Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1983, Qupperneq 15
DV. ÞRIÐJUDAGUR16. AGUST1983.
15
Menning
Menning
Menning
Veslunarhús á Skaganum um aldamót.
mikils viröi. Myndimar em hvort
tveggja í senn vel valdar og vel
prentaðar. En fyrst og fremst vel
komið fyrir á síðum bókarinnar og er
það mikils virði. Það er oft vanda-
samt verk að raöa myndum á síður
bóka og veit það best sá sem í slíku
hefur staöið. Hér í þessari bók tekst
þetta sérstaklega vel og er til fyrir-
myndar. Efnisyfirlit eða nafnaskrá
aftast í bókinni er mjög þýðingar-
mikið fyrir þá sem nota vilja bókina í
einhverjum tilgangi, t.d. að leita að
mynd af ákveðnum manni. Þá er
vandinn ekki annar en að leita í
nafnaskránni.
Afrek Sögufélags
Borgfirðinga
Sögufélag Borgfirðinga hefur sýnt
mikinn dugnaö með framtaki sínu
með útgáfu rita um borgfirzk fræði,
ekki sízt Borgfirzkra æviskráa og
Æviskráa Akurnesinga. Bækurnar
eru prentaðar á mjög góöan pappir
og vel til þeirra vandað á allan hátt.
Mann- og ættfræði er gömul fræði-
grein í borgfirzkum sveitum, allt frá
fyrstu sögu. Ættir er hægt að rekja til
landsnámsmanna, Skallagríms
Kveldúlfssonar, og frá mörgum
merkum mönnum á seinni öidum eru
líka alþekktar rakningar, merkileg-
aroghaldgóðar.
Þessi fræði standa nú föstum
rótum í borgfirzkri fræðimennsku og
er það vel. Borgfirðingar hafa lengi
verið framarlega í menningar-
málum. Þar fékk fornmenntastefna
fyrst skjól á Islandi og var þar iðkuð
lengi áður en hún var almennt viður-
kenndílandinu.
I Borgarfirði var fremsti ritsnill-
ingur miðalda, Snorri Sturluson, og
úr fræðajarðvegi hans óx mikill
meiöur fræða og þekkingar í borg-
firzkum sveitum. Ættrakning Snorra
til Ynglinga og Skjöldunga að dæmi
fornra manna er minnisverð og
aðdáunarverð. Borgfiröingar á
liðandi stund virða þessi fræði í verki
með söfnun og prentun æviskráa
Borgfirðinga án manngreinarálits,
þar er getið jafnt alþýöumanna sem
embættismanna og höfðingja. Þetta
er tii fyrirmyndar fyrir önnur héruð.
Eg vil óska Akumesingum til ham-
ingju með þetta merka og mikla verk
og vona að það seljist vel svo það
komi út allt sem allra fyrst.
á uppgjörinu stendur, vill ekki þetta
.barn, lingerður en djúpt hugsandi
maður. Líf konunnar hefur þá fengið
á sig sama sniö og svo margra
kvenna sem nú um stundir hafna
móðurhlutverki af sama tilefni og
hún, lifir við sekt og frelsi til athafna
og a.m.k. snert af samviskubiti sem
krefst uppg jörs eöa hirtingar.
Eg held að þegar á líður sé vistin í
móðurkviði heldur daufleg, a.m.k.
reynir barnið mikið til að stækka við
sig, komast út. Og það er tvímæla-
laust betra að eiga eitthvað undir
mörgum en allt undir einum eins og
sjá má af þessari bók. Við réttar-
höld, sem látin eru gerast í draumi
konunnar, er deilt um sekt konunnar
eða sakleysi. Faðirinn lýsir aöstöðu
hennar: „... grimmd náttúrunnar...
á sér nokkurn rétt og jafnvel
visdóm: ef allir tilvistarmöguleikar
yrðu að veruleika þá færumst við úr
þrengslum.” Konan hefur hlotið að
bera fyrir sig þessa réttlætingu sjálf
en í þeim tilgangi að geta lagt lið
fólki yfirleitt við að öðlast trú á iifið.
Hamingja hennar og annarrar líf-
veru gátu ekki varað samtímis, sá
sterkari hélt velli.
„Þú gerir innrás í mig miskunnar-
laust,” segir bréfritari við þessa líf-
veru. „Þú tilheyrir engum öðrum en
sjálfum þér.” „Enginn er mennskur
af náttúrufari, áður en hann fæðist.
Við verðum mennsk eftir á, eftir að
við fæðumst, leiðir af samvistum við
aðra, af stuðningi sem aðrir veita
okkur, af að móðir eða kona eða karl
eða einhver kennir okkur að borða,
ganga, tala, hugsa, haga okkur eins
og manneskjur.” „Móðirin er ekki sú
sem gengur með þig heldur sú sem
elur þig upp.” Sammála.
Vissulega getur hugarástand
móöur haft áhrif á þroska fósturs en
hvort það geti beinlínis orðið orsök
að dauða þess veit enginn, bókin
lætur spurningunni ósvarað enda
skáldsaga. Fjallar um lifsþorsta,
eigingirni, sjálfstignun með allra
mannlegasta móti. I nafni sjálfsá-
kvörðunarréttar okkar drepum við.
Drepum.
Eða gefum líf.
Þ.A.
Oriana Fallaci.
hræðsla og örvænting hafi valdið að
svo fór. „Eg verð að halda áfram á
framabraut minni og sanna að ég sé
karlmannsígildi,” talar hún í lokin til
fóstursins. Orð sem kannski
takmarkast um merkingu við aö
faöirinn, sem kemur við sögu þótt
hann sé f jarverandi að mestu meðan
Rafsuóuvélar og vír
Haukur og Ólafur
Ármúla 32 - Sími 37700.
Firmakeppm ÍR
verður haldin dagana 20.—21. ágúst. Þátttökutílkynningar
þurfa að hafa borist í síma 76973—71702—71118 fyrir kl. 20.00,
fimmtudaginn 18. ágúst.
Verðlaun fyrir 3 fyrstu sætin.
Langar þig til
að lœra að fljúga?
Veistu hvad flugnám kostar, t.d. sólópróf, 15—20
tímar? Kynntu þér málid hjá starfsmönnum okkar.
Allir geta lœrt að fljúga.
Kennsluflug Leiguflug Útsynisflug
FLUGSKÓLINN H.F.
REYKJAVÍKURFLUGVELLI (Skerjafjarðarmegin) - Simi: 28970
KJÖTMJOSTÖÐIN Laugalæk 2. s. 86SII
GÓÐ
Lambahakk, aðeins
78 kr. kg.
IMautahamborgarar,
stórjr, 17 kr. stk.
Nautahakk,
10 kg, 138 kr. kg.
Svínahakk,
158 kr. kg.
Folaldahakk,
68 kr. kg.
Kindahakk,
aðeins 69 kr. kg.
Karbonade lamba,
aðeins 10 kr. stk.
Saltkjötshakk,
aðeins78kr. kg.