Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1983, Qupperneq 4
4
DV. FÖSTUDAGUR11. NOVEMBER1983.
Menning Menning Menning Menning
Leikfélag Rcykjavíkur:
Sigurður Skúlason og Berglind Stefánsdóttír / hlutverkum sfnum i leik-
ritínu Guð gaf mór eyra sem Leikfólag Reykjavíkur frumsýndi ð miðviku-
dagskvöld.
GUÐGAFMÉR EYRA.
Höfundur: Mark Medoff.
Þýðandi: lllfur Hjörvar.
Lýsing: Daníel Williamsson.
Leikmynd: Magnús Pálsson.
Leikstjóri: Þorsteinn Gunnarsson.
Vogun vinnur? Metsöluleikurinn um
málefni heymarlausra, Guö gaf mér
eyra, var í upphafi beinlínis saminn
handa heymarlausri leikkonu, og frægð
hans víða um lönd, margvísleg verð-
laun og viðurkenning sem til hans hafa
falliö, mun einkum stafa af yfirburða-
frammistöðu í aöalhlutverki leiksins.
Einhversstaöar sá ég að þaö væri
áskilið af höfundi að heymarlausar
eða heyrnarskertar leikkonur færu
með hlutverkið, ef þess væri nokkur
kostur. Og það hefur væntanlega fljótt
orðið ljóst, þegar réðst að taka þennan
leik upp í Iönó, að ekki tjóaði að skipa
neinni af heimakonum þar í leikhúsinu
í þetta hlutverk. Enda mundi það, hvaö
sem sýningunni annars liöi, vekja mun
minni athygli en ella á leiknum og mál-
stað hans.
Og vogun tapar? Berglind Stefáns-
dóttir sem leikur Söru heyrnarlausu í
Iðnó er sjálf heyrnarskert og starfar
að kennslu heymleysingja. En hún er
óreynd leikkona. Og þaö veröur strax
að segja eins og er að hún megnar ekki
því sem til þyrfti að fullskapa hlut-
verkið á leiksviöinu — ræður ekki
þeirri leiktækni, orku og ástríðu í leikn-
um sem má ímynda sér aö til þurfi að
gera Söra deginum ljósari fyrir augum
áhorfandans. Þaö nægir ekki aö segja
frá, veröur aö sýna og sanna umfram
allt hver þessi kona er, og ævikjörin
hafa gert hana, einangrun hennar og
örvæntingu, en líka gleði, vonir, ham-
ingju, og vaxandi sjálfsvitund,
uppreisnarhug hennar í leiknum.
Iklæða dæmi Söru Norman holdi og
blóði og gæða hann veruleikans rödd —
fylla þögnina hljómi.
Þetta breytir ekki því að Berglind
Stefánsdóttir kemur vel fyrir á leik-
sviði, ung og aðlaöandi erns og vera
ber í leiknum, og gerir aö ég ætla flest
vel sem hún megnar aö gera. Hún
dregur í öllu falli alveg skýrt útlínur
persónunnar í hlutverkinu. Áhugi
manns og eftirtekt á efninu stafa aöal-
lega af sögu Söru, þeim vanda sem þau
Berglind og Sigurður Skúlason: James
Leeds, kennari og mannsefni hennar,
reifa skýrt og skilmerkilega í leiknum.
Sigurður hefur oft leikið vel, en sjaldan
ágætlega. Og sú stund rennur ekki
heldur í þetta smn, enda hlutverkið í
aðalatriðum sínum undirskipað lýs-
ingu Söru. Þar fyrir lýsti hann James
Leeds vel og drengilega. En saga
þeirra Söru snýst ekki bara um sam-
búð og samskipti heyrandi manns og
heyrnarlausrar konu, kennara og nem-
anda. Umfram allt og aðallega er hún
ástarsaga, og á tilfinningagildi þeirrar
lýsingar, innlifun áhorfandans í líf og
örlög einstaklinga í leiknum hygg ég
að frægð hans rísi. Svo langt kemur
sýningin í Iðnó aldrei efninu, hrífur
mann aldrei með sér þó hún veki vissu-
lega áhuga manns á vandamálum sem
reifuð era í leiknum, samúð með máls-
meöferð og niðurstöðum hans. Og þá er
ansi mikils á vant í leiknum og sýning-
unni, án tilfinningab'fsins, þess tilfinn-
ingalega veruleika sem aö endingu
skiptir þar mestu og numið gæti áhorf-
anda með sér á vald leiksms.
Guð gaf mér eyra er ansi haganlega
samið leikrit. Og vandamála-leikrit er
ekki eða þarf ekki að vera neinskonar
skammaryröi, þó orðið sé skrýtilega
oft notað sem skammaryröi væri. En
fá góð leikrit láta sér það eitt nægja að
reifa ern eða önnur vandamál, enda
verða víst vandamál veruleikans seint
leyst á leiksviði, þó þar sé unnt að sýna
þau og lýsa þeim og yrkja um þau. Og
virðing manns fyrir nýja leiknum i
Iðnó, að honum loknum, stafar af því á
meðal annars að hann lætur engar
ódýrar lausnir efnisins nægjá. Ástin
leysir ekki vanda þeirra James og
Söra, þvert á móti stafar hann af ást-
um þeirra. Og ristir að endingu dýpra
en nemur sambúð heyrandi og heym-
leysingja.
James og Sara fella hugi saman,
Leiklist
ÓlafurJónsson
kennari og nemandi í heyrnleysingja-
skóla, giftast og fara aö búa. En sam-
búöina ber upp á sker af ósamrýman-
legum þörfum þeirra og kröfu hvort til
annars: hann vill, karlmaöur og kenn-
ari, fyrir hvem mun leiöa hana inn í
sinn heim, kenna henni aö yfirvinna
eftir mætti bæklun sína, tileinka sér
mál hinna talandi. Og hún vill, kona og
eiginkona, reisa líf sitt á eigrn reynslu-
heimi, tala máli þagnarinnar og því
einu, neitar að láta manninn móta sig í
sinni mynd. Eigi þau að geta mæst
veröur það að vera á einhverjum þeim
stað sem þau standa jafnt að vígi, utan
við eða á mótum þeirra heima sem þau
byggja hvort um sig. Og saga þeirra er
ástarsaga: þangað á ástin að geta leitt
þau. Eftir aðleiknumerlokið.
Leikurinn er fallega á sviðið settur,
sagan greiölega sögð við einfaldan um-
búnaö leiktjalda og ljósa í sviösetningu
Þorsteins Gunnarssonar í Iðnó. Sara
og James, Berglind og Sigurður eru að
vísu í sjónarmiðju leikinn út í gegn,
eftirtekt manns á leiknum helgast af
samúð með og forvitni um afdrif
þeirra um síöir. önnur hlutverk era
einkum til fyllingar og skýringar aöal-
efninu og farsællega skipuð í sýning-
unni: Karl Ágúst Ulfsson og Lilja
Þórisdóttir lýsa glöggt tveimur
nemendum heyrnleysingjaskólans og
félögum Söru, Orin og Lydíu, alveg
skýrt mótaðar einstaklingsmyndir, og
Harald G. Haralds dró ansi kald-
hæðnislega mynd Franklíns skóla-
stjóra, Sigríöur Hagalín og Valgerður
Dan eru frú Norman, margreynd móð-
ir Söru, og Edna Kleen, lögfræðingur
heymleysingja fyrir jafnréttisráði. En
þaö er ekki efnið í leiknum, krafan um
jafnan rétt hinna fötluðu í heimi ófatl-
aðra. Efniö er réttur manns að lifa lífi
sínu á eigin forsendum, skapa þaö úr
eigin reynslu, heyrandi sem heyrnar-
laus, konasemkarl.
Hreppsnefndarkosningar í Mýrdalshreppi á laugardag:
NY HREPPSNEFNDINYJUM HREPPI
Fyrstu hreppsnefndarkosningar í
Mýrdalshreppi veröa haldnar á morg-
un og era þrír listar í boði: Listi fram-
sóknarmanna, listi sjálfstæöismanna
og svo listi umbótasinna en hann skipa
menn úr öilum flokkum sem vilja láta
málefni ráða í staö pólitískra hags-
muna þegar velfamaöur sveitarinnar
er annarsvegar.
I almennri atkvæðagreiöslu 14.
nóvember á síðasta ári var samþykkt
aö sameina Hvammshrepp (Vík í Mýr-
dal) og Dyrhólahrepp og mun samein-
ingin taka gildi um næstu áramót.
Hinn nýi hreppur hefur hlotiö nafnið
Mýrdalshreppur og veröur ný hrepps-
nefnd kosin á laugardag eins og fyrr
sagði. Jafnframt veröur kosið í sýslu-
nefnd en þar eru í framboði Birgir
Hinriksson og Einar Þorsteinsson fyrir
Framsóknarflokk, Einar Kjartansson
og Jón Valmundsson fyrir Sjálfstæðis-
flokk og Þórir Kjartansson og Margrét
Guðmundsdóttir fyrir Umbótasinna.
Á kjörskrá eru 435 kjósendur og
munu þeir velja 7 menn í hreppsnefnd
hins nýja hrepps.
-EIR
Vigfús Þ. Guðmundsson, fyrsti maður
á lista Umbótasinna:
Málefni ráði
„Listi Umbótasinna sem hefur lista-
bókstafinn Z býður fram í Mýrdals-
hreppi vegna þess að viö sem aö hon-
um stöndum teljum að setja eigi mál-
efnalega hagsmuni hreppsins ofar póli-
tískum hagsmunum,” sagði Vigfús Þ.
Guðmundsson, fyrsti maöur á Z-lista,
lista Umbótasinna. „Meðal stuönings-
manna okkar er fólk úr öllum flokkum
sem vill sveit sinni vel. Aö sjálfsögðu
eru það atvinnumálin sem eru efst á
- ekki pólitík
baugi í þessum kosningum, og þar ber
álsteypuverksmiðjuna hæst. Engar
deilur eru uppi um það hvort hún eigi
að koma eöa ekki, fólk er einhuga um
að þaö yrði aö henni mikil búbót. Þá má
nefna byggingu lítilla gistihúsa en til-
koma þeirra ætti að geta aukiö feröa-
mannastrauminn töluvert hrngað til
okkar í Vík,” sagöi Vigfús Þ.
Guömundsson.
Betra er aðfara
seinna yfir akbraut
en of snemma.
||UfjrfFERÐAR
Finnur Bjamason, efsti maðurá D-lista:
Unga fólkið og kyndingarkostnaður
„Það er langt í frá að atvúinuástand
hér í hreppnum sé í góöu lagi,” sagði
Finnur Bjamason efsti maöur á D-lista
sjálfstæðismanna við hreppsnefndar-
kosningamar í Mýrdalshreppi. „Að
vísu er ekkert atvúinuleysi, allir hafa
nóg að starfa á meðan allt ungt fólk
flyst af staðnum strax og tækifæri
gefst. Ástandið væri annað í atvinnu-
málunum ef allt unga fólkið væri
heima. Það er ljóst að eitthvað þarf að
gera til að halda unga fólkrnu á heima-
slóöum, hvemig sem þaö verður gert. ”
Finnur sagði álsteypuna vera það
fyrirtæki sem hvað mestar vonir væru
bundnar við en af öðrum innansveitar-
málum mætti nefna malbikunarfram-
kvæmdú-, sem aldrei var lokiö við í
sumar, viðbótarbyggingu viö Elli-
heimilið, sem opnað var fyrir skömmu
og er nú þéttsetið og svo byggingu
gistiaðstööu fyrú- ferðamenn.
„Það er álit okkar sjálfstæðismanna
að hreppurúin eigi ekki aö vera að vas-
ast of mikið í þessum feröamalum,
heldur láta einstaklinga um þetta,”
sagði Finnur. Nefndi hann einnig aö
tími væri til kominn aö sveitarstjómir
landsins tækju sig nú saman og þrýstu
á stjómvöld um aö lækka rafmagns-
„Það eru aö sjálfsögðu atvinnumálin;
sem eru mál málanna hér í sveit og í
þessum kosningum,” sagði EyjólfurB.
Sigurjónsson, efsti maður á lista fram-
sóknarmanna í hreppsnefndarkosning-
unum í Mýrdalshreppi.
Eyjólfur sagði að stofnun álsteypu
sem framleiöir pönnur væri sú fram-
kvæmd sem væri efst á baugi í hugum
manna. „Það er verið að kanna málin
en við vonumst til aö niöurstöðurnar
verði okkur í hag og framleiösla geti
hafist hiö fyrsta. Álsteypan myndi út-
verð til húshitunar á þeim svæðum þar
sem engin hitaveita er. „Fólk hér
greiöir gjarnan 4—500 krónur á mán-
uði í kyndingarkostnað yfir vetrar-
mánuðina og slíkt gengur að sjálfsögðu
ekki.”
vega 43 manns atvinnu og munar um
múina í litlu sveitarfélagi.” Sagði
Eyjólfur ástand í atvinnumálum ekki
nógu gott í hreppnum, aö vísu væri nóg
að gera í sláturtíðinni en annars ekki.
Annað stórmál úinan sveitarinnar er
að koma upp gistiaöstöðu fyrir ferða-
menn í Vik en gamla kaupfélagshótelið
sem þar er fyrir er bæði of lítið og slitið
til aö hægt sé að taka á móti gestum í
einhverjummæli.
Lítil harka er í kosningabaráttunni
aðsögnEyjólfs.
Eyjólfur Sigurjónsson, fyrsti maðurá B-lista:
Atvinnumál og álsteypa
Dregið á morgun
OPIÐ FRÁ KL.9-22
SÍMINN ER 82900
SÆKJUM — SEIMDUM — Hausthappdrætti Sjálfstæðisflokksins.