Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1983, Side 1

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1983, Side 1
Birgir ísleifur stefnir í formannssætið íSjálfstæðisflokknum: Jafnræöi með Þriöja formannsefnið í Sjálfstæðis- flokknum, Birgir Isleifur Gimnars- son, er komiö á fulla ferð eins og hin tvö, Friðrik Sophusson og Þorsteinn Pálsson, sem sagt var frá hér í blað- inu í síðustu viku. Hefur Birgir raun- ar náð um sig fjölmennri sveit stuðn- ingsmanna eins og hinir voru búnir að gera. Fylgismenn Birgis segjast vera orönir þrey ttir á ófriði í flokknum og telja k jör Birgis vera bestu leiðina til sátta. Stuöningsmenn hinna tveggja segjast ekki vera neinir ófriðarmenn heldur. Og ekki hefur hiaupið neitt illt í kosningabaráttuna enn sem komiö er. Geir Hallgrímsson hefur ekki enn tjáð sig um hvort hann verði aftur í framboði til formennsku. En kosn- ingabarátta þremenninganna er höfð til marks um aö í innsta kjarna Sjálf- stæðisflokksins sé fastlega gert ráð fyrir að Geir verði ekki i framboði. Landsfundur flokksins verður haldinn dagana 3.—ð.nóvember. Má búast við vaxandi þunga i kosninga- baráttunni á næstu vikum. Um þess- ar mundir er engin leið að spá um úrslitin og fróðir menn segja að jafn- ræði sé í glímu þremenninganna. -om — sjábls.3 Valsmenn sloppnir — sjá blaðauka um Iþróttir helgarinnar v; v- , :.v: Vatnsflóð á Krínglumýrar- braut Ekið var á vatnstökustút fyrir vatnsbíla Reykjavík- urborgar á mótum Sig- túns og Kringlumýrar- brautar í nótt. Stóð vatns- bunan langt inn á götuna og myndaðist mikið flóð á henni og í næsta nág- renni. Starfsmenn Vatns- veitunnar voru kallaðir út og lokuðu fyrir vatns- flauminn sem bílarnir urðu að ösla í gegnum eins og sjá má á þessari mynd. DV-mynd Helgi. ÍSLENSKIHUNDURINN UTFLUTNINGSVARA „Mest hrædd um að hann verði ofvinsæll,” segir Sigríður á Ólafsvöllum Islenski hundurinn, sá með upp- sperrtu eyrun og hringuðu rófuna, er orðinn útfiutningsvara. „Vinsældir hans eru að aukast talsvert mikið núna,” sagði Sigríður Pétursdóttir frá Olafsvöllum á Skeið- um en hún hefur unnið braut- ryðjendastarf við ræktun íslenska hundsins. „Vinsældir hans hafa verið að aukast jafnt og þétt. Eg er mest hrædd um að hann verði of vinsæil. Ef hann verður tískufyrirbrigði þá verður farið að f ramleiða hann i stað þess að rækta hann,” sagði Sigríður. I fimmtán ár, frá árinu 1968, hefur hun flutt út hunda. „Eg myndi áætla að þetta væru orðnir milli 300 og 400 hundar sem hafa farið frá okkur til útlanda,” sagði Sigríður. „Þetta er aðailega í sambandi við íslenska hestinn erlendis. Það er nú svolítið fuilkomið að vera meö íslenskan hest, vera í lopapeysu og eiga íslenskan hund. Þetta er eins konar stöðutákn.” Sigríður Pétursdóttir sagði að verðið fyrir góðan, íslenskan hund væri krónur átta þúsund heima á hlaöi. -KMU.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.