Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1983, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1983, Blaðsíða 14
14 coor ct^icj\irr7T\Tt*\TA aaTTn/rtrr^r^TTf t \7rr DV. LAUGARD AGUR 5. NOVEMBER1983. Barátta Holdens við brenm- vínið 1 bókinni Golden Boy, sem kemur út á næstunni, er sagt frá langri baráttu leikarans Williams Holden viö brennivín. Hún er skrifuð af Bob nokkrum Thomas. Hér kemur örstuttur kafliúrbókinni: „Eina skiptið sem ég hitti Holdcnvar þegar hann var að taka upp The Devil’s Brigade við Claremont College í Surrey fyrir nokkrum árum. Það var búið að vara okkur blaöamenn við, eða stinga kurteislega upp á því við okkur að reyna ekki að taka viðtöl við hann. Hann skipti ákaflega ört skapi. Frá því að vera í ágætu skapi til þess að fuöra upp. Frá því að vera góöi drengurinn til þess að vera eins og naut í flagi sem olli öllum umhverfis sig miklu angri. Þetta híýtur að hafa valdið honum sjálfum mikilli hugarkvöl. En þær minningar sem hann skilur eftir sig á hvíta tjaldinu munu alltaf varðveita minninguna um hann sem góða strákinn þrátt fyrir fyllirísköstin og reiöiköstin sem áttu eftir að hrjá hann í einkah'finu. Þegar ég fylgdist með Holden og hinni stjömunni, Dana Andrews, leika undir stjóm hins góðlynda stjórnanda Andrew V. McLaglen, var ég undrandi á hve stjörnurnar voru sem festar upp á þráð er þær biðu eftir aö McLaglen kallaöi: Byrjah Holden virtist sérstaklega taugaveiklaður og fór með lín- umar sínar aftur og aftur, eins og alger byrjandi, skíthræddur L__________________________ Dana Andrews lék á móti Holden í The DeviTs Brigade. /kvikmyndinni Network lék William Holden ásamt Peter Finch, sem einnigþóttisopinn góöur, en hann er einnig látinn. um að hann myndi gleyma hvað hann ætti að segja þegar að hon- um kæmi. Blaðamannahópurinn sem boðið hafði verið hélt sig í hæfi-. legri f jarlægð frá honum til þess að hann gæti einbeitt sér að því; að leika. En seinna um daginn, eftir að frestir blaðamennimir voru famir, kom hann til mín til aðrabba. Hann var rólegur og með spennu leikdagsins að baki virtist hann afslappaður og ræð- inn. Hann spuröi mig ekki hver, ég væri. Ég sagði honum það ekki. Ef ég hefði sagt honum það hefði viðtali okkar snarlega lok- ið. Ég hafði alltaf dáðst aö Holden á hvíta tjaldinu og vissi mikið um feril hans í framhaldi af því. Það sem ég vissi ekki um 1968 var áfengissýki hans. ” Bob Thomas upplýsir einnig í bók sinni að þegar kvikmyndun, á The Devil’s Brigade stóö yfir á Italíu hafi Holden drukkið flösku af vodka á morgnana áður en hann byrjaði aö vinna. Holden týndist dag einn. Framleiðandi myndarinnar fann Rolls-Royce hans fyrir framan bar. Þar var stjarnan gjörsamlega útúrdrukkin. I annað sinn tapaði Holden þol- inmæðinni þegar fólk úr þorpinu stóð á brú og horfði á tökurþar sem Holden og fleiri stjömur óðu í gegn um straumhart, ískalt vatn. Holden beindi skyndilega hríðskotabyssu sinni að fólkinu og tvístraði mannfjöldanum sem vissi ekki að hann var með púðurskot í byssunni. Þá varð hann skyndilega reiður út í sjálf- an sig og ljóst var að atburður- inn var einstaklega vandræða- legur. Þetta vissu aðdáendur Hold- ens ekki fyrr heldur en hann dó, einmana maður, þjakaður af persónulegum átökum og áfengi. Sorglegur endir á glæsi- legum ferli.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.