda skreiö
getur breyst með ótrúlega einföldum
tilfæringum í lúxusvöru hér á sjálfu
skerinu. Gersamlega skýringalaust.
Ég hef alltaf metið haröfisk sem
góðmeti samkvæmt kúnstarinnar
reglum. Og rann á bitafiskinn um leið og
hann bauöst. En nú er þetta orðinn afar
misjafn matur upp úr plastpokum.
Merkingar framleiðenda eru ótrúlega
fátæklegar og oft jafnvel hreinlega
blekkjandi. Vörulýsingar engar, svo
mark sé á takandi. Og verðið hefur fariö
hástökk í algerri mótsögn við markaös-
stöðuna.
Á föstudaginn var keypti ég af rælni
pínupoka af bitafiski hjá KB í Borgar-
nesi, á 39,75 krónur. Framleiðanda,,
Sjávarfisks sf. í Hafnarfirði, var'
skilmerkilega getið. Einskis annars.
Innihaldið reyndist rétt rúm 50
grömm, ekki fullþurr og meyr fiskur
(hvaða fiskur?), en án roðs. Kílóverðið
er 795 krónur. Ég fékk hiksta.
Herbert Guðmundsson.
Brauö-
MIKILL VERÐMUNUR
Á SELFOSSI
Gífurlegur munur virðist vera á
verði brauða í bakaríunum þrem á Sel-
fossi. Þetta kemur í ljós í verðkönnun
sem gerð var í júlilok þar í bæ. Að
verðkönnuninni stóð blaðið Dagskrá og
er hún birt í síðasta tölublaöi þess.
I ljós kemur að mestur er munurinn
á hamborgarabrauðum. Þau kosta 7,50
í Brauðgerð KÁ en aðeins 5,20 í Guðna-
bakaríi. Munurinn er 44%. Nærri eins
mikill munur er á butterdeigsbotnum.
Þá er það hins vegar bakarí Guðna
sem er með hæsta verðið, 65,80. Lægsta
verðið er hins vegar í Hverabakaríi,
46,50. Munurinn er42%.
En til þess að gera hagstæð innkaup í
brauðum virðast Selfyssingar þurfa að
fara á milli bakaría. Eitt er ódýrast í
einu af bakaríunum og annaö dýrast
þar. Þegar þaö sem fæst í þeim öllum
þrem er reiknað saman kemur í ljós að
sáralítill verðmunur er fyrir hendi.
Mesta úrvalið virðist vera í Hvera-
bakaríi en svipað í hinum tveim. Þar,
eru það aðaUega sætu kökumar sem
vantar, þær fást í Hverabakaríinu
undirýmsumnöfnum. DS
Verðköimun á brauðvörum
Gerð 26. júli 1983.
1 1 Guðna- Hvera-
K. Á. bakarí bakarí
Franskbrauð 14,15 14,15 14,15
Formbrauð 15.25 15,25 15,25
Kornbrauð 17/10 19,60 16,75
Rúgbrauð 15,85 15,85 16,20
Normalbrauð 12,35 12,85
Samlokubrauð 35,00 30,00 34,70
Heilhveitibrauð 14,00 14,00
Vínarbrauð bitar 8,70 8,40 8,50
Vínarbrauð lengjur ... 34,00 37,60 40,10
Vínarbrauð hringir ... 37,60 40,10
Vínarbrauð sérbökuð . 10,00 10,00 9,40
Kanellengjur 39,00 37,60 40,10
Snúðar 9,20 11,20 11,15
Rúnstykki 5,70 5,15 5,40
Kúmenhorn 7,50 7,00 5,70
Kúmcnkringlur 5,15 5,70
Tvíbökur 250 gr 40,00 31,00 29,90
Brauðbotnar 37,00 30,00
Butterdeigsbotnar .... 52,00 65,80 46,50
Butterdeigsvínarbrauð 12,00 10,50
Pylsubrauð 3,70 4,00
Hamborgarabrauð .... 7,50 5,20 5,60
Jólakökur 54,00 48,50 50,00
Brúnkökur 57,50 51,40 53,70
Vínartertur 52,00 50,00 51,00
Brúntertur 53,00 51,40 51,65
Rúllutertur 55,00 51,40 59,00
Draumatertur 62,70 59,00
Massarinkökur 64,00 69,00 59,00
Möndlukökur 48,50 50,00
Eplakökur 51,40 53,70
Hunangskökur 65,00 51,40 53.70
Marmarakökur 65,00 54,00 53,70
Ávaxtakökur * 86,00 59,00
Sítrónkökur 50,00 48,50 50,00
Hjónabandssæla .... 60,00 50,00
Kókoskökur 50,00
Roxykökur 62,00
Sandkökur 70,00 54,00 50,00
Glassúrkökur 50,00
Sveskjutertur , 53,70
Svampbotnar 79,00 68,60
Plúmkökur 59,00
Smjörkremkökur .... 53,70
Tebollur 10.00 12,00 10,20
Skurður 6,00 6,00