Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1983, Qupperneq 1
Birgir ísleifur stefnir í formannssætið
íSjálfstæðisflokknum:
Jafnræöi með
Þriöja formannsefnið í Sjálfstæðis-
flokknum, Birgir Isleifur Gimnars-
son, er komiö á fulla ferð eins og hin
tvö, Friðrik Sophusson og Þorsteinn
Pálsson, sem sagt var frá hér í blað-
inu í síðustu viku. Hefur Birgir raun-
ar náð um sig fjölmennri sveit stuðn-
ingsmanna eins og hinir voru búnir
að gera.
Fylgismenn Birgis segjast vera
orönir þrey ttir á ófriði í flokknum og
telja k jör Birgis vera bestu leiðina til
sátta. Stuöningsmenn hinna tveggja
segjast ekki vera neinir ófriðarmenn
heldur. Og ekki hefur hiaupið neitt
illt í kosningabaráttuna enn sem
komiö er.
Geir Hallgrímsson hefur ekki enn
tjáð sig um hvort hann verði aftur í
framboði til formennsku. En kosn-
ingabarátta þremenninganna er höfð
til marks um aö í innsta kjarna Sjálf-
stæðisflokksins sé fastlega gert ráð
fyrir að Geir verði ekki i framboði.
Landsfundur flokksins verður
haldinn dagana 3.—ð.nóvember. Má
búast við vaxandi þunga i kosninga-
baráttunni á næstu vikum. Um þess-
ar mundir er engin leið að spá um
úrslitin og fróðir menn segja að jafn-
ræði sé í glímu þremenninganna.
-om
— sjábls.3
Valsmenn sloppnir
— sjá blaðauka um Iþróttir helgarinnar
v; v- ,
:.v:
Vatnsflóð á
Krínglumýrar-
braut
Ekið var á vatnstökustút
fyrir vatnsbíla Reykjavík-
urborgar á mótum Sig-
túns og Kringlumýrar-
brautar í nótt. Stóð vatns-
bunan langt inn á götuna
og myndaðist mikið flóð
á henni og í næsta nág-
renni. Starfsmenn Vatns-
veitunnar voru kallaðir út
og lokuðu fyrir vatns-
flauminn sem bílarnir
urðu að ösla í gegnum
eins og sjá má á þessari
mynd.
DV-mynd Helgi.
ÍSLENSKIHUNDURINN
UTFLUTNINGSVARA
„Mest hrædd um að hann verði ofvinsæll,”
segir Sigríður á Ólafsvöllum
Islenski hundurinn, sá með upp-
sperrtu eyrun og hringuðu rófuna, er
orðinn útfiutningsvara.
„Vinsældir hans eru að aukast
talsvert mikið núna,” sagði Sigríður
Pétursdóttir frá Olafsvöllum á Skeið-
um en hún hefur unnið braut-
ryðjendastarf við ræktun íslenska
hundsins.
„Vinsældir hans hafa verið að
aukast jafnt og þétt. Eg er mest
hrædd um að hann verði of vinsæil.
Ef hann verður tískufyrirbrigði þá
verður farið að f ramleiða hann i stað
þess að rækta hann,” sagði Sigríður.
I fimmtán ár, frá árinu 1968, hefur
hun flutt út hunda. „Eg myndi áætla
að þetta væru orðnir milli 300 og 400
hundar sem hafa farið frá okkur til
útlanda,” sagði Sigríður.
„Þetta er aðailega í sambandi við
íslenska hestinn erlendis. Það er nú
svolítið fuilkomið að vera meö
íslenskan hest, vera í lopapeysu og
eiga íslenskan hund. Þetta er eins
konar stöðutákn.”
Sigríður Pétursdóttir sagði að
verðið fyrir góðan, íslenskan hund
væri krónur átta þúsund heima á
hlaöi.
-KMU.