Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1983, Page 1
„Þatta eiga að vera samræmdar
dag," sagði einn þriggja fulltrúa 45 islenskra eðlisfreaðinga sem gengu 6
fund forsætisráðherra í morgun og kröfðust „tafarlausar stöðvunar á
útbreiðslu og þróun kjarnavopna." „Eðlisfræðingar telja sig bera nokkra
þessari þróun og því eiga þessar samræmdu aðgerðir sér stað,"
sagði Hans Guðmundsson, einn fulltrúanna þriggja. Hinir á myndinni eru
Þórður Jónsson og Þorbjörn Sigurgeirsson.
DV-mynd E.Ó.
Vertíðarlok á Eskifirði:
Minna saltað en fyrri ár
Frá Emil Thorarensen,
fréttaritara DV á Eskifirði.
Síldarsöltun lýkur á Eskifirði í dag
og það er ljóst að hún er mun minni
en síðustu ár. Saltaö er í fimm
stöövum, Auðbjörgu, Eljunni, Frið-
þjófi, Sæbergi og Þór, og gert er ráð
fyrir að heildarmagnið verði um 24
þúsund tunnur, á móti 39 þúsund
tunnumífyrra.
Þorsteinn Kristjánsson,einn
eigenda Auðbjargar, sagði í sam-
tali við DV að vertíðin hefði verið lé-
leg, þar sem þeir næöu ekki helmingi
af síldarsöltun sinni í fyrra.
Kristinn Aðalsteinsson, verkstjóri
og eigandi, sagði hins vegar aö
söltunin hefði gengið mjög vel, enda
hefðu þeir verið einstaklega heppnir
með starfsfólk, bæði heimafólk og
aðkomufólk.
-GB
Gengið frá síldartunnum á Eski-
firði. Söltun lýkur þar í dag.
DV-mynd Emil Thorarenson
DAGBLAÐIЗVISIR
259. TBL. — 73. og 9. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1983.
Leiðangur
bandaríska
flotans?
„Þaö er gífurlega mikilvægt
aö ná flakinu upp sem minnst
skemmdu. Að því stefnum við,”
sagði Haukur Hauksson vara-
flugmálastjóri í morgun.
Flak þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar, TF-RÁN, fannst skömmu
fyrir hádegi í gær á 85 metra dýpi
um 1,2 sjómílum undan Kvíar-
fjalli í Jökulfjöröum. Sónartæki
Varnarliðsins námu hljóðmerki
neyðarsendis þyrlunnar.
Síðdegis í gær sást flakið á
neðansjávarmyndavél, þrátt fyr-
ir að dimmt væri niöri á hafsbotn-
inum, aðeins um 70 sentimetra
skyggni.
Flakið er á það miklu dýpi að
óvíst er hvort kafarar hérlendis
komist að því. Talið er útilokað
að íslenskir kafarar, með þeim
útbúnaði sem til er í landinu, geti
unnið á þessu dýpi. Þeir gætu
hugsanlega rétt kafað niður.
Líklegt er að fenginn verði sér-
stakur leiðangur bandaríska flot-
ans til að ná flakinu upp. Banda-
ríkjamenn hafa boðið fram að-
stoð sína. Til verksins þarf af-
þrýstiklefa og hugsanlega
köfunarkúlu með griptöngum.
-KMU.
Víkingastúlka
íullog
gæruskinni
— sjá bls. 3
Þyrian
ótryggð
- sjá bls. 2
Viðbrögð í Færeyjum við endurskoðun á veiðiheimildum þeirra hér:
Almenningur vill
gefa kvótann eftir
— en st jórnmálamenn tregari til
Frá Eðvarð T. Jónssyni fréttaritara
DVíFæreyjum:
Færeyskur almenningur, jafnt
landfólk sem sjómenn, virðist sýna
mikinn skilning á vanda okkar vegna
aflasamdráttar og telja eðlilegt að við
afnemum liðlega 20 þúsund tonna
veiðikvóta Færeyinga í íslenskri lög-
sötu við þessar aðstæður að því er
fréttaritari DV í Færeyjum fær best
heyrt af viðtölum við fólk.
Þá birtir færeyska blaðið 14.
september, forystugrein í fyrradag
þarsemsegir: „Islendingar eru ekki
hver sem er. I heila öld höfum við
veitt hjá þeim án þess að þeir hafi
farið f ram á neitt í staðinn. ”
Þorskveiðikvóti við Færeyjar var
ákveðinn 25 þús. tonn í ár en veiðin
slagar hátt í 40 þús. tonn og er fullyrt
að ein orsök þessara miklu veiða sé
þorskur af Islandsmiðum.
Stjómmálamenn í Færeyjum hafa
ekki rætt formlega um hugsanlega
uppsögn veiðisamningsins við okkur.
Þeir virðast þó á öðru máli en
almenningur því Páll Vang lands-
stjórnarmaður sagöi í viötali við DV
að þótt Færeyingar skyldu vanda Is-
lendinga vel kæmi það sér illa fyrir
Færeyinga.
Pauli Ellefsen, lögmaður Færey-
inga, sagöist í viðtali við DV vera
sannfærður um að Islendingar
myndu ekki taka af þeim veiðikvót-
ann: ,,Ég trúi því ekki,” sagði hann.
Sagði hann að það myndi þýða mjög
alvarlegt ástand fyrir færeyskan
sjávarútveg og þjóöarbúið allt sem
ætti í erfiðleikum fyrir. Báðir stjóm-
málamennirnir lýstu sig reiðubúna
til viöræðna við okkur hvenær sem
væri.Veiðar Færeyinga hér nema
ársafla svo sem fjögurra til fimm
íslenskra togara.
-GS