Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1983, Page 19
DV. ÞRIÐJUDAGUR16. AGUST1983.
19
fttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
3JIURSLITALEIKUR
ÍBV Á FJÓRUM ÁRUM
— Vest mannaeyingar sigruðu FH 4:1 í gær og leika t il
úrslita við Akurnesinga í bikarkeppninni 28. ágúst
Frá Friöbirni Ö. Valtýssyni, frétta-
manni DV í Vestmannaeyjum.
Vestmannaeyingar unnu sanngjam-
an sigur á FH 4—1 á Helgafellsgras-
vellinum í gær í síðari leik liðanna í
undanúrslitum bikarkeppni KSÍ. Það
verða því Eyjamenn sem leika til úr-
slita við bikarmeistara Akumesinga
frá í fyrra á LaugardalsveUinum
sunnudaginn 28. ágúst. Það ætti aö
geta orðið skemmtilegur úrslitaleikur.
Þriðji úrslitaleikur Vestmannaeyinga
síðustu f jögur árin en þeir hafa aldrei
leikið til úrslita fyrr við Akurnesinga.
Það var norðan bál þegar leikur tBV
og FH var háöur í Eyjum í gær. Liöin
höfðu áður leikið í undanúrslitum í
Hafnarfirði. JafntefU þar 2—2 eftir
framlengingu og því þurftu þau að
reyna með sér á ný. Vindurinn stóð
skáhallt á vöUinn og léku FH-ingar
frekar undan honum í fyrri hálf-
leiknum. Það voru þó Eyjamenn sem
byrjuðu með krafti, en erfitt var að
hemja knöttinn vegna roksins. A 12.
mín. náði Omar Jóhannsson forustu
fyrir IBV, fékk góða sendingu frá
Hlyni Stefánssyni inn fyrir vörnina og,
renndi knettinum framhjá Halldóri
markverði HaUdórssyni, sem reyndi
að koma í veg fyrir mark með út-
hlaupi.
FH tókst að jafna á 36. mín. Náði
sókn og Pálmi Jónsson fékk knöttinn
óvænt inn fyrir vöm Eyjamanna. Var í
góðu færi en í stað þess að skjóta lagði
hann knöttinn fyrir Olaf Danivalsson.
OU skaut föstu skoti beint á Aðalstein
Jóhannsson, markvörð IBV, sem ekki
virtist í erfiðleikum með að verja.
Missti svo knöttinn klaufalega inn fyrir
marklínuna. Það fór um áhorfendur.
ikoraði
rílok-
annKA
K efstu liða 2. deildar
Það var nokkuö lagt í jöfnunarmarkið
og sókn Fram varð stööugt þyngri.
Hinrik Þórhallsson fór þó iUa aö ráði
sínu við Fram-markiö snemma í hálf-
leiknum. Guömundur Torfason komst
frír aö marki KA en Þorvaldi Jónssyni
tókst að verja. Það var aöeins skamm-
góður vermir. A næstu mín. skallaöi
HaUdór Arason, frá vítateigslínunni,
knöttinn í autt mark KA eftir slæmt út-
hlaup Þorvalds. 2—2.
KA-menn geystust í sókn-og ætluðu
heldur betur að ná fomstu á ný. Og
litlu munaöi. Mínútu eftir jöfnunar-
mark Fram átti Gunnar Gíslason
hörkuskaUa í þverslá marks Fram —
knötturinn rann fram með marklín-
unni en KA-mönnum tókst ekki að
binda enda á sóknarlotuna. Fram náði
að hreinsa og knötturinn barst aUa leið
inn í vítateig KA til Kristins Jónssonar.
Hann lék skemmtilega á varnarmann
og skoraði með föstu jarðarskoti í blá-
horniö. Þremur mín. fyrir leikslok
skoraði Halldór fjórða mark Fram.
SkaUaði knöttinn efst í markið, alveg
undir þverslá eftir langt innkast.
Þetta var fyrri leikur Fram og KA í
2. deUd en liðin standa langbest að vígi
þar og ættu að vinna sæti í 1. deild á ný.
Féllu saman niöur úr 1. deild í fyrra-
haust. Þrátt fyrir rokið brá oft fyrir
góðum leikköflum í leik liðanna í gær.
Marteinn Geirsson lék með Fram á ný.
-hsím.
Var sagan úr Firðinum aö endurtaka
sig? Mikið áfaU og jafnt í hálfleik 1—1.
Eyjamenn sóttu stíft í síðari hálf-
leiknum en tókst iUa aö skapa sér tæki-
færi. Það var farið að fara um
áhorfendur. Hvorki gekk né rak þrátt
fyrir þunga sókn. Á 72. min. átti Sveinn
Sveinsson hörkuskot af löngu færi í
þverslá marks FH. Mark lá í loftinu og
faUegt var það þegar það kom.
Það var á 77. min. Viðar Elíasson
bakvörður spyrnti á mark FH af löngu
færi og knötturinn lenti efst í bláhom-
inu, algjörlega óverjandi. Glæsi-
mark. 2—1 fyrir Eyjamenn og þá
opnuöust flóðgáttir í vöm FH, þegar
Hafnfirðingar reyndu tU að jafna.
Omar og Hlynur skoruðu tvö mörk
fyrir Eyjamenn undir lokin og sann-
gjarn sigur var í höfn.
Valþór Sigþórsson, miðvörður Vest-
mannaeyinga, var yfirburðamaður í
leiknum. Harður af sér og sterkur. Þá
átti Viðar einn sinn besta leik í sumar'.
Hjá FH vom bræöurnir HaUdór og
Viöar Halldórssynir bestir og Sævar
Sigurðsson var röggsamur dómari.
FOV/hsím.
Ríkharður Jónsson skoraði fjögur
mörk í sigurleiknum við Svía á Mela-
veUinum 1951,4—3.
Landsleikir við Svía
hafa verið tvísýnir
Sjötti landsleikur íslands og Svíþjóðar á Laugardalsvelli
Landsleikur íslands og Svíþjóðar
n.k. miðvikudag er 6. landsleikur þjóð-
anna. Tveir leikjanna hafa farið fram
hér á landi, en þrír í Svíþjóð. Svíar
hafa haft betur tU þessa því þeir hafa
unnið 3 leiki, tapað einum og einum
lauk með jafntefli. Markatalan er 9—7,
Svíþjóðíhag.
Fyrsti landsleikur Islands og Svíþjóð-
ar fór fram á gamla MelavelUnum 29.
júní 1951 og lauk honum með sigri Is-
lands 4—3 en þann sama dag unnu
frjálsíþróttamenn okkar sigur á Dön-
um og Norðmönnum í landskeppni í
frjálsum íþróttum á Bislet í Oslo. 29.
júní 1951 er því einn mesti sigurdagur í
íþróttasögu okkar. En nánar um fyrsta
landsleikinn gegn Svíum sem þótti
mjög skemmtilegur og vel leikinn. Sér-
staklega átti Ríkharður Jónsson góöan
leik, hann skoraöi ÖU mörk Islands. Liö
Islands var þannig skipaö í þessum
leik:
Bergur Bergsson KR (1)
KarlGuðmundsson,Framfyrirliði (5)
Haukur Bjarnason, Fram (1)
Hafsteinn Guðmundsson Val (3)
Einar Halldórsson, Val (2)
Sæmundur Gíslason, Fram (5)
Olaf ur Hannesson, KR (?3)
Ríkharður Jónsson, IA (4)
Þórður Þórðarson, lA (1)
Bjami Guðnason, Víking (1)
Gunnar Guömannsson, KR (1)
Varamenn komu ekki við sögu í
þessum leik, enda fátítt á þessum ár-
um að nota varamenn, nema vegna
meiðsla, en á varamannabekknum
sátu: Helgi Daníelsson, Val, Guðbjöm
Jónsson, KR, Guðjón Finnbogason, IA,
Halldór HaUdórsson, Val, Hörður
Oskarsson, KR og Gunnlaugur Lárus-
son, Víkingi. Þjálfari var ÖU B.
Jónsson og leikinn dæmdi Guöjón
Einarsson sem var okkar eini milU-
rík jadómari á þessum árum.
Ekki eru tök á að rekja gang leiks-
ins en staðan í hálfieik var 2—0 fyrir Is-
landog skoraði Ríkarður á 32. og 38.
Frír aðgangur
12 áraogyngri
- á landsleikinn við Svfa
Börn, 12 ára og yngri, fá ókeypis
aðgang á landsleikinn gegn Svíum
annað kvöld. Knattspyrnusamband
tslands hefur fengið leyfi ÍBR til slíks
og er vonast til að börn fjölmenni á
leikinn til að hvetja landann.
Dómari leiksins verður
Englendingurmn Richardson og
línuverðir þeir Sævar Sigurðsson og
Öli Ölsen. -AA
a morgun
mín. I síðari hálfleik hresstust Svíar
og skoruðu þrjú mörk en Ríkharður
s\-araði með tveim mörkum á 48. og
82. mín. og tryggði þar með sigur
Islands.
IMaumt í Kalmar
Næst léku þjóðirnar í Kalmar í Sví-
þjóð 24. ágúst 1954 og var aftur um
jafnan og skemmtilega leik að ræða.
Svíar sigruðu með 3—2 en mörk Is-
lands skoruðu þeir Skagamennirnir
Ríkharöur Jónsson og Þórður Þórðar-
son.
Þaö er ekki fyrr en 11. júlí 1973 sem 3.
leikur þjóðanna fer fram og nú er leik-
ið á Uddevalla leikvanginum í Svíþjóð.
Aftur var um jafnan og skemmtilegan
leik að ræða. Að þessu sinni voru í
íslenska liðinu kappar eins og Guöni
Kjartansson, IBK, sem var fyrirliði,
Þorsteinn Olafsson stóð í markinu. Þá
voru í liðinu Marteinn Geirsson, Einar
Gunnarsson, IBK, Gísh Torfason, IBK,
Guðgeir Leifsson, Fram, Matthías
Hallgrímsson, ÍA, að ógleymdum
Ásgeiri Sigurvinssyni sem þá var korn-
ungur, svo einhverjir leikmenn séu
nefndir. Svíar unnu nauman sigur 1—0
í jöfnum leik.
Fjórði leikur þjóðanna fór fram á
Laugardalsvelli 20. júlí 1977 aö við-
stöddum tæplega 9 þúsund áhorfend-
um. Islenska liðið undir stjóm Tony
Knapp sýndi góöan leik, en tapaði 0—1.
Jafntefli í Halmstad
Síðasti Ieikur þjóðanna fór svo fram
í Halmstad í Svíþjóð 17. júlí 1980. Þá
var íslenska liðið undir stjóm Guðna
Kjartanssonar. I Uði Islands í þessum
leik vom m.a. Þorsteinn Olafsson í
markinu, öm Oskarsson, Marteinn
Geirsson, Janus Guðlaugsson, Ásgeir
Sigurvinsson. Þessi leikur var mjög
skemmtilegur og jafnræði með Uðun-
um. I fyrri hálfleik var ekkert skoraö
en á 82. mín. skoraði Rutger Backe
fyrir Svíþjóð en Guðmundur Þor-
björnsson, Val, jafnaöi á 87. mín.
UrsUt: 1—1.
Leikir Islands og Svíþjóðar hafa
jafnan verið mjög jafnir og spennandi
og viö vonum að leikur þjóðanna n.k.
miðvikudag veröi þar engin undan-
teknmg. Enginn atvinnuknattspyrnu-
maður er í liði Islands í þeim leik
heldur er lið okkar skipaö reyndum
leikmönnum ásamt ungum og efnileg-
um leikmönnum sem á komandi árum
eiga eftir að vekja á sér athygli.
Það sáust oft snUldartaktar í leikjum yngri flokkanna í knattspyrnunni í úrslita-
keppninni í 4. og 5. flokki, sem hófst á fimmtudag og lauk á sunnudag. Hér er stór-
skemmtUeg mynd úr leik Kópavogsfélaganna Breiðabliks og iK í 5. flokki. ÍK
sigraði 1—0. DV-mynd EJ.
Feyenoord
vann United
HoUenska liðið Feyenoord sigraði
Man. Utd. 2—1 á 4-liða mótinu í Rotter-
dam um helgina. Þá sigraði ítalska
meistaraliðið Roma hollenska liðið
Ajax3—1.
Ben Wijnstekers náði forustu fyrir
Feyenoord á 6. mín. Frank Stapleton
jafnaði í lok fyrri hálfleiks en Andrej
JeUazkov skoraði sigurmarkið á 76.
mín. eftir frábæra aukaspyrnu Johan
Bruijff. Þeir Cerezo, nýi leikmaðurinn
frá Brasilíu, Angelotti og Graziani
skoruðu fyrir Roma áður en Jan Mölby
skoraði eina mark Ajax.
-hsím.
Knapp hress
að vanda...
— jafntefli Fredrikstad
og Ipswich
Fredrikstad, liðið sem Tony Knapp
þjálfar í Noregi, lék nýlega við enska 1.
deildarliðið Ipswich í Fredrikstad.
jafntefli varð 1—1. Vidar Hansen náði
forustu fyrir norska liðiö en enski
landsliðsmaöurinn Russel Osman jafn-
aði fyrir Ipswich.
Tony Knapp, fyrrum landsliðsþjálf-
ari Islands, hefur verið mjög í fréttum
í norskum blöðum eftir að fram kom að
hann hættir hjá Fredrikstad í haust.
Tony, hress að vanda, segir að hann
hafi úr nógu að velja. Vidar, sem
leikur i 2. deild, hefur rætt við kappann
og hann hefur látið þau orð falla að þó
hann vilji helst starfa áfram i Noregi
komi vel tU greina að hann taki við is-
lenska landsliðinu á ný. Framundan
hjá þvi sé riðlakeppni fyrir heims-
meistarakeppnina 1986 og íslendingar
hafi áhuga á að standa sig þar vel.
-hsím.
Staðaní
2. deild
Staðan i 2. deild eftir sigur Fram á
KA í gærkvöld:
KA 14 8 4 2 24-14 20
Fram 13 7 4 2 22-14 18
Njarðvík 14 7 2 5 17-12 16
FH 13 5 5 3 22-16 15
Víðir 14 5 5 4 11-10 15
Völsungur 14 6 2 6 15-14 14
Einherji 14 4 6 4 11-13 14
KS 14 2 7 5 12-16 11
Fylkir 14 2 4 8 12-21 8
Reynir 14 1 5 8 8-24 7
Markahæstu leikmenn:
Gunnar Gislason, KA, 8
Hinrik Þórhallsson, KA, 8
Pálmi Jónsson, FH, 8
-hsím.
SigurProstað
komast í höf n
Alian Prost, Frakklandi, er nú að
verða öruggur með sigur í grand prix
kappakstrinum. Hann sigraði á
sunnudag í Zeltweg í Austurríki og
hefur nú hlotið 51 stig samanlagt.
Nelson Piquet, Brasilíu, er annar með
37 stig og Rene Amoux, Frakklandi,
þriðji með 34 stig. Þeir urðu í öðru og
þriðja sæti í Zeltweg. Arnoux annar.
-hsim.
Bautamótið
— í kvennaknattspyrnu
Hið árlega Bautamót i kvennaknatt-
spyrau verður háö dagana 9., 10. og 11.
september. Þátttökutilkynningar ósk-
ast sendar skrifstofu KSÍ fyrir 1.
september.
Vinsældir þessa móts hafa aukist
! með hverju ári og var þátttaka í fyrra
með mesta móti.
Verðlaun til mótsins gefur Bautinn,
' Hafnarstræti 92 Akureyri. En þar að
| auki hefur Bautinn staðið fyrir frium
j veitingum fyrir alla þátttakendur og
aðstandendur liða í lok mótsins, segir í
fréttatilkynningu frá KSÍ. ^
7,-." ’C!*